Morgunblaðið - 20.03.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.03.2018, Qupperneq 1
 Meirihluti stjórnskipunar- og eft- irlitsnefndar Alþingis, eða fimm nefndarmenn af níu, bæði úr stjórn og stjórnarandstöðu, leggja til að frumvarp um lækkun kosningaald- urs í sveitarstjórnarkosningum úr 18 árum í 16 verði afgreitt sem lög á yfirstandandi þingi. Kjörgengi verði þó áfram takmarkað við 18 ára aldur. Ef lækkun kosningaaldurs verð- ur lögfest telur meirihlutinn að ekkert sé því til fyrirstöðu að unnt sé að hrinda breytingunni í fram- kvæmd tímanlega fyrir sumarið svo 16 og 17 ára einstaklingar geti neytt kosningaréttar síns í sveitar- stjórnarkosningunum 26. maí. Það er um helmingur síðasta árgangs grunnskólanema og leggja nefnd- armenn til að komið verði á fræðslu fyrir þennan hóp í samráði við um- boðsmann barna. omfr@mbl.is »18 Vilja lækka kosn- ingaaldur í 16 ár fyr- ir kosningar í vor Þ R I Ð J U D A G U R 2 0. M A R S 2 0 1 8 Stofnað 1913  67. tölublað  106. árgangur  ÓLÍKIR MENN- INGARHEIMAR MÆTAST Á HM MÚSÍKTILRAUNIR FLUGTAK FLJÚGANDI BÍLA Í GENF LUNGAMJÚKT, HÆTTULEGT 38 SÉRBLAÐ UM BÍLA 00VÍÐIR REYNISSON 12 Ekki er eftir miklum tekjum að slægjast í rekstri smáverslana olíu- félaganna. Þetta er mat Snorra Jak- obssonar, ráðgjafa hjá Capacent, eft- ir athugun á síðasta ársreikningi olíufélagsins Skeljungs. Olíufélögin reka smáverslanir á stöðvum sínum um land allt. Snorri bendir á að N1 sé að kaupa Festi sem rekur m.a. Krónuverslan- irnar og Skeljungur að kaupa net- verslunina Wedo sem rekur Hóp- kaup, Heimkaup og Bland. Þannig reyni þessi tvö fyrirtæki að laga sig að breyttum aðstæðum á markaði. „Skeljungur fær 130 milljónir króna í hreinar leigutekjur fyrir 10/ 11-verslanirnar. Það sýnir svart á hvítu hve litlu þessi rekstur skilar til olíufélaganna og það má yfirfæra þetta á hin félögin einnig,“ segir Snorri í samtali við Morgunblaðið. „Það er einfaldlega ekki eftir mikl- um tekjum að slægjast í þessum sjoppurekstri,“ segir hann. Snorri veltir fyrir sér í þessu samhengi hver sé framtíðarsýn olíufélaganna nú þegar tímar jarðefnaeldsneytisins sem orkugjafa fyrir ökutæki séu senn að líða. »16 Sjoppurekstur skilar litlu  Litlar tekjur eru af smáverslunum olíufélaganna Morgunblaðið/Júlíus Olíufélögin Þau þurfa að marka sér stefnu til frambúðar. Vorjafndægur verða í dag, nákvæmlega klukkan 16.15. Um þetta leyti er dagurinn um það bil jafnlangur nóttinni hvar sem er á jörðinni, og af því er nafnið dregið, segir á Stjörnufræði- vefnum. Veðurblíðan að undanförnu minnir á að vorið er líka framundan. Hafa verktakar nýtt sér hlýindin og stilluna óspart eins og þessir sem voru að gera við malbik á gatnamótum Vonar- strætis og Suðurgötu í gær. Gert við malbik á götum borgarinnar í veðurblíðu Morgunblaðið/Hari Vorjafndægur í dag og vor í lofti  Gunnþór Ingvason, framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað, áætlar að útflutningsverðmæti afurða úr 186 þúsund tonna loðnu- kvóta íslenskra skipa á vertíðinni geti numið um 13 milljörðum króna. Verð- mæti úr afla norskra og grænlenskra skipa, sem landað var hér á landi, koma til viðbótar og gætu numið 3-4 milljörðum. Hoffellið SU frá Fáskrúðsfirði er eitt skipa enn á loðnuveiðum og var á Húnaflóa í gær. Bergur Einarsson skipstjóri segir að þar hafi verið mikl- ar lóðningar, en loðnan lá við botninn. Þeir fengu þó um 150 tonn af góðri loðnu í fyrsta kastinu. Önnur skip hafa lokið loðnuvertíð og eru flest á kolmunna vestur af Írlandi. »15 Lokametrar 13 millj- arða loðnuvertíðar Nemendur í Fjölbrautaskóla Suður- nesja ráða sjálfir hversu mikið þeir mæta í skólann upp að vissu marki. Ef fjarvistir fara yfir það er litið svo á að nemandi hafi sagt sig úr nám- inu. Þetta segir Kristján Ásmunds- son, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Nemendur geta verið frá skóla í allt að þrjár vikur á önn án þess að vera vísað úr áfanga. Í próflausum áföngum eru stífari mætingareglur. Ákvörðun um breytta mætingar- skyldu kom til vegna misnotkunar nemenda á læknisvottorðum en dæmi eru um það að nemendur hafi skilað læknisvottorðum þá daga sem þeir voru á ferðalagi erlendis. Kristján segir að slíkt nái ekki nokkurri átt og ekki sé hægt að vé- fengja læknisvottorð. Hann segir að mæting sé nú á valdi nemenda og þeir ráði sjálfir hvenær þeir mæti í skólann. Á sama tíma sé það alfarið í þeirra höndum að standast mæting- arkröfur til þess eiga rétt á að halda áfram í áföngum. Kristján segir að atvinnurekendur kanni í auknum mæli mætingu nemenda í skólann og það sé betra að vera ábyrgur. »4 Nemendur stjórna mætingu í skólann Baldur Arnarson baldura@mbl.is Árni Bragason landgræðslustjóri segir það rétt sem komið hefur fram að samstarfið mætti vera betra inn- an loftslagshreyfingarinnar. Hart sé tekist á um takmarkaða fjármuni. „Ákveðinn hópur fólks hefur gert lítið úr verkefnum annarra. Afstaða Landgræðslunnar hefur verið sú að okkur veiti ekkert af að vinna á mörgum vígstöðvum. Ég tek ekki þátt í að níða niður verk annarra. Það er ekki minn stíll,“ segir Árni. Fylgir ekki eigin tilmælum Reynir Kristinsson, stjórnarfor- maður Kolviðar, segir umhverfis- ráðuneytið hafa afþakkað að láta kolefnisjafna ríkisstofnanir. Það kosti aðeins 15-20 milljónir. „Ríkið leggur hart að fyrirtækjum að kolefnisjafna sig en gerir það ekki sjálft,“ segir Reynir. Til að setja þessar tölur í samhengi er áætlað að tekjur ríkissjóðs af kolefnisgjaldi verði 5,6 milljarðar í ár. Það eru vel á þriðja tug milljarða á kjörtímabilinu. Stefna stjórnvalda er að Ísland verði kolefnishlutlaust árið 2040. Átök í loftslagsmálunum  Landgræðslustjóri segir barist um fé  Ráðuneyti sagt afþakka kolefnisjöfnun MÓeining » … 6 Hagsmunir skarast » Deilurnar varða m.a. hvort leggja beri áherslu á endur- heimt votlendis eða skóg- rækt til að binda koldíoxíð. » Á meðan eykst losun þess.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.