Morgunblaðið - 20.03.2018, Page 20

Morgunblaðið - 20.03.2018, Page 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 skornirthinir.is LYT NS 4 SEASONS OS LE FLORIA VATNSHELDIR SKÓR LE FLORIANS 4 SEASONS Tilboðsverð: 16.097 100% vatnsheldir Vibram sóli Verð áður: 22.995 tærðir 36-47 6 litir 30% afsláttur til 31. mars Einu sinni, fyrir mörgum áratugum, átti ég þess kost að vinna á Borgarspítalanum í um þrjú ár. Það var erfitt en mikið var það gam- an. Ég vann við upplýs- ingakerfi fyrir metn- aðarfulla lækna á mjög metnaðarfullum vinnu- stað. Spítalinn var rekinn að sænskri fyrirmynd og ekkert til sparað að gera hlutina vel og betur en keppinautarnir. Þá var Borgarspítalinn að keppa við Landspítalann og Landakot. Í gríni og alvöru var þá sagt að Borgarspít- alinn væri rekinn eins og sænskur spítali, Landakot eins og amerískur spítali og Landspítalinn eins og „ís- lenskur spítali“. Hjá þeim síðast- nefnda voru skipulagsmál sögð í óreiðu eins og síðan virðist hafa loðað við hann. Hversu oft hafa ekki ýmis mál „sprungið“ og orðið blaðamatur hjá Landspítalanum í gegnum árin? Síðan þetta var hef ég gjarnan fylgst með þessum spítalamálum, af hliðar- línunni. Horft á það (með hnút í maga) hvernig spítalarnir hafa verið „Land- spítalavæddir“. Það er ekki gaman að horfa upp á þröngsýni ná yfirhönd- inni. Hverjum af öðrum hefur minni spítölum verið lokað til að auka „hag- ræðingu“ og stærri spítalarnir sam- einaðir Landspítalanum. Ef einhver gagnrýndi þetta var hann „persona non grata“. Þó virðast þessar samein- ingar ekki hafa skilað miklu og hvar er metnaðurinn? Af umræðunni mætti stundum halda að ekki sé nóg með að það eigi bara að vera einn spít- ali á landinu heldur sé það nóg sem heilbrigðiskerfi. Spítalinn á að vera á umferðareyjum við Hringbraut og fólk getur bara komið þangað og náð sér í læknisþjónustu. En ekki á bíl því það er ekki gert ráð fyrir mörgum bílastæðum á „Nýja Landspítal- anum“, vegna plássleysis á umferðar- eyjunum. Nú eru margir sem halda því fram að fyrirbyggjandi læknisþjónusta sé það sem koma skal. Það sé mun ódýrara að halda almenningi heilbrigðum en að lækna fólk af hin- um ýmsu sjúkdómum. Þetta mál kemst eigin- lega ekki mikið í um- ræðuna hér á landi því hér má halda að heil- brigðiskerfið eigi bara að vera einn stór spítali, eins og komið hefur fram. Ég held við ættum að fara að hætta þessari vitleysu. Hvernig væri að hætta að loka minni spítölum um land allt og fara að leggja meiri áherslu á fyrirbyggjandi læknisþjón- ustu? Efla heilsugæslu og sjá til þess að ákveðin lágmarksþjónusta verði veitt á minni sjúkrahúsum landsins, t.d. með hreyfanlegu vinnuafli. Og hvernig væri að skipuleggja svolítið fram í tímann á Landspítalanum („ís- lenska spítalanum“) t.d. með því að reikna út fyrirfram hvað þarf mikið af legurýmum og dvalarheimilum fyrir gamalt veikt fólk sem fyllir of stóran hluta af legurými stóra spítalans í dag? Þetta má t.d. reikna út á hverju ári fyrir 10 til 20 ár fram í tímann og vinna í að alltaf sé nóg til af þeim ódýrari kosti sem dvalarheimili er með sínum legurýmum. Þannig að síður þurfi að nota akut-rúm á stóra spítalanum, sem kosta miklu meira í rekstri. Þetta eru hlutir sem alltaf virðast koma jafn mikið á