Morgunblaðið - 20.03.2018, Side 8

Morgunblaðið - 20.03.2018, Side 8
Röng mynd Í grein um samræmd próf sem birtist í Sunnudagsblaði Morgun- blaðsins um helgina var með- al annars spjall- að við Helgu Birgisdóttur kennara. Mynd af nöfnu hennar, Kristínu Helgu Birgisdóttur, birtist hins veg- ar með greininni og eru hlutaðeig- endur beðnir velvirðingar á því. Rétt mynd af Helgu er látin fylgja hér. Ekki nýtt starf Fram kom í frétt Morgunblaðs- ins í gær, um auglýsingu um starf aðstoðarmanns landlæknis, að um nýtt starf væri að ræða. Svo er ekki, starfið hefur verið til um nokkurt skeið og er ástæða þess að það er auglýst til umsóknar sú að núverandi aðstoðarmaður land- læknis er að láta af störfum. LEIÐRÉTT 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 Af einhverjum ástæðum sá HelgiHrafn Gunnarsson pírati ástæðu til að spyrja Sigríði And- ersen dómsmálaráðherra út í skoðun hennar á því að „smávægileg fíkni- efnabrot“ fari ekki á sakaskrá. Sagði Helgi Hrafn það geta þvælst fyrir fólki sem gerð- ist sekt um „smá- vægileg fíkniefna- brot að það færi á sakaskrá“. Þetta þyrfti að afnema.    Dómsmálaráð-herra sagði í svari sínu að það væri að vísu ríkis- saksóknari sem tæki ákvörðun um upplýs- ingar á sakaskrá.    En dóms-málaráðherra bætti því við að það væri reyndar hennar afstaða að öll brot, ef þau væru á annað borð sönnuð og dæmd, ættu heima á sakaskrá.    Svo nefndi hún að það væri annaðmál hvaða upplýsingar væru opinberar úr sakaskránni.    Viðbrögð píratans voru þau aðlýsa því yfir að hann væri „pínu hneykslaður“ og að svarið væri hon- um „mikil vonbrigði“.    Dómsmálaráðherra spurði hinsvegar á móti hvers vegna taka ætti fíkniefnabrot sérstaklega út af sakaskrá. Og hún spurði hvað væri með önnur brot, „smávægilega þjófnaði eða smávægilegt ofbeldi?“.    Hvað ætli píratanum finnist umþað? Er allt í lagi að stela smá og lemja smá? Og ef ekki, hvers vegna vill píratinn endilega að fíkni- efnabrot njóti einhverrar sér- meðferðar á sakaskrá? Sigríður Á. Andersen Hvers vegna bara þessi brot? STAKSTEINAR Helgi Hrafn Gunnarsson Veður víða um heim 19.3., kl. 18.00 Reykjavík 6 rigning Bolungarvík 7 alskýjað Akureyri 7 skýjað Nuuk 8 léttskýjað Þórshöfn 7 léttskýjað Ósló 1 léttskýjað Kaupmannahöfn 1 heiðskírt Stokkhólmur 0 léttskýjað Helsinki 1 skýjað Lúxemborg 0 heiðskírt Brussel 2 heiðskírt Dublin 5 léttskýjað Glasgow 6 heiðskírt London 3 skýjað París 0 alskýjað Amsterdam 2 heiðskírt Hamborg 3 heiðskírt Berlín 3 heiðskírt Vín -1 snjókoma Moskva -1 heiðskírt Algarve 16 léttskýjað Madríd 7 skúrir Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 15 léttskýjað Róm 11 léttskýjað Aþena 16 skýjað Winnipeg -5 skýjað Montreal -9 heiðskírt New York 4 heiðskírt Chicago 5 skýjað Orlando 21 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 20. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:28 19:43 ÍSAFJÖRÐUR 7:33 19:49 SIGLUFJÖRÐUR 7:16 19:32 DJÚPIVOGUR 6:58 19:13 Aðeins bárust tvö tilboð í byggingu nýs vallarhúss fyrir ÍR í Mjóddinni. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að hafna báðum tilboðunum sem bárust í verkið, þar sem þau reyndust töluvert yfir kostnaðaráætlun. Munck Íslandi ehf. bauð krónur 264.112.313 sem var 33% yfir kostnaðaráætlun en hún hljóðaði upp á 198 milljónir. Þingvangur ehf. bauð krónur 289.998.455. Samkvæmt upplýsingum Þorkels Jónssonar hjá umhverfis- og skipulagssviði verður verkið boðið út á nýjan leik. Til greina komi að skipta því upp, t.d. með því að taka út lagnaþætti og önnur slík verk. Þorkell kveðst vongóður um að það útboð beri árangur og ekki verði miklar tafir á verkinu. Mikið lagnaverk er neðanjarðar þar sem húsið mun standa og Veitur munu færa það til. Vallarhúsið verður við nýjan frjálsíþróttavöll ÍR sem byggður verður í Suður-Mjódd. Í húsinu verður aðstaða til mótahalds s.s. tímatöku- og mótsstjórn. Einnig verður þar veitingasala, snyrt- ingar, aðstaða fyrir notendur vallarins og geymslur. Byggingin verður tvær hæðir og heild- arflatarmál 442,8 fermetrar. sisi@mbl.is Tilboðum hafnað í vallarhús ÍR  Langt yfir kostnaðar- áætlun  Boðið út aftur Vallarhúsið Borgin vonast til að ekki verði mikl- ar tafir á verkinu þótt tilboðum hafi verið hafnað. Viðskipti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.