Morgunblaðið - 20.03.2018, Page 6

Morgunblaðið - 20.03.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Eru sparifötin hrein? Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Minjastofnun hefur úthlutað 2,5 milljónum króna til viðgerða á Ak- ureyrarkirkju, en setja þarf nýja steiningu á suður- og austurhlið hennar eftir skemmdarverk sem unnin voru á guðshúsinu að nætur- lagi 4. janúar á síðastu ári. Þá fór spellvirki með úðabrúsa á fjórar kirkjur í bænum og ritaði þar skila- boð sem lýstu andúð á trúarbrögð- um, auk þess sem þar var að finna heimspekitexta og tákn. Lítið mál var að afmá krotið af Glerárkirkju, kirkju Hvítasunnu- safnaðarins og Péturskirkju, kirkju kaþólska safnaðarins, en í Akureyr- arkirkju smaug liturinn inn í stein- kápuna og ómögulegt er að verka hann upp þótt lítið eitt hafi verið hreinsað burt. Því þarf að leggja nýja klæðningu sem talið er að muni kosta 12-16 millj. kr, að sögn Ólafs Rúnar Ólafssonar, formanns sóknar- nefndar. Framlagið úr Húsafriðun- arsjóði kemur því málinu nokkuð af stað. Tryggingar ná hins vegar ekki til spellvirkja eins og þessa. „Utan framlagið frá Húsafriðunarsjóði er þetta alveg á kostnað sóknarinnar, en við höfum auðvitað allar klær úti til þess að afla styrkja annarsstaðar í þessa mikil- vægu viðgerð,“ segir sr. Svavar Al- freð Jónsson sóknarprestur á Akur- eyri. Hann bætir við að í raun sé engar undankomu auðið hvað við- gerð áhrærir, því Akureyrarkirkja sé friðuð bygging og því þurfi ástand hennar og útlit að vera í lagi. Ný steinkápa á kirkjuna eftir skemmdarverk Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Spellvirki Svona leit Akureyrarkirkja út eftir að úðað hafði verið á fram- hlið hennar í janúar á sl. ári. Kostnaðarsöm viðgerð er framundan.  Akureyrarkirkja fær 2,5 millj. kr. frá Minjastofnun Um helmingur matvæla stóðst ekki kröfur í rannsókn um nær- ingar- og heilsufullyrðingar á mat- vörum og fæðubótarefnum. Mat- vælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga rannsökuðu 40 mis- munandi matvörur og fæðubót- arefni frá 18 fyrirtækjum, með samtals 66 fullyrðingum. Niður- stöður voru þær að af 66 fullyrð- ingum var 31 í lagi (47%) en 35 voru ekki í lagi (53%). Fæðubót- arefni skáru sig nokkuð úr hvað varðar fjölda af óleyfilegum full- yrðingum. Þar voru 16 af 19 full- yrðingum óleyfilegar eða 84%. Ef teknar eru saman niðurstöður fyr- ir alla flokka án fæðubótarefna var útkoman sú að af 47 fullyrð- ingum voru 28 (60%) í lagi en 19 (40%) ekki í lagi. Samkvæmt Mat- vælastofnun hafa vörurnar nú ver- ið endurmerktar. Aðrar vörur sem skoðaðar voru heyrðu undir eft- irlit heilbrigðiseftirlits sveitarfé- laga og er eftirfylgni í þeim mál- um í höndum hlutaðeigandi heilbrigðiseftirlits. Þörf á bættu verklagi Í fréttatilkynningu frá Mat- vælastofnun er tekið fram að úr- takið sé lítið og því gefa niður- stöður takmarkaða mynd en ljóst er að matvælaframleiðendur og innflytjendur þurfa að bæta verk- lag sitt við notkun næringar- og heilsufullyrðinga til að matvörur þeirra uppfylli reglur. mhj@mbl.is Helmingur matvæla stóðst ekki kröfur Baldur Arnarson baldura@mbl.is Takmarkaðir fjármunir, skortur á heildstæðri stefnu um landnýtingu og innbyrðis barátta um fjármagn eiga þátt í að árangur Íslands í loftslags- málum er undir væntingum. Um þetta eru viðmælendur blaðs- ins í umhverfisgeiranum sammála. Tilefnið er vinnustofa um loftslags- mál á vegum Toyota á Íslandi sl. föstudag. Sagt var frá henni í Morgunblaðinu á laugardaginn var. Var rauði þráðurinn í umræðunum sá að hægt miðaði í loftslagsmálum. Tveir viðmælendur blaðsins sem starfa að loftslagsmálum ræddu við Morgunblaðið í trausti nafnleyndar. Skortur á heildrænni stefnu Annar sagði skorta heildræna stefnu um nýtingu lands. Til dæmis dugi skógrækt á framræstu landi skammt við bindingu kolefnis. Mikið koldíoxíð losni enda úr jarðlögum í framræstu landi. Þá sé hart tekist á um hvaða trjátegundir á að gróður- setja á Íslandi. Sá ágreiningur