óvart, á hverju ári. En það má helst ekki tala um svona alvöru hagræðingu. Hvernig stendur á því að ég hef aldrei séð neina umræðu um það hér á landi hvað einn spítali á að vera stór? Ætli að ástæðan sé sú að það hefur ekkert verið rætt um þau mál? Nú hljóta að vera einhver takmörk fyrir hve stóran spítala er hentugt að hafa, miðað við íslenskar aðstæður. Og þá geri ég ekki ráð fyrir því að öll heilbrigðisþjónusta landsmanna verði á Landspítalanum við Hringbraut. Ég held það væri heillaráð að fara að skoða hvað borgar sig að byggja stóra spítala. Þar eru ýmis mál sem taka þarf tillit til eins og miðlæg staðsetn- ing miðað við umferðaræðar, nóg landrými fyrir byggingar og starfs- fólk, því það er jú æskilegt að starfs- fólk geti búið nálægt sínum vinnu- stað. Finna þarf efri takmörk stærðar vegna bráðalokunar spítalans svo hægt verði að rýma hann og koma (allri) starfseminni annað vegna bráðalokunar. Bráðalokun getur or- sakast af mörgum mismunandi ástæðum. Það er ekki langt síðan að svo skæðir vírusar herjuðu á Land- spítalanum (Hringbraut) að bráða- lokun virtist ekki langt undan. En það má helst ekki ræða það mál. Náttúru- hamfarir, stríðsátök, hættulegar sýk- ingar, stórbruni, stórslys innandyra og fleira sem ég get ekki látið mér detta í hug, en er samt mögulegt. Lít- ið dæmi um það er nýlegt stórhýsi OR sem varð ónýtt vegna myglu á fáum árum. Hverjum hefði dottið það í hug? Bráðalokun og flutningur ann- að: Akranes og Reykjanesbær? Það hlýtur að verða að gera ráð fyrir þessu í alvöru heilbrigðiskerfi dags- ins í dag og framtíðarinnar. Nú má segja að Landspítalinn við Hringbraut sé ekki lengur skipulags- mál, hann er orðinn að trúarbrögðum. Nú er mál að linni: Hvernig væri að byrja upp á nýtt og skipuleggja nýtt heilbrigðiskerfi á Íslandi frá grunni, gleyma gamla Landspítalanum („ís- lenska spítalanum“) og öllu ruglinu í kringum hann. Henda öllum núver- andi áætlunum og byrja upp á nýtt með hreint borð. Ég tel að það sem er búið að gera standist ekki kröfur framtíðarinnar vegna forsendu- brests. Það kæmi mér ekki á óvart að raunhæf greining á bestu stærð spít- ala leiddi í ljós að hagkvæmt væri að hafa tvo hæfilega stóra spítala á höf- uðborgarsvæðinu sem væru með ákveðna verkaskiptingu en einnig ákveðna samkeppni. Þá mætti byggja og endurnýja með hæfilegu millibili. Að lokum er spurning hvort ekki er orðið tímabært að gefa núverandi yfirstjórn Landspítalans frí. „Landspítalavæðing“ íslenska heilbrigðiskerfisins Eftir Halldór Friðgeirsson »Ég held það væri heillaráð að fara að skoða hvað borgar sig að byggja stóra spítala. Halldór Friðgeirsson Höfundur er verkfræðingur. Kæru lesendur Morgunblaðsins, kjós- endur Sjálfstæðis- flokksins, prestar Þjóðkirkjunnar, sið- fræðingar og aðrir Ís- lendingar sem þekkja muninn á réttu og röngu. Ég vil kynna ykkur fyrir Hauki vini mín- um. Hann er sagður hafa verið drepinn í Sýrlandi. Þangað fór hann í þeim eina til- gangi að verja fólk og frelsi manna undan Íslamska Ríkinu. Sam- kvæmt fréttum á honum að hafa bara gengið býsna vel í því verki þar til Tyrkir tóku hann úr um- ferð. Áður en þú leggur niður blaðið því þú nennir ekki að heyra röflið í enn einum aumingjanum, róttækl- ingi og stjórnleysingja sem ekkert