Morgunblaðið - 23.02.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.02.2018, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018 Að safna stelli þykir til marks um að ákveðnum þroska sé náð. Fallegt stell er ekki bara praktískt heldur setur það hátíð- armáltíðina upp á hærri stall og gerir einhvernveginn allt betra. Úrvalið af fallegum stellum er mikið og algengast er að fá sér skandinavískt stell. Mávastellið er sívinsælt og kostar fúlgur fjár. Það sama má segja um Fallandi lauf, Royal Copen- hagen í öllum sínum útgáfum og Finnarnir eru líka sterkir á svellinu með Iittala sem er sívinsælt hér á landi. Við fengum nokkra valinkunna einstaklinga til að segja okkur frá stellinu sínu. thora@mbl.is Stellið mitt F yrir nokkrum árum gerði ég tilraun til þess að byrja að safna í stell en áttaði mig fljótlega á því að ég hef einfaldega allt of gaman að því að blanda saman hinu og þessu og leika mér svolítið þegar kem- ur að því að dekka fallegt borð svo ég var ekki tilbúin að festa mig við eitt stell þar sem ég skipti um skoðun og liti eftir árstíðunum. Hinsvegar hef ég stolist til að skoða og láta mig dreyma um Royal Copenhagen-stellið í mörg ár sem er auðvitað guðdómlegt,“ segir Kolbrún. „Í einni ferð minni til Kaupmannahafnar fjárfesti ég svo í fyrstu kaffibollunum eftir miklar vangaveltur um það hvort ég ætti að fara í klassíska bláa litinn eða svarta. Það var eitthvað í mér sem fannst ég verða að halda tryggð við klassíkina í stelli sem þessu svo blár varð það. Síðan þá hef ég eignast nokkra ein- staklega fallega hluti úr línunni og ég verð að viðurkenna að þegar maður er farinn að safna jafn fallegum hlutum og þessum þá fylgir því óneitandleg töluverð gleði að eignast hvern og einn. Og það er einmitt það sem mér finnst svo spennandi við það að safna sér einhverju sem mann virkilega langar í. Stundum lít ég inn til vina minna í Kúnígúnd og læt mig dreyma um næsta hlut og raða saman í huganum. Það sem mér finnst svo ofsalega heillandi við Royal Co- penhagen er að stellið á orðið gríðarlega langa sögu en aðlagast engu að síður nútímanum með nýjum og spennandi hlutum. Það eru nokkrar línur innan stellsins sem gerir manni kleift að blanda saman hlutum og skapa þá út- komu sem að maður vill. Ég ákvað að byrja í bollum og aukahlutum og hef verið mjög dugleg að nota þá og blanda við það sem ég á í skápunum nú þegar. Royal passar einhvern veginn við allt og allt passar við Roayal. Einnig held ég áfram að leyfa mér að fara ekki eftir neinum reglum og nota bolla undir sósur, skálar undir blóm, diska undir kerti og þess háttar.“ Fagurkerinn Kolbrún Pálína Helga- dóttir heldur úti fallegu heimili og elskar að dekka borð og hafa huggu- legt í kringum sig. Þó að hún fari iðulega út fyrir rammann þegar kemur að framsetningu og stíl þá kolféll hún fyrir klassísku mat- arstelli. Konunglegt Kolbrún Pálína er afskaplega hrifin af Royal Copen- hagen-stellinu sínu. Royal passar við allt og allt passar við Royal Morgunblaðið/Eggert É g fékk hið svokallaða hippa-uppeldi þannig að það var aldrei lagt mikið upp úr því að eiga veraldlega hluti. Það stefndi þess vegna aldrei í að ég myndi eignast stórt kaffi- og matarstell þó að ég eigi ágætt safn í dag. Sjálf er ég frekar hrifin af því að eiga ósamstæð stell úr öllum áttum og lengi vel átti ég ekki nema örfáa diska af sömu sort þannig að í fjölmennum matarboðum þurfti oft að draga furðulegustu áhöld á flot.“ „Í dag eigum við hjónaleysin tvö bolla- og matarstell. Við fengum eiginlega bæði í arf eða þau gengu áður í fjölskyldum okkar. Ann- að erfði mamma mín frá Esther frænku sem hún geymdi og gleymdi í mörg ár og lét mig síðan fá þegar barnaskarinn var orðinn stór. Hitt fengum við í arf frá ömmu mannsins míns sem var alltaf mikið í mun að við eignuðumst almennilegt stell. Hún lét okkur meira að segja velja okkur skálar og diska á frumbýlis- árum okkar sem hún gaf okkur í jólagjöf. Hugmyndin var að hún gæti gefið okkur síðan í stellið á jólum og afmælum og þannig losnað við þann höfuðverk sem fylgir því oft að velja gjafir. Upphafið var sex skálar og sex diskar. Hins vegar dugði þetta skammt og reyndist tegundin sem var valin ekki jafn endingargóð og okkur hafði verið talin trú um. Annað en Royal Copenhagen-matarstellið með gylltu röndinni sem við erfðum síðar frá henni.“ „Stellið frá Esther frænku, Fallandi lauf, var í miklu uppáhaldi hjá henni og bara notað við mjög hátíðleg tækifæri og á jólunum. Mér skilst að það hafi þótt fínna en sjálft Máva- stellið. Við notum hins vegar stellið við hvers kyns tilefni – og í öllum barnaafmælum en við þurfum að halda a.m.k fjögur afmæli á ári. Í dag þykir mér gaman að draga stellin fram því þá er alltaf eitthvað skemmtilegt í vændum. Ég held samt að ég eigi aldrei eftir að eignast silfurhnífapör með stellunum. En kannski ætti aldrei að segja aldrei." Borgarfulltrúinn Líf Magneudóttir lumar á tveimur forláta stellum sem er ekki annað hægt en að dást að. Hún segist nota stellin við hvers kyns tilefni og í öllum barna- afmælum sem mörgum þykir ef- laust bera vott um mikið hugrekki. Morgunblaðið/Eggert Bjóst aldrei við að eignast stell Algjör gersemi Hér sjáum við hið forláta matarstell Fallandi lauf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.