Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Page 35
11.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 31.1.-6. FEBRÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 ÞorstiJo Nesbø
2 Óvelkomni maðurinnJónína Leósdóttir
3 UppruniDan Brown
4 Elín, ýmislegtKristín Eiríksdóttir
5 Undur MývatnsUnnur Þóra Jökulsdóttir
6 Súrkál fyrir sælkeraDagný Hermannsdóttir
7 Stígvélaði kötturinStella Gruney endursagði
8 Iceland in a BagÝmsir höfundar
9 Sigraðu sjálfan þigIngvar Jónsson
10 GatiðYrsa Sigurðardóttir
1 Stígvélaði kötturinnStella Gruney endursagði
2
Skrímsli í vanda
Áslaug Jónsdóttir/Kalle
Güettler/Rakel Helmsdal
3 Mjallhvít og dvergarnir sjö
4 Gosi
5 Grísirnir þrír
6 Gullbrá og birnirnir þrír
7 Gagn og gamanHelgi Elíasson/Ísak Jónsson
8 Elstur í bekknumBergrún Íris Sævarsdóttir
9
Lói þú flýgur aldrei einn
Styrmir Guðlaugsson/
Sigmundur Þorgeirsson
10 DýragarðurinnÓlafur Haukur Símonarson
Allar bækur
Barnabækur
Ég var að klára bók sem heitir
Viktoría eftir Knut Hamsun,
hnaut um hana hér
í hillu á bókasafn-
inu. Mér leist ágæt-
lega á hana, en hún
er svolítið ruglings-
leg á smákafla. Það
þarf að lesa hana
með réttu hugar-
fari, maður les ekki allar bækur
eins.
Svo er ég að glugga í æviminn-
ingar séra Árelíusar
Níelssonar, Horft
um öxl af Háloga-
landshæð. Mér var
bent á hana af því
að hann tengist
þessu svæði, að það
væru svo góðar lýs-
ingar frá uppvextinum. Ég er
komin voða stutt í henni, hann er
ennþá hvítvoðungur sem verið er
að flytja á milli
bæja.
Svo las ég Þúsund
kossa eftir Jón
Gnarr, fannst hún
alveg ágæt. Þetta er
saga sem þurfti að
segja og er ekki
„aumingja ég“-saga, Jóga er
dæmi um manneskju sem telur
sig geta lært af öllu, hvort sem
það er gott eða slæmt.
ÉG ER AÐ LESA
Sigríður
Jónsdóttir
Sigríður Jónsdóttir er
bókavörður í Búðardal.
Sagnfræðingurinn Vilhelm Vilhelmsson rýndi í
sáttabók Miðfjarðarumdæmis frá árunum 1799-
1865 og tíndi saman úr þeirri bók frásagnir af
deilumálum og málalyktum í umdæminu, en
sáttanefndir áttu að útkljá minniháttar deilu-
mál. Dæmin sem Vilhelm birtir í bókinni Sakir
útkljáðar segja sögu af lífi og högum alþýðufólks
á Íslandi á nítjándu öld, en meðal annars kemur
við sögu strok vinnuhjúa úr vist vegna sultar og
illrar meðferðar, hjónaskilnaður sökum ósam-
lyndis og framhjáhalds, deilur um landamerki
og hvalreka og svo má telja. Háskólaútgáfan gefur út.
Napolí-fjórleikur Elenu Ferrante gerði hana
heimsfræga og íslensk útgáfa bókanna naut hylli
hér á landi. Nú hefur Bjartur gefið út fyrstu
skáldsögu Ferrante, Óþægilega ást, í þýðingu
Brynju Cortes Andrésdóttur. Í bókinni segir frá
Deliu sem misst hefur móður sína á sviplegan
hátt. Í kjölfarið heldur hún til æskustöðvanna til
að glíma við erfiða bernsku með tvístraðri fjöl-
skyldu og að skoða sambandið við móður sína í
gegnum árin og reyna að átta sig á hvort hún hafi
yfirleitt þekkt hana.
Í september 2009 var framið eitt stærsta rán
sem framið hefur verið í Svíþjóð. Slyngir þjófar
rændu þyrlu, lentu henni á þaki peningageymslu í
Västberga í Stokkhólmi að næturlagi, brutust inn
og komust undan með 39 milljónir sænskra
króna. Í skáldsögunni Þyrluránið rekur Jonas
Bonnier þessa sögu, en hann byggir bókina á ít-
arlegum viðtölum við ræningjana. Bókin hefur
vakið mikla athygli og útgáfuréttur verið seldur
til yfir 30 landa auk þess sem Netflix hefur keypt
kvikmyndaréttinn. Eyrún Edda Hjörleifsdóttir
þýddi.
