Morgunblaðið - 20.03.2018, Page 13
Morgunblaðið/Eggert
Öryggisfulltrúinn Víðir Reynisson var viðstaddur og tilbúinn í slaginn þegar nýir landsliðsbúningar voru kynntir.
reynsluna með karlalandsliðinu á
EM, í Frakklandi 2016 og kvenna-
landsliðinu í Hollandi 2017,“ segir
Víðir og bætir við að HM sé allt
öðruvísi en EM.
„Verkefnastjórnunin á hinum
mótunum nýtast mér vel en á HM
mætast ólíkir menningarheimar og
það gerir verkefnið meira krefj-
andi. Á HM er allur heimurinn
undir og áhugaverður munur á
áherslum í öryggismálum. Við er-
um að tala um Evrópumenningu,
rússneska, suðurameríska og fleiri
menningarsvæði,“ segir Víðir sem
tekur það fram að sér finnist það
skemmtilegur hluti af starfinu
bæði hjá KSÍ og Almannavörnum
að kynnast ólíkum menningar-
heimum og fá þannig tækifæri til
aukinnar víðsýni. Víðir segir að
KSÍ hafi lært af EM að huga að
hvíld fyrir starfsmenn á meðan á
móti stendur.
„Undirbúningstíminn er lang-
ur og dagarnir langir og strangir á
mótsstað. Það er því nauðsynlegt
að skipuleggja vinnuna þannig að
starfsmenn fái frí til þess að hvíla
sig og hlaða batteríin.“
Það kom Víði á óvart hvað
EM og HM séu stórir viðburður
og fái mikla athygli.
„Það eru ekki bara íslenskir
aðdáendur sem bíða eftir okkur
fyrir utan hótel eða leikstaði.
Fréttamenn geta verið í hundr-
aðatali og svo eru ólíklegustu þjóð-
ir sem styðja okkur. Stundum eru
það fámennar þjóðir og þjóðabrot
sem finna einhverja samsvörun
með okkur,“ segir Víðir og bætir
við að fleiri stuðningsmenn kalli á
meira skipulag og það þurfi að
gefa leikmönnum tækifæri á að
gefa eiginhandaráritanir og leyfa
ljósmyndir með stuðnings-
mönnum.
Víðir er ekki í nokkrum vafa
um að Íslandi muni ganga vel á
HM í Rússlandi.
„Við förum í hvern leik til að
vinna og íslenska landsliðið hefur
á að skipa frábærum ein-
staklingum sem skila sínu hvort
heldur er hver og einn eða það
sem er ekki síður mikilvægt að
spila og koma fram sem liðsheild
innan vallar sem utan.“
Þegar Víðir er ekki að sinna
almannavörnum eða öryggisgæslu
á stórmótum nýtur hann útivistar
og gönguferða. Auk þess sem
hann spilar golf eins oft og hægt
er.
„Það gengur hægt að lækka
forgjöfina en ég hef þá afsökun að
náttúruhamfarir hafa truflað
framfarir í golfi,“ segir Víðir hlæj-
andi.
Fjölskyldan Víðir í faðmi fjölskyldunnar með syninum Kristjáni Orra,
eiginkonunni Kristínu Maríu Kristjánsdóttur og dótturinni Söru Kristínu.
„Verkefnastjórnunin á
hinum mótunum nýtist
mér vel en á HM mætast
ólíkir menningarheimar
og það gerir verkefnið
meira krefjandi.“
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018
Misbrigði III: Utangarðs, er yfirskrift
tískusýningar sem 2. árs nemar í
fatahönnun í Listaháskóla Íslands
efna til kl. 19, á morgun, miðvikudag-
inn 21. mars, í Flóa í Hörpunni. Húsið
verður opnað kl. 18.30. Sýningin er
andsvar við vestrænni neyslumenn-
ingu og unnin í samstarfi við Fata-
söfnun Rauða kross Íslands. Fatnað-
urinn og textíllinn, sem nemendur
vinna með, hefur af ýmsum ástæðum
lent utangarðs og er ósöluhæfur
nema til að rífa hann.
Ljóst er að endurvinnsla mun leika
veigamikið hlutverk í framtíðinni.
Leiðin sem nemendur völdu að fara í
hönnunarvinnunni er ein af mörgum
og sú sem flestum er fær. Markmiðið
er að virkja þekkingu og aðferðafræði
hönnunar til að gæða þennan efnivið
nýju lífi um leið og vakin er athygli á
textílsóun og hvatt til vistvænnar
nálgunar.
Í áfanganum er neysluhegðun
rædd í samhengi við viðtekin gildi,
líftími og gæði fatnaðar könnuð.
Einnig er fjallað um framleiðsluferli
og áhrif þess á náttúru og samfélög.
Verkefnið Misbrigði er tvíþætt;
fyrri hlutinn er sýndur á áðurefndri
tískusýningu í Hörpu, en seinni hlut-
inn er hönnunarsýning sem verður
opnuð kl. 17 föstudaginn 6. apríl í
Listaháskóla Íslands. Á Hönnunar-
sýningunni er fatnaðurinn kynntur í
návígi, sem og vinnuferlið, tengt efni
og sá hvati sem liggur að baki verk-
efninu.
Tískusýning 2. árs nema í fatahönnun í Listaháskóla Íslands
Ljósmynd/Af heimasíðu verkefnisins Misbrigði II í fyrra.
Misbrigði III Verkefnið Misbrigði er nú unnið í þriðja sinn af nemendum í
fatahönnun á 2. ári við LHÍ í samstarfi við Fatasöfnun Rauða kross Íslands.
Utangarðs er andsvar við
vestrænni neyslumenningu
Morgunblaðið/Eggert
Fatasöfnun Rauða Krossins Vissu-
lega er sóun að fleygja flík eða textíl í
ruslið í stað þess að endurnýta.
Jógasetrið býður upp á ókeypis
kynningartíma í pabbajóga kl. 14-
15.15, föstudaginn 23. mars, á með-
an pláss leyfir. Pabbarnir gera jóga
ásamt 4ra til 12 mánaða börnum
sínum og jafnframt ýmsar æfingar
til styrkingar og tengsla. Stefnt er
að því að í tímanum upplifi þátttak-
endur æfingarnar sem leik og gleði
og njóti samverunnar. Eftir páska
verða síðan sex vikna námskeið í
pabbajóga á föstudögum, en þá get-
ur pabbinn valið að koma líka sjálf-
ur í aðra tíma á stundaskrá. Pabb-
arnir eru beðnir um að tilkynna
Jógasetrið býður upp á ókeypis kynningartíma á föstudaginn
Jóga fyrir litlu krílin
og pabba þeirra líka
Gæðastund Gaman er að gera jóga-
æfingar með pabba sínum.
þátttöku með því að senda tölvu-
póst á netfangið:
jogasetrid@jogasetrid.is
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is