sundri mönnum. Hinn viðmælandinn sagði orðið brýnt að stokka upp stofnanir í umhverfismálum. „Menn eru hræddir um að ef ein stofnun fær x fjármagn muni hin ekki fá neitt. Menn telja fjármunum best varið hjá sér. Þetta er hugsun um eig- in skinn en ekki sameiginlegt átak og nána samvinnu. Eitt vandamálið er fjöldi stofnana sem á hlut að máli. Það fer svo mikill tími í að fara milli stofn- ana,“ sagði viðmælandinn. Til upprifjunar er það yfirlýst stefna stjórnvalda að Ísland verði kolefnishlutlaust samfélag ekki seinna en 2040. Þvert á það markmið hefur losun aukist síðustu ár. Ættu að vinna betur saman Árni Bragason landgræðslustjóri sat vinnustofuna á föstudaginn var. Hann telur of djúpt í árinni tekið að segja að loftslagshreyfingin sé sundr- uð. „Ég tel að það sé aðeins orðum aukið en menn mættu vinna betur saman. Ákveðinn hópur fólks hefur gert lítið úr verkefnum annarra. Af- staða Landgræðslunnar hefur verið sú að okkur veiti ekkert af að vinna á mörgum vígstöðvum. Ég tek ekki þátt í að níða niður verk annarra. Það er ekki minn stíll.“ Árni bendir svo á að stofnanir sem koma að umhverfismálum hafi fengið meiri fjárveitingar fyrir efnahags- hrunið. Skilaboð stjórnvalda eftir hrun hafi verið að halda í starfsfólkið. „Þótt tækjabúnaðurinn sé farinn að slappast höfum við innviði til að gera miklu meira. Landgræðslan vann til dæmis með 499 bændum að uppgræðslu í fyrra. Það vantar fjár- magn til að kaupa meiri áburð og framleiða fleiri plöntur,“ segir Árni. Árni segir loftslagsmálin svo viða- mikil að ekki sé hægt að ætlast til þess að stjórnvöld komi þar ein að verki. Virkja þurfi einkaframtakið. Því fagni hann framtaki Toyota. Votlendissjóðurinn mikilvægur Með stuðningi einkafyrirtækja við Votlendissjóðinn verði stuðlað að endurheimt votlendis. Það sé mikils- verður liður í að kolefnisjafna Ísland. „Slík verkefni höfða til samfélags- legrar ábyrgðar. Fjöldi góðra fyrir- tækja hyggst styrkja sjóðinn. Við getum ekki bara bent á stjórnvöld og sagt að þau eigi ein að taka á þessum málum,“ segir Árni. Hann segir verkefni á einu sviði ekki þurfa að útiloka önnur. Þegar Landgræðslan hafi til dæmis grætt upp sanda sé hægt að rækta tún eða akra. Þá þurfi ekki að ræsa fram nýtt land og þannig sé votlendinu hlíft. Kolviður býður upp á að kolefnis- jafna losun gróðurhúsalofttegunda í gegnum skógrækt á Íslandi. Reynir Kristinsson, stjórnarfor- maður Kolviðar, segir umhverfis- ráðuneytið hafa afþakkað að láta kol- efnisjafna ríkisstofnanir. Hann segir að fyrir hrun hafi ríkið verið leiðandi í styrkjum til Kolviðar. Nú hafi dæmið snúist við og einkaaðilar tekið við. „Við myndum vilja sjá ríkisstofn- anir kolefnisjafna eldsneytiskaup og flug starfsmanna. Það kostar aðeins um 15-20 milljónir. Ríkið leggur hart að fyrirtækjum að kolefnisjafna sig en gerir það ekki sjálft,“ segir hann. Óeining veikir slagkraft loftslagshreyfingarinnar  Landgræðslustjóri hvetur til samstöðu  Ráðuneyti afþakkar kolefnisjöfnun Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Landgræðsla á söndunum Fræjum safnað úr melgresi á Mýrdalssandi. Formannaráð BSRB skorar á at- vinnurekendur að taka næstu skref í tengslum við #metoo-byltinguna. Þetta var niðurstaða fundar ráðsins í gær. „Fyrstu viðbrögð vinnustaða eftir að #metoo-byltingin hófst voru að innleiða áætlanir í samræmi við lagaskyldu og er það vel, en það ræðst ekki að rótum þessarar mein- semdar. Þær má rekja til valda og valdaójafnvægis,“ segir í tilkynning- unni. „Góð stjórnun og markviss samþætting jafnréttissjónarmiða með sérstakri áherslu á að uppræta valdamisræmi í hvers kyns ákvörð- unartöku er lykillinn að því að aldrei þurfi nokkur að segja aftur #metoo. Formannaráð BSRB skorar því á at- vinnurekendur að taka næsta skref með athugun á vinnumenningu og greiningu á völdum og valdastöðu.“ LjósmyndGetty Images Taki næstu skref í #metoo Áskorun Formannaráð BSRB skorar á atvinnurekendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.