Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.2. 2018 VETTVANGUR Hjálpa sem forvörn „Okkar reynsla er að lokunarverk- efnin hafi hjálpað sem forvörn. Hefðu lokanirnar ekki komið til hefðu verið fleiri útköll.“ Guðbrandur Örn Arnarson hjá Slysa- varnafélaginu Landsbjörg, en nokkur gagnrýni kom fram á vegalokanir vegna slæmrar færðar í vikunni. Sex vikur urðu fimm mánuðir „Þar af leiðandi taldi ég að þá hlyti ég að vera á réttri leið eftir að hafa komið liðinu inn á HM og EM. Hjá HSÍ myndu menn þá vera tilbúnir til að setjast niður og ræða áframhald- andi samstarf. Þá hafði ég samband við HSÍ og óskaði eftir því að fá skýr svör sem fyrst en gaf þeim sex vikur. Þær sex vikur breyttust í hátt á fimmta mánuð.“ Geir Sveinsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í handbolta. Hljómar ekki svo illa „Þetta hljómar ekki svo illa, sagði hann. Og ég svaraði: Einmitt, fávitinn þinn, vegna þess að þetta ert ekki þú.“ Upptökustjórinn Quincy Jones um atvik þegar hann plataði Ringo Starr, trymbil Bítlanna, og fékk annan og betri trommara til að spila. Brot á mannréttindum „Ég fæ ekki betur skilið en að hún líði fyrir meinta aðild eiginmanns síns að fíkniefna- máli. Ég veit ekki til þess að hún sé sakborn- ingur í málinu og það hlýtur að vera brot á mannréttindum að hún fái ekki þá læknis- hjálp sem hún þarf á að halda.“ Páll Kristjánsson, lögmaður Sunnu Elviru Þorkelsdóttur. Hreyfði við rabbínum „Ég gerði mér grein fyrir því að þetta mál myndi vekja athygli hér á Íslandi en ég bjóst ekki við viðbrögðum frá rabbínum í útlönd- um.“ Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins, um frumvarp sitt og fleiri þingmanna við banni á umskurði barna. AFP Fórnaði hárinu fyrir Kraft Ellefu ára gömul stúlka, Ester Amíra Æg- isdóttir, safnaði 300 þúsund krónum fyrir Kraft með því að láta raka af sér hárið. Morgunblaðið/Árni Sæberg VIKAN SEM LEIÐ Ég komst að því um daginn að helsti ótti ljósmyndara erað fara í mannfögnuð og taka myndir af fólki. Hittaeinhvern sem þeir hafa séð margoft, taka af honum mynd og þurfa svo að spyrja hann vandræðalega að nafni. Mér skilst að ljósmyndarar sofi ekki af áhyggjum yfir því að lenda í þessu. Sumir hafa meira að segja hætt í bransanum af ótta við að lokast og spyrja Björgvin Halldórsson að nafni. Ég tengi mjög mikið við þennan ótta. Ef ég ætti að velja eina setningu sem fer verst með mig þá er það sennilega þessi: Manstu ekki eftir mér? Hún vekur upp óþægindi, óör- yggi og ónotatilfinngu. Og bara svona allskonar Ó-hluti. Þetta gerist venjulega þegar ég, ómannglöggasti maður landsins (að eiginkonu minni undanskilinni), hitti einhvern sem ég kannst við og jafnvel veit hver er. Þá er allt gott. Svo kemur þessi spurning: Manstu ekki eftir mér? Og hér er tvennt í stöðunni. Maður getur sagt: Jú auðvitað og reynt svo að ljúga sig framhjá því að maður sé alveg blankur og bíða eftir ein- hverjum vísbendingum. Það kallar á hættuna á að fá næstu spurningu í seríunni: Hver er ég? Við skulum aðeins staldra við hana. Þetta er náttúrlega einhver furðuleg existensjalísk spurning og við henni er sjaldan gott svar. Að vísu er sá möguleiki fyrir hendi að við- komandi hafi misst minnið og hreinlega gleymt hver hann er. Því miður, fyrir mig, er það sjaldnast málið. Tilgangurinn virðist vera annaðhvort að koma okkur ómannglögga fólkinu í vandræði eða fá einhverskonar við- urkenningu. Svona eins og Íslendingar fá þegar þeir sjá ís- lenska fánann í útlöndum. Og hér er enn tími til að bjarga sér. En því miður gerist það oft að það fæst ekki rétt svar við þessari spurningu. Pressan er eins og sitja í ljósunum í Viltu vinna milljón og eiga bara eftir að svara milljón dollara spurningunni. Og ekkert gerist. Í huga þess sem spyr eru þrír möguleikar í stöðunni. Að maður sé algjör bjáni, að manni finnist viðmælandinn ekki nógu merkilegur eða að maður sé einfaldlega svona hrikalega merkilegur með sig. Enginn þessara kosta er góður. (Hér finnst mér rétt að taka fram að ég er alveg léttur þótt fólk muni ekki hvað ég heiti. Það er í raun frekar plebbalegt að ætlast til þess af öðrum sem maður getur ekki boðið uppá sjálfur.) Fyrir nokkrum árum, eftir að hafa brennt mig mjög illa á því að þykjast þekkja fólk, hef ég tekið upp þá reglu að segja bara satt. „Ég man eftir þér, en bara ekki hvaðan.“ Um þessa reglu vil ég segja eftirfarandi: Sá sem sagði að hrein- skilnin væri besti kosturinn hefur annaðhvort verið fullur eða aldrei hitt fólk sem hann mundi ekki eftir. En eins og svo oft í okkar samfélagi er hægt að bjarga sér fyrir horn. Því hef ég tekið upp á að skýra þetta með því að í raun sé ég „andlitsblindur“. Það fyrirbæri er sko til í alvör- unni. Allskonar fólk hefur meira að segja stigið fram og gefið vitnisburð um að það þekki ekki maka sinn frá hundinum. Eftir að ég tók þetta upp hefur mér verið betur tekið og meira að segja stundum hefur örlað á samúð hjá fólki sem vill fá að vita hvert það sé. Og svona bara í lokin – þessu tengt – ókeypis ráð. Spurn- ingin: Veistu ekki hver ég er? til að ná einhverju fram eða fá betri þjónustu, er aldrei að fara að hjálpa neinum. Ég hef séð fólk segja þetta og átta mig ekki á hver viðbrögðin ættu að vera. „Jú! Ég veit hver þú ert, endilega komdu hérna fram- fyrir röðina og fáðu þér drykk á minn kostnað.“ Ég held ekki. Manstu ekki eftir mér? Logi Bergmann logi@mbl.is Á meðan ég man ’En eins og svo oft í okkar samfélagi er hægt að bjarga sér fyrir horn. Því hef égtekið upp á að skýra þetta með því að í raun sé ég „andlitsblindur“. Það fyrirbærier sko til í alvörunni. Allskonar fólk hefur meira að segja stigið fram og gefið vitn-isburð um að það þekki ekki maka sinn frá hundinum. UMMÆLI VIKUNNAR ’Það mætti halda að þeir hefðulifað á skyri og lambakjöti ogtekið inn hákarlalýsi, svo magnaðer að sjá til þeirra. Guðni Ágústsson í aðsendri grein um The Rolling Stones sem birt var í Morgunblaðinu á fimmtudag. Meira til skiptanna Fékk myndbandið eftir fimmtán ár Uma Thurman fékk loks að birta myndband sem sýnir slys á töku- stað Kill Bill en hún hafði barist fyrir birtingunni frá árinu 2002. Matur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.