Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Page 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Page 37
11.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Kvikmyndir Michael B. Jordan var í stífri líkams- rækt í eitt og hálft ár með það að markmiði að vera í toppformi fyrir nýjustu kvikmynd úr smiðju Mar- vel, Black Panther. Jordan leikur þorparann Erik Kilmonger í myndinni. Í viðtali við blaðamenn á Evrópufrumsýningu myndarinnar í London á fimmtudaginn sagði Jordan að hann hefði verið mik- ið einn með sjálfum sér á þessu eina og hálfa ári sem hafi verið afar gott fyrir hann því persóna hans er einfari. Jordan sagði líka í viðtalinu að hann teldi að myndin myndi hafa mikil áhrif á ungt svart fólk um víðan heim og vera því hvatning þar sem nær öll aðalhlutverk myndarinnar eru í höndum blökku- manna. Þjálfaði í eitt og hálft ár Michael B. Jordan er þorparinn í nýj- ustu mynd Marvel. AFP Tónlist Liam Gallagher vandaði skipuleggj- andum Brit Awards ekki kveðjurnar á Twitt- er þar sem hann svaraði ýmsum spurningum aðdáenda sinna í svokköluðu „Q&A“. Sagði hann að í fyrstu hefðu skipuleggjendur viljað að hann yrði kynnir en á sama tíma neitað honum um að koma fram og flytja eigin tón- listaratriði á hátíðinni, þetta þætti honum fyrir neðan allar hellur. Ný plata Gallagher, As you Were, kom út í október á síðasta ári og er Gallagher til- nefndur til Brit Awards sem besti breski sólólistamaðurinn ásamt þeim Loyle Carner, Rag ‘n’ Bone Man, Stormzy og Ed Sheeran. Gallagher fúll á Twitter Liam Gallagher fékk smá útrás á Twitter. það var ekki til Troll 1. Búningarnir, tónlistin, handritið, þetta er dásam- lega slæmt. Búningar og gervi eru svo vond að þú getur í besta falli ímyndað þér að þau hafi verið fengin að láni frá úr sér gengnu öskudags- búningasafni af leikskóla. Svo er mjög líklegt að persónur skipti um skyrtur í miðju atriði án þess að þú sjáir það. Það er klippt og persónan í grænu skyrtunni er komin í eina bláa. Það eru þessi skemmtilegu smáatriði sem er gaman að fylgjast með, því alls staðar birtist fúsk. Hver einn og einasti leikari er vondur. Flestir sem leika aðal- hlutverk sóttu um aukahlutverk og eru ekki atvinnuleikarar en það er varla afsökun fyrir þeim furðuleik sem leikarar sýna.  Birdemic frá 2010 er oft talin upp sem ein af fimm verstu bíómyndum allra tíma. Raunar hafði handrits- höfundurinn og leikstjórinn James Nquyen háleit markmið en hann sótti innblásturs til Alfred Hitchcock og myndar hans The Birds frá 1963, eins besta spennutryllis allra tíma. Til að sýna hversu alvöru honum var nefndi hann meira að segja myndina Birdemic, Shock and Terror (áfall og hryllingur). Hængurinn var sá að galdurinn við mynd Hitchcock var að hann not- aði að megninu alvöru fugla við tök- ur sem gerði hana áhrifamikla. Ngu- yen notar tölvugrafík, ekki vandaða tölvugrafík heldur af ódýrari gerð- inni, svipaða og þú getur gert sjálfur á tölvunni heima hjá þér. Því er myndin afar ósannfærandi, hlægi- lega ósannfærandi og þar sem aðal- persónurnar forðast hægfara og skrýtna fugla sem gefa frá sér enn skrýtnari hljóð. Þessi mynd er veisla fyrir skopskynið, þegar það eina sem er hægt að gera er að hlæja. Best er að vara við því að í myndinni er mjög óþolandi stef spilað sem þú munt pottþétt fá á heilann! Ómissandi í bollurnar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.