Morgunblaðið - 20.03.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 20.03.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 * V ið m ið u n a rt ö lu r fr a m le ið a n d a u m e ld s n e y ti s n o tk u n í b lö n d u ð u m a k s tr i. B ú n a ð u r b íl s á m y n d e r fr á b ru g ð in n a u g lý s tu v e rð i E N N E M M / S ÍA / N M 8 7 1 1 1 Í FJÖLSKYLDUNNI NISSAN SJÁLFSKIPTUR / 3.350.000KR. ARINNJUKEACENTA 117 HESTÖFL / EYÐSLA 6,0 L/100 KM* Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarstjórn tekur í dag til loka- afgreiðslu tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir hluta Skúlagötu- svæðis. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að átta hæða hús verði reist á óbyggðri lóð á horni Skúlagötu og Frakkastígs. Íbúar í nálægum hús- um eru afar óhressir með þessi áform og hafa mótmælt þeim hástöf- um. Þetta er eitt af mörgum dæmum þar sem fasteignaeigendur í borg- inni telja að þétting byggðar rýri gæði eigna þeirra og verðmæti. Borgarfulltrúar meirihlutans, þ.e. Samfylkingarinnar, Bjartrar fram- tíðar, Vinstri grænna og Pírata, hafa samþykkt tillöguna í umhverfis- og skipulagsráði og borgarráði. Borg- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru henni mótfallnir og vilja skoða betur hvernig nýta má lóðina. Vegna and- stöðu þeirra fer deiliskipulagið til fullnaðarafgreiðslu borgarstjórnar. Tillagan var auglýst til umsagnar í lok síðasta árs og bárust fjölmargar athugasemdir, bæði frá einstak- lingum og húsfélögum. Meðal ann- ars bárust athugasemdir frá stjórn Skuggahverfis 2-3 og Húsfélaginu Skúlagötu 20. Hið nýja hús mun rísa við hlið þess húss og telja íbúarnir að það mun skerða útsýni frá íbúðum vestan megin í húsinu. Björgvin Þórðarson, lögmaður hjá Atlas lögmönnum, sendi skipulags- yfirvöldum langt bréf fyrir hönd húsfélagsins Skúlagötu 20. Þar kem- ur fram að um sé að ræða 76 íbúða fjöleignahús á 14 hæðum sem byggt var fyrir 20 árum eftir að Reykjavík- urborg hafði úthlutað Félagi eldri borgara lóðinni „Skemmst er frá því að segja að útsýnið sem í upphafi var boðið hinu aldraða fólki var stór- brotið. Við því blasti Kollafjörður, Esjan, Skarðsheiði og Akrafjall sem og Snæfellsnes á baksviði en nú er öldin hins vegar önnur,“ segir Björgvin m.a. í bréfinu. Húsfélagið krefst þess að áform um byggingu á lóðinni verði felld út úr deiliskipu- laginu. Byggingin muni skerða út- sýni frá nálægum íbúðum að Skúla- götu 20 og varpa skugga á svalir og útisvæði næstu íbúða þar. Þessi hagsmunaskerðing sé veruleg og andstæð anda skipulagslaga. Á athugasemdum húsfélagsins Skuggahverfi 2-3 segir m.a. að bygg- ing 8 hæða húss á horni Frakkastígs og Skúlagötu muni algerlega loka fyrir útsýn íbúa Lindargötu 37 til sjávar og útsýni íbúa Lindargötu 39 mun skerðast til muna. Fyrir- sjáanleg sé bótaskylda borgarinnar vegna verðmætaskerðingar, en út- sýni sé stór þáttur í verðlagningu íbúða á þessu svæði. Í svari við athugasemdum segir skipulagsfulltrúi Reykjavíkur m.a. að nýbyggingin verði um 15 metra frá Skúlagötu 20. Mikilvægt leiðar- ljós við vinnslu tillögunnar hafi verið að sýna nærliggjandi húsi tillit m.a. þess vegna sé nýbyggingin mjó og staðsett vestast á lóðinni. Þannig myndist fjarlægð milli húsanna og umhverfisáhrif svo sem skuggavarp og útsýnisskerðing verða minni. Geta átt von á breytingum Skipulagsfulltrúi bendir á að mið- borgin sé eitt af lykilsvæðum í þróun og uppbyggingu í Reykjavík. Hann fellst ekki á röksemdir varðandi meinta verðrýrnun eigna og bendir á að sá sem sýnt geti fram á tjón vegna gildistöku skipulags eigi rétt á bótum úr sveitarsjóði. Íbúar í borg geti ávallt átt von á því að nánasta umhverfi þeirra taki einhverjum breytingum sem haft geta í för með sér skerðingu á útsýni, aukið skuggavarp, umferðaraukningu eða aðrar breytingar. Verði menn að sæta því að með almennum tak- mörkunum geti hagsmunir þeirra í einhverju verið skertir með slíkum breytingum þar sem réttur íbúa til óbreytts útsýnis sé ekki bundinn í lög. Mótmæla 8 hæða nýbyggingu  Borgarstjórn tekur í dag lokaákvörðun um byggingu stórhýsis við Skúlagötu  Nágrannarnir mótmæla og segja að eignir þeirra rýrni í verði  Borgin ítrekar að útsýni sé ekki lögvarinn réttur Mynd/VA arkitektar Nýbyggingin Hið umdeilda hús á að rísa á eins hektara lóð á horni Skúlagötu og Frakkastígs. Nágrannarnir eru óhressir með áformin og mótmæla þeim. „Þið hjá borginni vogið ykkur að tala um andlegt heilbrigði þegar þið eruð að skipuleggja hryðju- verkin við Skúlagötu. Andlegt heilbrigði hverra? Þið munið rústa andlegu heilbrigði okkar sem búum á Skúlagötu 20. Ég keypti þessa íbúð einvörðungu útaf útsýninu vegna þess að ég er þunglynd og haldin innilok- unarkennd, verð að sjá eitthvað fallegt frá mér. Það er ekki bara mínu lífi sem þið ætlið að rústa heldur fjölda annarra,“ segir í athugasemd frá Ingrid Björns- dóttur, íbúa i Skúlagötu 20. Sólveig Jónsdóttir flutti úr Vesturbænum eftir nær 50 ára búsetu. Hún vildi minnka við sig og komast í lyftuhús. Hún féll fyrir lítilli íbúð vestan megin í Skúlagötu 20. Útsýnið úr stærsta glugganum réð úrslit- um. „Ég má ekki til þess hugsa að útsýnið úr stofuglugganum hjá mér næstu ár verði yfir- þyrmandi byggingarfram- kvæmdir með tilheyrandi há- vaða.“ Útsýnið réð úrslitum ÍBÚAR MJÖG ÓSÁTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.