Morgunblaðið - 20.03.2018, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.03.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 Since 1921 Weleda er leiðandi vörumerki í sölu á lífrænum húðvörum síðan 1921 ! Útsölustaðir: Apótek og heilsuverslanir. Netverslun: heimkaup.is, lyfja.is, heilsuhusid.is, baenduribaenum.is Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Tyrkneskar hersveitir náðu á sunnu- dag yfirráðum yfir borginni Afrin í norðvesturhluta Sýrlands. Tókst þeim því að hrekja á brott vopnaðar sveitir Kúrda (YPG). Berast nú fregnir af gripdeildum í Afrin, en breska ríkisútvarpið (BBC) segir sýrlenska uppreisnarhópa, sem njóta stuðnings tyrkneska hersins, fara þar um ránshendi. „Þjófnaður á munum einstaklinga og hins opinbera er glæpur,“ segir Mohamed Alloush, leiðtogi upp- reisnarhópsins Jaish al-Islam, en leiðtogar vopnaðra hópa sem tekið hafa stöðu gegn stjórn Bashars al- Assads Sýrlandsforseta eru sagðir fordæma þjófnaðinn. „Allir þeir sem þátt tóku í þessu eiga skilið að verða slegnir harkalega á hendurnar.“ Bresk mannréttindasamtök sem starfandi eru í Afrin segja uppreisn- armenn hafa brotist inn í verslanir og veitingastaði og rænt þaðan ýms- um munum og vistum auk þess sem þeir eru sagðir hafa rænt hergögn- um og ýmsu öðru lauslegu úr opin- berum byggingum í borginni. Eru þeir t.a.m. sagðir hafa stolið mat- vælum, ýmsum raftækjum, teppum og öðrum hlutum. Ránsfengurinn mun hafa verið fluttur burt úr borg- inni með bifreiðum. Mættu lítilli mótspyrnu Liðsmenn sýrlensku uppreisnar- hópanna segjast hafa mætt lítilli mótspyrnu frá sveitum Kúrda þegar þeir sóttu inn í miðborg Afrin síðast- liðinn sunnudag. Eru liðsmenn YPG sagðir hafa flúið borgina á sama tíma og íbúar hennar. Fréttamaður AFP-fréttaveitunnar, sem stað- settur er í Afrin, segir tyrkneska hermenn nú veifa fána Tyrklands í borginni og að uppreisnarmenn hafi rifið niður styttur Kúrda. Þá segist hann einnig hafa orðið vitni að áður- nefndum gripdeildum í Afrin. Tyrkir halda því fram að YPG sé útibú Verkamannaflokks Kúrdistans (PKK) sem barðist í áratugi blóðugri baráttu fyrir sjálfstæði Kúrdahér- aða í Tyrklandi. Vilja tyrknesk stjórnvöld því liðsmenn YPG fjarri landamærum Tyrklands. Álitsgjafar BBC hafa sumir hugsað út í næstu skref Tyrkja og m.a. velt upp þeirri spurningu hvort Manbij sé nú komin í sigti hersins. Borgin Manbij er um 100 km austur af Afrin og er undir stjórn Kúrda. Í frétt Washington Post kemur t.a.m. fram að ástandið í Manbij sé stöðugt og er borgin sögð vera „í blóma“. Óttast menn því mjög versnandi ástand með tilheyr- andi straumi flóttafólks brjótist þar út átök á næstunni. Sýrlenskir uppreisnarhópar stunda nú gripdeildir í Afrin  Tyrkneski herinn og sýrlenskar sveitir náðu borginni á sitt vald á sunnudag AFP Stjórnleysi Sýrlenskur uppreisnarmaður sést hér draga gamla Benz-bifreið á brott í borginni Afrin, en uppreisnar- menn eru sagðir stunda gripdeildir í borginni. Talið er að tyrkneski herinn sæki næst inn í borgina Manbij. Þjófnaður Hóparnir eru sagðir hafa stolið ýmsum munum og vistum. „Það versta er að líkindum yfirstaðið og veðurskilyrði að batna, en eyði- leggingin er eitthvað sem allir eru að reyna að ná utan um núna,“ segir Shane Fitzsimmons slökkviliðsstjóri í samtali við fréttastöðina 7 News Sydney í Ástralíu. Vísar hann í máli sínu til þeirra miklu kjarrelda sem geisað hafa í New South Wales í Ástralíu, en um 70 byggingar, flestar íbúðahús, eru sagðar hafa brunnið til kaldra kola. Þá eru tugir bygginga sagðir hafa skemmst í brunanum. Eldarnir, sem blossuðu upp á sunnudag, breiddust hratt út sökum mikilla þurrka og vinda og hafa nú yfir 1.000 hektarar lands brunnið. Þrátt fyrir bætt skilyrði til slökkvi- starfa segir Fitzsimmons ástandið enn „hættulegt og breytilegt“. Stórbruni án manntjóns Greg Allan, talsmaður slökkviliðs- ins á svæðinu, segir þrjár flugvélar nýttar til slökkvistarfa og yfir 60 slökkviliðsmenn berjast við eldinn. „Við munum nýta okkur bætt veð- urskilyrði til að ná tökum á ástand- inu,“ segir hann við þarlenda miðla. Í gær höfðu engar fregnir borist af manntjóni í brunanum. Ein kona er þó sögð hafa fengið aðstoð vegna erfiðleika með öndun. Þá var íbúum smábæjarins Tathra gert að yfirgefa heimili sín í öryggisskyni. AFP Hættuástand Mörgum íbúum smábæjarins Tathra var gert að yfirgefa heimili sín vegna eldanna, en myndin er tekin þar. Eyðilegging er sögð mikil. Um 70 heimili sögð brunnin í Ástralíu Starfsmaður frönsku ræðismanns- skrifstofunnar í Jerúsalem hefur verið handtekinn fyrir vopna- smygl. Fréttavefur CNN greinir frá því að maðurinn, sem heitir Romain Franck, hafi smyglað yfir 70 skotvopnum frá Gaza og yfir í austurhluta Jerúsalem og á Vest- urbakkann, en við smyglið nýtti hann sér diplómatafriðhelgi sína og bifreið sendiráðsskrifstofunnar. Franska utanríkisþjónustan hef- ur til þessa ekki viljað tjá sig um málið, en níu hafa verið hand- teknir í tengslum við rannsókn lögreglu. JERÚSALEM Diplómati handtek- inn fyrir vopnasmygl Jerúsalem Maðurinn nýtti sér friðhelgi sína við vopnasmyglið. Þrettán ára stúlka frá Miss- issippi í Banda- ríkjunum lést eftir að níu ára gamall bróðir hennar skaut hana í höfuðið með skamm- byssu. Frétta- stofa Sky greinir frá því að systk- inin hafi verið að spila tölvuleik og er drengurinn sagður hafa beitt skotvopni þegar systir hans neitaði að afhenda honum fjarstýr- inguna. Stúlkan var flutt á sjúkrahús þar sem hún var úrskurðuð látin, en málið er í rannsókn lögreglu. BANDARÍKIN Skaut eldri systur sína í höfuðið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.