Morgunblaðið - 23.02.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018
Vinnupláss og skipulag
Rikka segir að flæði og gott vinnupláss tróni á toppn-
um yfir mikilvægustu atriðin sem prýða gott eldhús.
Einnig þurfi að huga að heildinni og karakter umhverf-
isins. „Við erum svo heppin að eldhúsið okkar er opið og
í raun hjarta hússins en það er mikill kostur að geta
tengt við vini og fjölskyldumeðlimi á meðan verið er að
vinna í eldhúsinu,“ segir hún um eldhúsið sitt sem sé
ákaflega mikilvægt í alla staði.
Grunnir skápar góðir
Gott skápapláss og skipulag í skápum sé oft vanmetið
en sé gríðarlega mikilvægt þrátt fyrir að vera eitt af
þeim atriðum sem fólk áttar sig ekki alveg á hversu
mikilvægt er enda ber vel skipulagt eldhús það endilega
ekki með sér fljótt á litið. „Það er fátt eins þreytandi
eins og að liggja hálfur inni í skáp að leita að desilítra-
máli í draslinu. Ég er eiginlega komin á það að vera með
grynnri skápa og færri hluti en geyma þá sparistell eða
stærri hluti sem sjaldnar eru notaðir inni í geymslu,“
segir hún en stórir glerskápar hafa einnig verið vinsæl-
ir undanfarin misseri sem nýtast vel undir sparistellið..
Skiptir máli hvernig vaskurinn snýr
„Persónulega finnst mér svo kostur ef vaskur snýr að
glugga, en það gefur manni tækifæri til að njóta útsýn-
isins og leyfa huganum að reika á meðan á uppvaskinu
stendur,“ segir Rikka og bætir því við að slíkar stundir
gefi ágætis tilefni til þess að staldra við í annríki dags-
ins og íhuga. Þetta er afskaplega áhugaverð pæling því
margir leita einmitt í uppvask til að slaka á.
Róandi að saxa
Greinilegt er að matseld er Rikku ákaflega mikilvæg
því ekki nóg með að hún hugleiði við uppvaskið heldur
segist hún það afskaplega róandi að saxa niður græn-
meti. Hún er því á því að sitt uppáhalds eldhúsáhald séu
góðir hnífar en þá noti hún miklu fremur en mat-
vinnsluvél. Ástæðan sé jafnframt sú að henni þyki það
reyna á taugarnar að þrífa matvinnsluvélina.
„Góðir hnífar geta gert kraftaverk og þá nota ég
mjög mikið, líklega út af því að mér finnst róandi að
saxa niður grænmeti,“ segir hún og bætir við að litlar
matvinnsluvélar eða tæki líkt og Nutribullet séu í uppá-
haldi en þau sé auðvelt og einfalt að þrífa
Dreymir um tvo ofna
„Hið fullkomna eldhús fyrir mér er hlýlegt og að-
gengilegt,“ segir hún aðspurð hvernig draumaeldhúsið
sé. „Skipulag er mér líka ofarlega í huga þar sem það
einfaldar umgengni og vinnu. Ég sé fyrir mér frekar
dökkt eldhús, jafnvel út í blágrátt með bláum og krem-
lituðum, skrautlegum keramikflísum yfir veglegri elda-
vélinni. Þarna er hlýlegur viður, reyklitaðir gler-
skrautmunir og fallegar matreiðslubækur. Í eldhúsinu
eru tveir ofnar þar sem ég get bakað marengs og jóla-
steikina á sama tíma. Góð og hlýleg lýsing í bland við
kertaljós og kósýheit,“ segir hún og ljóst að hún er búin
að hugsa þetta vel.
Á allt sem hana vantar
Aðspurð hvaða heimilistæki hana dreymi um að eign-
ast segir hún þetta fremur erfiða spurningu, það væri
þá einna helst mjólkurflóari frá Nespresso sem kæmist
á óskalistann enda bráðsniðug græja fyrir alla kaffiunn-
endur. „Ég er svo óskaplega heppin að eiga allt sem
mig vantar en ég yrði ánægð með flóarann,“ bætir hún
við og ljóst er að hlustendur K100 eiga gott í vændum á
næstunni enda má búast við stórskemmtilegum þáttum
hjá tvíeykinu ógurlega sem er öllu vant þegar kemur að
fjölmiðlum.
Hugleiðir yfir uppvaskinu
Friðrika Hjördís Geirsdóttir eða Rikka eins og hún er betur þekkt sem er nýjasta skrautfjöðrin í annars myndarlegan hatt Árvakurs en hún mun
stýra nýjum morgunþætti ásamt Loga Bergmann og Rúnari Frey Gíslasyni. Rikka er líka afburðakokkur og hefur gefið út fjölda bóka og stýrt mat-
reiðsluþáttum í sjónvarpi um árabil. Hún hefur því sterkar skoðanir á því hvernig eldhús eigi að vera og okkur lék forvitni á að komast að því hvað
það er sem skiptir mestu máli.
Morgunblaðið/Eggert
Fljótlegt Rikka segir
þessa uppskrift vera
eina þá einföldustu
sem sé í notkun hjá
henni þessi misseri.
fyrir 4
500 g kúskús, ég nota for-
kryddað til að spara tímann
500 g persneskur kjúklingur
frá Holta
2 hvítlauksrif, pressuð
100 g rúsínur, saxaðar döðl-
ur eða þurrkaðar fíkjur
2 msk. avókadóolía, til steik-
ingar
salt og pipar
sósa
handfylli ferskt kóríander,
fínsaxað
1 dós sýrður rjómi 10%
¼ tsk. cayenne-pipar
1 msk. sítrónusafi
½ hvítlauksrif, pressað
þurrristaðar kasjúhnetur
granateplakjarnar
Eldið kúskús samkvæmt leiðbein-
ingum á pakkningu. Steikið kjúklinginn
upp úr olíunni ásamt hvítlauk og rús-
ínum. Bætið kúskús saman við, steikið
áfram og kryddið með salti og pipar.
Hrærið hráefninu í sósunni saman,
má líka skella öllu saman í blandara.
Skellið í skál, stráið kasjúhnetum og
granateplakjörnum yfir og berið fram
með sósunni.
Kúskús með miðaustur-
lenskum innblæstri
Girnilegt Kúskús
er fljótlegt og gott
í matinn.