Morgunblaðið - 23.02.2018, Blaðsíða 2
Sænski múslímaðurinn Paulúns
hefur nú bætt við vörulínu sína
Paleo kókos granóla sem inni-
heldur náttúruleg hráefni. 82%
innihaldsins eru ristaðar hnetur,
fræ og kókos. Enginn viðbættur
sykur er í granólanu en það fær
sæta bragðið úr kanil og sætum
kartöflum. Granólað er með hátt
innihald af trefjum og próteini
ásamt E vítamíni, þíamíni og
járni. Þetta finnst okkur sniðugt!
Granólað fæst meðal annars í
Nettó.
Paleo
sykurlaust
granóla
Inniræktun Matjurta er gullfalleg og virkilega eiguleg bók sem
kemur út 1. Mars hjá Forlaginu. Það er meðal annars farið yfir
hvaða kryddjurtir henta í kokteila og hvernig skuli stílisera
kryddplöntu-kokteilvagn og halda plöntunum á lífi.
Bók sem allir gourmet-
grallarar verða að lesa
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018
Útgefandi Árvakur Umsjón Tobba Marinósdóttir Blaðamenn Tobba Marinósdóttir tobba@mbl.is, Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is
Auglýsingar Jón Kristinn Jónsson jonkr@mbl.is Valur Smári Heimisson valursmari@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók Krist-
björg Sigurjónsdóttir.
Þessi hvíti, látlausi kökustandur mun
sóma sér vel á páska- eða ferming-
arborðinu. Hvítur og lekker með
skemmtilegu gylltu handfangi. Vinir
okkar hjá Ikea passa líka að verðið sé
vinalegt. Ikea, 2.490 krónur.
Mínimalískur
kökustandur
Líklegt til vinsælda …
Við kíktum í nokkrar verslanir og rákum augun í nokkra snilld-
arhluti sem ekki þykir ólíklegt að seljist upp á næstu vikum.
Gígja Björnsson og Ragnheiður
Birgisdóttir safna nú fyrir Katta-
kaffihúsi sem verður opnað inn-
an skamms á Bergstaðastræti
10a. Hægt er að leggja þeim lið á
Karolinafund.is en kaffihúsið
verður virkilega smart, guð-
dómlegt veggfóður og gæfir
kettir munu án efa slá í gegn.
„Við erum að opna fyrsta
kattakaffihúsið á Íslandi! Við
verðum með notalega stemn-
ingu þar sem kettir geta hitt nýja
eigendur og fólk getur fengið sér
góðan kaffibolla,“ segja kaffi-
glöðu kattavinkonurnar.
Morgunblaðið / Hari
Kattakaffi-
húsið
Í
dag þykir það ekki hægt að bjóða fólki heim í,
hvað þá birta myndir á samfélagsmiðlum af eld-
húsum sem eru minna en ákaflega smart. Jafnvel
þó þú búir í holu eða stúdíóíbúð sem telur örfáa
fermetra þá er nánast skylda að þar sé einhver
marmari og guð hjálpi þér ef það litla sem þú átt af
matarstelli er ekki merkjavara. Samfélagsmiðlar
myndu úthrópa þig karaktersubbu og metn-
aðarlausan einstakling, jafnvel umhverfissóða. Því ef
ekki merkjastell hvað þá? Frauðplastglös og pappad-
iskar sem kæfa allt lífríki í umhverfinu og gera fram-
tíð barna þinna sótsvarta af eymd og volæði latra og
ólekkerra foreldra.
Það eina sem er í raun jákvætt við þig sem býrð í
ljóta eldhúsinu er að þú ert fyrirtaks fórnarlamb í fyr-
ir/eftir atlögu þar sem eldhúsið og þú um leið færð
uppreisn æru. Allt skal vera topp gæði, innflutt, ex-
ótískt, sérsmíðað og litir sérblandaðir. Eða hvað?
Þrátt fyrir aukinn metnað í hýbýlum fólks og hlýn-
andi efnahag er það þó áberandi að útsjónarsemi virð-
ist vaxa og dafna og endurnýting blómstrar. Fólk
virðist hugsa í auknum mæli um umhverfi sitt og að
það að endurnýta sé ekki merki um nísku heldur um-
hverfisvitund og útsjónarsemi. Stoltið sem greina má
hjá viðmælendum okkar þegar útlistað er hvernig
gerð voru góð kaup er til fyrirmyndar. Ikea innrétt-
ingar lifa góðu lífi í mörgum af fegurstu eldhúsum
landsins og klassískt útlit sem eldist vel er almennt
upplegg. Einnig vekur það athygli og aðdáun hve oft
þreyttar innréttingar þurfa lítið annað en málningu,
nýjar höldur og annað smálegt til að lifna aftur við og
geisla af sjálfstrausti. Ekki ólíkt mér sjálfri. Þó að
mínar eigin höldur séu þó enn óuppgerðar.
Tobba Marinósdóttir
Ljót eldhús
mega líka lifa
Ljósmynd/Íris Ann
Við höfum ítrekað dásamað sous
vide-tæknina en um leið barmað
okkur yfir plasteyðslunni sem
henni fylgir. Nú loksins fást hér-
lendis endurnýtanlegir plastpokar
sem hægt er að nota til sous vide-
eldunar, frysta, setja í örbylgjuofn-
inn eða geyma nestið í. Svo má
setja þessar elskur í uppþvottavél-
ina. Elko, frá 1.795 krónum.
Endurnýtan-
legir sílíkon-
pokar