NÝJAR BÆKUR
Fyrir stuttu kom út önnur út-gáfa Ós Pressunnar, bók-menntatímaritið Ós – The Jo-
urnal, en Ós Pressan eru sjálfstætt
starfandi félagasamtök fjórtán höf-
unda. Heftið nýja hefur að geyma
texta á átta tungumálum, þrettán
smásögur og 28 ljóð ýmist á ís-
lensku, ensku, pólsku, þýsku, hol-
lensku, spænsku, kúrdísku eða
búlgörsku eftir þrjátíu og einn höf-
und sem allir tengjast Íslandi. Til-
gangur Ós Pressunnar er einmitt
að vera fjölþjóðleg útgáfa, „að
fagna öllum þeim ólíka uppruna,
kynjum, stílum og tungumálum
sem móta hið íslenska bókmennta-
samfélag í dag“, eins og segir í til-
kynningu frá útgáfunni.
Anna Valdís Kro er ein af að-
standendum Ós Pressunnar og hún
rekur upphafið til þess að þær hitt-
ust nokkrar konur í ritsmiðju Sögu-
hrings kvenna og Borgarbóka-
safnsins í október 2014. „Við
ákváðum að halda áfram að hittast
nokkrar úr þeim hópi og þegar við
sáum auglýsingu um ritsmiðju hjá
Angelu Rawlings í janúar 2015 fór-
um við margar á það námskeið,
fjórtán konur á fimm mánaða nám-
skeiði. Það sem heillaði mig, og ég
held að hafi heillað okkur allar, var
að aðferðirnar sem Angela notaði
voru svo þægilegar að við fundum
að við gátum allar notið þess að
skrifa hvað sem okkur datt í hug á
okkar tungumálum, það voru engin
skilyrði, það var ekkert bannað.“
– Hvað varð til þess að þið ákváð-
uð að hittast aftur eftir ykkar
fyrsta fund?
„Ég held það hafi verið andrúms-
loftið, að sitja saman og skrifa og
hjálpast að og svo var svo gaman
að kynnast öllum konunum og sög-
unum þeirra og tungumálunum.
Svo kynntumst við ansi vel á nám-
skeiðinu hjá Angelu og þá kom í
ljós að margar kvennanna höfðu
búið hér lengi og lengi langað til að
koma sér á framfæri, langað til að
segja frá og gefa af sér en fengu
ekki tækifæri af því þær voru ekki
að skrifa á íslensku eða hétu ekki
íslenskum nöfnum. Íslenskar bók-
menntir eru svo miklu meira en
bara það sem skrifað er á ís-
lensku.“
Anna segir að vel hafi gengið að
fá inn efni til birtingar. „Það hafa
verið meiriháttar forréttindi að fá
að lesa allt það efni sem kemur inn
og oft erfitt að velja og hafna,“ seg-
ir hún en bætir við að það hafi verið
tvísýnt fjárhagslega að halda útgáf-
unni gangandi. „Við sóttum um
nokkra styrki í fyrra en fengum
neikvæð svör, enda er erfitt að fá
styrki til að prenta eitthvað sem er
ekki bara á íslensku.“
Eins og getið er eru skáldverk á
átta tungumálum í öðru hefti Ós –
The Journal. Aðspurð hvernig
gengið hafi að finna ritstjóra að
verkum á svo ólíkum tungumálum
segir Anna að þær séu svo heppnar
að alltaf hafi tekist að finna aðstoð.
„Við erum fjórtán í ritstjórninni og
með mikla flóru af tungumálum
innan hennar og svo þekkir alltaf
einhver einhvern.“
Hægt er að kaupa hefti Ós
Pressunnar í Pennanum-Eymunds-
son, en einnig er hægt að kaupa
þau á vefsetri útgáfunnar,
www.ospressan.com/, og þar er ein-
mitt óskað eftir efni í næstu útgáfu.
Engin skilyrði
Í nýju hefti bókmenntatímaritsins Ós – The Journal birtast skáldverk á átta
tungumálum eftir þrjátíu og einn höfund sem allir tengjast Íslandi.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Fjórar af fjórtán aðstandendum, stofnendum og ritstjórum Ós Pressunnar:
Anna Valdís Kro, Beatriz Portugal, Randi W. Stebbins og Elena Ilkova.
Morgunblaðið/Eggert
Kastari LED á fæti 4230lm IP65
Kapal lengd: 5 m.
Kapalgerð: H07RN-F 3G1,0
Afl: 50 W.
Ljósmagn: 4230 Lm.
Litróf: 6500 K.
Orkunýtni: A+
LED ljóskastarar
Kapallengd: 5 metrar.
Kapalgerð: H07RN-F 3G1,0.
LED perur: 56 X 0,5W.
Ljósmagn: 2530 lm.
Litróf: 6500 K.
Orkunýttni A.
Kastari LED 2530lm IP54 Kastari LED 4750lm IP54
Léttir og nettir LED kastarar til notkunar innan sem utan dyra. Lár hiti frá ljósi og því
enginn skaði við snertingu. LED perurnar eru högg- og viðhaldsfríar. 50.000 klst. Kastari
úr húðuðum álramma. Hægt að halla ljósi í grind.
Kapallengd: 5 metrar.
Kapalgerð: H07RN-F 3G1,0.
LED perur: 98 X 0,5W.
Ljósmagn: 4750 lm.
Litróf: 6500 K.
Orkunýttni A+.
LED LJÓSKASTARAR
Í MIKLU ÚRVALI
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is