Morgunblaðið - 20.03.2018, Qupperneq 15
Hoffellið SU frá Fáskrúðsfirði hefur síðustu daga verið eitt á loðnu-
veiðum og var í gær á Húnaflóa, nálægt landi fyrir norðan Skaga-
strönd. Þar köstuðu þeir tvívegis og fengu um 150 tonn í fyrra kastinu
af stórri og góðri loðnu, en loðnan var nálægt botni. „Hér var óhemju
lóðning undir, um sjö mílur, og þessi loðna á einhverja daga eftir í
hrygningu. Það er mikið líf hérna og margir hvalir,“ sagði Bergur. Þeir
voru komnir með um 800 tonn og áttu þá um 1.300 tonn eftir af
kvótanum, en þeir byrjuðu seint á loðnunni.
Bergur segir að þeir hafi leitað víða og við Tjörnes, vestur af Gríms-
ey, á Skagagrunni og út af Patreksfirði hafi þeir alls staðar orðið varir
við lóðningar. Loðnan liggi hins vegar við botninn og sé trúlega víða
búin að hrygna, þó að hrygningin sé eitthvað seinna á ferðinni fyrir
norðan heldur en annars staðar.
„Það er mikið af loðnu fyrir Norðurlandi, en það veit enginn hversu
mikið er þar,“ sagði Bergur. „Það hefði þurft að fylgja göngunum eftir
til þess að fá einhverja vitneskju um stöðuna á þessari sérkennilegu
vertíð.“
Á veiðum við Skagaströnd
BERGUR Á HOFFELLI SEGIR LOÐNU VÍÐA FYRIR NORÐURLANDI
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess
að þau þekkja tal betur en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Loðnuvertíð er nánast lokið og aðeins
eitt skip enn að veiðum. Gunnþór
Ingvason, framkvæmdastjóri Síldar-
vinnslunnar í Neskaupstað, áætlar að
útflutningsverðmæti afurða úr 186
þúsund tonna kvóta íslenskra skipa
geti numið um 13 milljörðum króna.
Alls hafa norsk skip landað hér 40-
50 þúsund tonnum af loðnu í vetur og
fylgdu þeim talsverð umsvif á höfnum
frá Þórshöfn til Fáskrúðsfjarðar. Verð-
mæti úr þeim afla og afla grænlenskra
skipa koma til viðbótar og áætlar
Gunnþór að þau geti hafa numið 3-4
milljörðum.
Mikil hrognaframleiðsa í fyrra
Gunnþór segir vertíðina í vetur
talsvert frábrugðna vertíðinni í fyrra,
en þá fóru skipin beint úr verkfalli til
loðnuveiða um 20. febrúar og náðist
kvótinn allur. Í fyrra voru unnin hátt í
18 þúsund tonn af hrognum, en 6-7
þúsund tonn í ár. Mikil framleiðsla á
síðasta ári leiddi hins vegar til mik-
illar verðlækkunar og talsverðar
birgðir frá síðustu vertíð eru enn í
landinu.
Í fyrra var reiknað með að hrognin
gæfu 8-9 milljarða, að sögn Gunnþórs,
en í heildarframleiðslunni vega verð-
mæti hrognanna mikið. Þó svo að ekki
sé búið að selja hrogn frá þessari ver-
tíð megi vænta þess að verðið hækki
eitthvað vegna mun minni fram-
leiðslu. Á móti komi afurðir frá Norð-
mönnum, sem undanfarið hafa stund-
að veiðar í Barentshafi, en svo hefur
ekki verið síðustu ár.
Þá segir Gunnþór að verð fyrir
loðnumjöl hafi verið mun hærra á
þessari vertíð heldur en fyrir ári.
– En hvað stendur upp úr að þess-
ari vertíð lokinni hvað varðar veið-
arnar sjálfar og göngur loðnunnar?
„Um áramót lá fyrir byrjunarkvóti í
loðnu, sem við vorum til dæmis ekki
með í fyrravetur,“ segir Gunnþór.
„Við höfðum fulla ástæðu til að vera
bjartsýnir með frekari úthlutun í vet-
ur og meiri en niðurstaðan varð hjá
fiskifræðingum. Síðan gerðist það að
seint á vertíðinni var verið að veiða
loðnu í töluverðum mæli fyrir Norður-
landi og fyrir Suðurlandi á sama tíma
og síðan fyrir vestan. Þannig að það
var loðna hringinn í kringum landið í
veiðanlegu magni.
Þörf á meiri rannsóknum
Við höfum hins vegar ekki náð al-
mennilega utan um þetta í rannsókn-
um. Við hljótum að setjast niður eftir
þessa vertíð og fara yfir nýju aflaregl-
una og hvernig hún virkar í árferði eins
og núna. Niðurstaðan hlýtur að vera sú
að þetta kallar á auknar rannsóknir á
loðnustofninum og aukið fjármagn.
Við þurfum einfaldlega að standa
okkur betur í rannsóknum og hvernig
við fylgjumst með stofninum. Þar hef-
ur samstarf útgerðanna og Hafró verið
að aukast mjög og við þurfum að efla
það enn frekar til að ná betur utan um
verkefnið,“ segir Gunnþór Ingvason.
Flest uppsjávarskipanna héldu beint
af loðnunni á kolmunna vestur af Ír-
landi. Þar hefur veiðst vel síðustu vik-
ur, en síðustu tvo daga hafði dregið úr
afla.
Um 13 millj-
arða útflutn-
ingsverðmæti
Verðmæti úr loðnuafla norskra og
grænlenskra skipa koma til viðbótar
Minna fryst af hrognum en í fyrra
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Vertíð Hoffellið var að veiðum á Húnaflóa í gær, en síðustu vikur hefur mikið verið af loðnu fyrir Norðurlandi.