Morgunblaðið - 20.03.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 20.03.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 fyrir öll tölvurými og skrifstofur Rafstjórn tekur út og þjónustar kæli- og loftræstikerfi Kæling Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Verð frá kr. 181.890 m/vsk Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þorsteinn R. Hermannsson, sam- göngustjóri Reykjavíkur, segir borgina munu ræða við aðila sem sóttu útboðsgögn vegna strætó- skýla. Reynt verði að semja við þá aðila áður en efnt verður til annars útboðs á Evrópska efna- hagssvæðinu. „Kannski neyðumst við til að endurtaka út- boðið. Við von- umst þó til að geta samið á grundvelli þessa útboðs. Nokkrir að- ilar hafa haft samband sem ætluðu að bjóða og eru að skoða málið,“ seg- ir Þorsteinn. Boðin voru út að lág- marki 210 skýli en að hámarki 400. Þá mátti setja upp að hámarki 50 auglýsingastanda. Þeir eru m.a. á Hlemmi. Samningurinn átti að taka gildi í sumar og gilda til ársins 2033. Fram kom í Morgunblaðinu á laugardag að engin tilboð bárust. Þá sagði Einar Hermannsson, fram- kvæmdastjóri AFA JCDecaux á Íslandi, að borgin hefði vanmetið kostnaðinn af skýlunum. Spurður um þetta sjónarmið segir Þorsteinn borgina vera að fjölga skýlum og auglýsingastöndum. Skapar nýja tekjumöguleika „Við erum að fjölga auglýsinga- flötum. Þannig að á móti kostnaði við að fjölga skýlum opnast auknir tekjumöguleikar. Viðkomandi fyrir- tæki mun fá a.m.k. 210 strætóskýli til að auglýsa á í stað um 150 nú og 50 auglýsingastanda í stað 40 áður. Við litum svo á að tekjumöguleikarnir væru að aukast á móti auknum kostnaði,“ segir Þorsteinn. AFA JCDecaux á Íslandi rekur grænu strætóskýlin í borginni. Við- haldskostnaður hefur verið töluverð- ur, m.a. vegna skemmdarverka. Samkvæmt útboðinu áttu um 50 af 210-400 biðskýlum að hafa upplýs- ingaskjái með rauntímaupplýsing- um. Var hugmyndin sú að farþegar sæju a.m.k. hvaða tveir vagnar væru næstir í röðinni og hver biðtími væri. Vildu nútímavæða kerfið Þorsteinn segir aðspurður að borgin kunni að hafa vanmetið tjóna- kostnað vegna slíkra tölvuskjáa. „Við vildum reyna að nútímavæða almenningssamgöngurnar með þessu útboði og gefa meiri upplýs- ingar til farþega. Það má vel vera að mönnum hrjósi hugur við því og telji kerfið dýrt í uppsetningu og ekki síð- ur í rekstri,“ segir Þorsteinn. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Við Lækjartorg Borgin leitaði tilboða í ný og tæknivæddari strætóskýli. Vilja komast hjá öðru útboði  Borgin undirbýr viðræður um rekstur hundruð strætóskýla á grunni útboðs  Enginn bauð í reksturinn  Samgöngustjóri segir kostnaðinn e.t.v. vanmetinn Þorsteinn R. Hermannsson Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ákveðið var að breyta skólasóknar- reglum Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS) um síðustu áramót með það að markmiði að nemendur tækju meiri ábyrgð á eigin námi. Kristján Ás- mundsson skólameistari segir að ákveðið hafi verið að prófa nýjar leiðir, m.a. vegna neikvæðra sam- skipta við nemendur og foreldra út af mætingu. „Nemandinn ræður sjálfur hversu mikið hann mætir upp að vissu marki, ef fjarvistir verða meiri en það er litið svo á að hann hafi sagt sig úr námi. Mætingar- einkunnin á að endurspegla viðveru nemenda í tímum,“ segir Kristján. Nemendur FS geta verið frá í allt að þrjár vikur án þess að detta út úr skóla. „Það er miðað við 12 fjarvistir í áfanga sem er kenndur fjóra tíma á viku, nemanda er vísað úr áfanga ef fjarvistirnar fara yfir það. Í áfanga sem kenndur er þrisvar í viku mega fjarvistir ekki fara yfir níu. Í próflausum áfanga eru stífari mætingarreglur, þá fer námsmatið fram í tímanum og nem- andinn þarf að vera til staðar. Mætingin er á ábyrgð nemenda og hann verður að passa að detta ekki út úr áföngum,“ segir Kristján og bætir við að auðvitað sé komið til móts við langveika nemendur. Þarf ekki lengur læknisvottorð Kristján segir að ákveðið hafi verið að breyta mætingarreglunum vegna leiks nemenda