Morgunblaðið - 20.03.2018, Page 2

Morgunblaðið - 20.03.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrir VOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við Hafþór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Gagnlegur og góður fundur  Katrín Jakobsdóttir fundaði með Merkel kanslara  Langt og farsælt samstarf  Óskaði aðstoðar við leit að Hauki Hilmarssyni  Haukur ekki í haldi Tyrkja Arnar Þór Ingólfsson Guðrún Erlingsdóttir Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir að fundur hennar og Angelu Merkel, kanslara Þýska- lands, í gær hafi verið gagnlegur, góður og skemmtilegur. Þær hafi farið vítt yfir sviðið en Þýskaland og Ísland eigi langa sögu um gott sam- starf. Katrín sagði á blaðamannafundi sem haldinn var í Berlín að þjóðirnar tvær deildu sömu sýn þegar kæmi að virðingu fyrir frelsi og lýðræði, mannréttindum og réttaröryggi. Þær hefðu einnig sömu sýn á jafn- rétti kynjanna og hélt Katrín erindi síðdegis í gær um þau mál. Katrín sagði á blaðamannafundin- um að jafnrétti kynjanna hefði skip- að stórt hlutverk í stjórnmálum á Ís- landi undanfarin ár og það væri áhugverð þróun í gangi í þeim mála- flokki á Íslandi. Til þess að sýna hversu mikið Ís- lendingar meta samstarfið við Þjóð- verja var sendiráðið í Berlín valið sem eitt af tveimur sendiráðum til þess að taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni 100 ára afmælis fullveldis á Ís- landi. Að sögn Katrínar nær samvinna Þýskalands og Íslands langt aftur og þá sérstaklega í tengslum við bók- menntir. Katrín fagnaði því að hitta Merkel í Berlín og sagði borgina hafa aðdráttarafl fyrir unga Íslendinga sem þar byggju og sæktu sér inn- blástur í verk sín. Hún sagði einnig að það hefði skipt Íslendinga sem menningarþjóð miklu máli að hafa verið heiðursgestir á bókamessunni í Frankfurt árið 2011. Aðstoð við leit að Hauki Í samtali mbl.is við Katrínu kom fram að hún hefði óskað eftir því að íslenskir embættismenn mættu leita liðsinnis þýskra kollega sinna varð- andi leitina að Hauki Hilmarssyni sem sagður er hafa fallið í árás tyrk- neska hersins í Afrín-héraði í Sýr- landi. RÚV greindi frá því í gærkvöld og hafði eftir utanríkisráðuneytinu að varnarmálaráðherra Tyrklands, Nurettin Canikli, hefði í gær staðfest við Guðlaug Þór Þórðarson utanrík- isráðherra að Haukur Hilmarsson væri ekki í haldi tyrkneskra stjórn- valda. Canikli sagði Guðlaugi að tyrknesk stjórnvöld hefðu engar upplýsingar um afdrif Hauks en að tyrkneski herinn myndi liðsinna ís- lenskum stjórnvöldum í eftirgrennsl- an þeirra eftir Hauki. AFP Forystukonur Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tók vel á móti Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra Íslands, er þær funduðu í Berlín í gær. AFP Ólík tungumál Merkel hlustar á þýska túlkun á ræðu Katrínar, sem hún flutti á ensku, á blaðamannafundi sem forystukonurnar héldu í Berlín. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ekki liggur fyrir hvort hrefnuveiðar verða stundaðar í sumar af hálfu IP- útgerðar. Fyrirtækið hefur rætt ákvörðun um lokun veiðisvæða í Faxaflóa við Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra og skrifað ráðuneytinu vegna málsins. Gunnar Bergmann Jónsson, fram- kvæmdastjóri IP-útgerðar, segir að með því að draga línu þvert yfir Faxaflóa hafi síðasti sjávarútvegs- ráðherra, Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, lokað svæði þar sem 82,3% af veiddum hrefnum fengust á síð- ustu 10 árum. Gunnar segir ákvörð- un um lokun Faxaflóa mjög bagalega fyrir hrefnuveiðimenn. Á þessari stundu viti þeir ekki hvort breyting verði á lokun á utanverðum Faxaflóa eins og þeir hafi eindregið óskað eft- ir. Í fyrra voru tveir bátar með leyfi til hrefnuveiða og voru Hrafnreyður KÓ og Rokkarinn KE gerðir út á þessar veiðar hluta sumars. Aðeins veiddust 17 hrefnur, flestar í Faxa- flóa, en nokkrar í Húnaflóa, og voru það mun færri hrefnur en árin á und- an. Aflinn var verkaður hjá fyrirtæk- inu í Hafnarfirði. Ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar fyrir þetta fisk- veiðiár er að hámarki 224 dýr. Fyrirtækið hefur flutt inn tæplega tvö tonn af hrefnukjöti frá Noregi og verður það á boðstólum í veitinga- húsum á næstunni. Gunnar segir óvíst hvort það verði jafnframt til sölu í verslunum. Kvótaaukning í Noregi þrátt fyrir minni veiðar Í Noregi var nýlega ákveðið að miða hámark í hrefnuveiðum við 1.278 dýr í ár. Í fyrra var kvótinn 999 hrefnur, en af honum veiddust aðeins 432 dýr og hefur aflinn dreg- ist saman síðustu þrjú ár. Ellefu skip stunduðu þessar veiðar innan norskrar lögsögu í fyrra, en þau voru 20 árið 2015. Þegar greint var frá hrefnukvóta Norðmanna í ár kom fram að talið væri að meira en 100 þúsund hrefnur væru í norskri lögsögu. Óvissa um hrefnuveiðar  Takmarkanir á veiðum í Faxaflóa setja strik í reikninginn  Hrefnukjöt flutt inn frá Noregi til sölu í veitingahúsum Fulltrúar Rithöfundasamband Ís- lands og Félags íslenskra bókaútgef- enda hafa fundað að undanförnu vegna deilu þeirra um hver hafi rétt til að framselja verk íslenskra höfunda til hljóð- og rafbókaáskriftarveitunnar Storytel. Sigríður Rut Jónsdóttir, lög- maður Rithöfundasambands Íslands, segir að ekki sé komin lending í málið. „Það er verið að skoða þetta með útgefendum og ekki hægt að segja neitt meira en það í bili,“ segir Sigríð- ur. Hún telur líklegt að deiluaðilar verði komnir nær niðurstöðu eftir páska. Morgunblaðið greindi frá því í síð- asta mánuði að fjöldi íslenskra höf- unda óskaði eftir því að bækur þeirra yrðu fjarlægðar af síðu áskriftarveit- unnar. Reiði ríkti meðal rithöfunda þegar málið kom upp og telja margir rithöfundar að sala á verkum þeirra til áskriftarveitna sé brot á útgáfu- samningum höfunda. Í febrúar sendi Sigríður Rut Félagi íslenskra bóka- útgefenda og Storytel bréf þar sem krafist var að allar bækur íslenskra höfunda á vef Storytel sem ekki hefði fengist heimild frá höfundunum til að birta þar skyldu fjarlægðar. mhj@mbl.is Fundað um hljóð- bækur  Deila rithöfunda við Storytel óleyst Ekki var unnt að leggja fram tillögu um ríkisfjármálaáætlun á Alþingi í dag eins og gert hafði verið ráð fyrir í starfsáætlun þingsins. „Okkur ber að skila fjármála- áætlun fyrir 1. apríl sem er páskadag- ur. Ríkisfjármálaáætlun er stefnu- markandi skjal fyrir allt stjórnar- samstarfið og þetta er fyrsta fimm ára áætlunin. Það tekur tíma að ganga frá og prenta áætlunina,“ segir Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra. Hann segir að ágætis samstaða hafi verið um áætlunina og stefnt sé að því að kynna hana 4. apríl. Stjórnarandstaðan mótmælti því á þingfundi í gær að fjármálaáætlun yrði ekki lögð fram fyrir tilskilinn tíma og það hefði verið einhliða til- kynnt af fjármálaráðherra að ekki yrði farið að lögum. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, sagði framlagninguna frestast um einn virkan vinnudag en hann mundi ræða við fjármálaráðherra. ge@mbl.is Fjármálaáætl- un ekki á tíma

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.