með læknis- vottorð. „Nemendur fóru í ferðalög til útlanda og fengu vottorð hjá lækni þegar þeir komu heim og sögðust hafa verið veikir í þennan tíma. Það nær ekki nokkurri átt. Við vorum að fá vottorð frá þeim sem voru komnir í vandræði með mætinguna þar sem voru taldir upp dagar yfir önnina, allt að tvo mán- uði aftur í tímann, þar sem nem- andinn var sagður hafa verið veik- ur. Við vitum að það er ekki eðlilegt en við getum ekki véfengt læknisvottorð. Því ákváðum við að nemandinn mætti ráða þessu sjálf- ur, núna veit hann hvað hann má vera mikið fjarverandi án þess að vera talinn hættur í áfanganum.“ Kristján fundaði með læknum á heilsugæslunni fyrir nokkrum árum út af vottorðunum og voru allir sammála um að það þyrfti að breyta þessu. Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá því að Heilsu- gæsla höfuðborgarsvæðisins hefði farið þess á leit við framhaldsskóla að þeir sniðu mætingarreglur sínar með þeim hætti að heimsóknum á heilsugæslustöðvar vegna læknis- vottorða fækkaði. Skiptir máli á vinnumarkaði Kristján vonast til að þessi breyting á mætingarskyldu verði til þess að nemandinn fari fyrst og fremst að bera ábyrgð á eigin námi. „Núna endurspeglar mætingar- einkunn viðveru í tíma og nemand- inn þarf að gera það upp við sig hver hún á að vera. Atvinnurek- endur eru í auknum mæli farnir að kanna hversu vel nemendur mæta í skólann. Við höfum boðist til að gefa út mætingarvottorð að vori svo þau geti sýnt hversu vel þau hafa mætt þegar þau sækja um vinnu og þá er betra að hafa verið ábyrgur.“ Mætingin og námið sett meira í hendur nemenda  Skólasóknarreglum breytt í Fjölbrautaskóla Suðurnesja Morgunblaðið/Þórður Skóli Nemendur FS geta ekki mætt með vottorð vegna gamalla fjarvista.Áskorun stjórnar VR um að almennt starfsfólk bensínstöðvarisans N1 fengi launahækkanir til sam- ræmis við hækkun launa forstjóra félagsins, Egg- erts Þórs Kristóferssonar, var felld með miklum meirihluta á aðalfundi félagsins sem fór fram nú síðdegis. Hart hefur verið deilt á N1 eftir að í ljós kom að mánaðarlaun forstjórans höfðu hækkað um eina milljón. Fram kom í máli Margrétar Guð- mundsdóttur stjórnarformanns að launahækkunin væri vegna kaupaukasamnings á grundvelli starfs- kjarastefnu félagsins. Hækkunin ætti því ekki að hafa komið hluthöfum á óvart. Tillaga VR á aðalfundi N1 felld Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Launahækkun vegna kaupaukasamnings „Nokkur árang- ur náðist á fund- inum þó að ekki sé kannski hægt að tala um straumhvörf í því samhengi,“ sagði Guðríður Arnar- dóttir, formaður Félags fram- haldsskólakenn- ara (FF), að af- loknum sáttafundi með samninga- nefnd ríkisins (SNR) í gær. Kjaradeilunni var vísað til ríkis- sáttasemjara hinn 21. nóvember sl. „Segja má að það sem helst ber á milli samningsaðila nú sé að stærst- um hluta pólitískt úrlausnarefni sem snýr að virkni vinnumats fram- haldsskólakennara sem komið var á 2014 og hvernig það og reiknilíkan framhaldsskólanna getur stutt við nemendur og fjölbreytt skólastarf,“ segir Guðríður um stöðuna. Nokkur árangur náðist á sáttafundi Guðríður Arnardóttir Lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu hefur fengið dóm- kvaddan sálfræð- ing til að fram- kvæma sálfræði- mat á þroska og heilbrigðisástandi stuðningsfulltrúa sem er grunaður um kynferðisbrot gegn börnum. Þetta kemur fram í úrskurði Hér- aðsdóms Reykjaness frá því fyrr í þessum mánuði. Landsréttur hefur staðfest úrskurðinn en í honum kemur fram að hafnað er kröfu verjanda stuðningsfulltrúans þess efnis að lögreglunni væri óheimilt að afhenda dómkvöddum mats- manni allar kæruskýrslur brota- þola ásamt öllum lögregluskýrslum sem hafa verið teknar af stuðnings- fulltrúanum. „Var úrlausnarefni matsmanns að leggja mat á kynferðislegar langanir og hvatir matsandlagsins í ljósi rannsóknar lögreglu á meint- um kynferðisbrotum hans gegn börnum,“ sagði í úrskurði Héraðs- dóms Reykjaness. Stuðnings- fulltrúi í sálfræðimat

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.