gagn er að, má ég kynna mig. Ég er kallaður Lalli. Ég er vill- ingur úr Fellunum sem snerist til kristinnar trúar á unglingsárun- um. Ég starfaði í sumarbúðum KFUM&K í rúman áratug og sinnti æskulýðsstarfi í Þjóðkirkj- unni um árabil. Ég hef starfað með stórum hluta íslenskra presta á einhverjum tímapunkti á ferming- arnámskeiðum í Vatnaskógi. Ég hef unnið hjá Landhelgisgæslunni, leikskóla og undanfarin ár sem sjúkraliði á Landspítalanum. Ég hygg að ég sé hverjum manni jafn- vígur í að þekkja muninn á réttu og röngu, góðu og illu. Ég þekkti Hauk, hann var mér kær vinur. Ég veit að Haukur þekkti muninn á réttu og röngu betur en við flest. Það sem varð honum að falli er skortur á hæfi- leika sem við hin höfum; að geta litið undan. Að geta litið undan kvöld eftir kvöld fyrir framan sjón- varpskjáinn, horfandi á afhöfðanir, mannabrennur, þrælamarkaði, fjöldamorð, raðnauðganir, hrylling eftir hrylling eftir hrylling. Haukur vissi vel að það sem hann þurfti að gera var rangt. Af tveimur röngum kostum valdi Haukur að gera eitthvað í stað þess að gera ekkert. Hann valdi að gera það sem við hin getum ekki gert af því það fer of langt út fyrir þægindarammann. Haukur hataði stríð. Hann hat- aði kerfin sem ýta undir stríð. Hann sá hræsnina í stríðsþátttöku íslenska ríkisins á sama tíma og við hreykjum okkur af því að vera kristin þjóð í friðsælu landi. Hann sá í gegnum duluna sem við hin breiðum yfir augu okkar. Haukur fór ekki til Sýrlands til að berjast eða meiða nokkurn mann. Hann fór til Sýrlands til að sigra Íslamska Ríkið. Hann fór til að sigra óvini alls þess sem er rétt. Hann fór til að SIGRA ISIS! Hvaða annar maður á Íslandi getur sagst hafa lagt sig fram um að SIGRA ISIS??? Ég get ekki lýst þeim harmi, sorg og óvissu sem við vinir Hauks og fjölskylda erum að ganga í gegnum. Svo virðist sem hann Haukur okkar sé annaðhvort dáinn og liggi enn á einhverri hæð við einhvern bæ í Sýrlandi eða hann sé í haldi Tyrkja annaðhvort lif- andi eða dáinn. Við vitum að það voru tyrkneskir fjölmiðlar sem sögðu fyrst frá falli Hauks því samherjar hans geta í raun ekkert staðfest nema það sem tyrkneskir fjölmiðlar segja. Nú vitum við fyrir víst að Hauk- ur tók ekki þátt í bardögum með skilríki á sér. Það höfum við fengið staðfest frá félögum Hauks í Sýr- landi. Við höfum líka fengið stað- festingu á því að enginn af félögum Hauks hafi séð hann deyja eða séð lík hans eða að hann hafi yfirhöfuð látist. Enginn sá Hauk falla. Tveir félagar Hauks sem voru með hon- um enduðu á tyrknesku sjúkrahúsi og dóu þar. Hæðin sem Haukur á að hafa verið felldur á hefur verið undir stjórn bandamanna ís- lenska ríkisins síðan. Hvar er þá Haukur? Það sem við ástvinir Hauks erum núna að ganga í gegnum er sú hugsun að mögulega hafi Haukur náðst lif- andi og því viti þeir nafn hans. Okkar mar- tröð er rétt að byrja þegar við leiðum hug- ann að því að í tæpan mánuð geti Haukur hafa verið í haldi bandamanna íslenska ríkisins með réttarstöðu hryðjuverkamanns. Við sem höfum séð í gegnum dul- una í mörg ár en litið undan vitum vel hvaða meðferð bíður hryðju- verkamanna í haldi bandamanna okkar í hermálum. Frá því 6. mars hafa ástvinir Hauks unnið sleitulaust að því að finna hann. Ég hef heyrt út undan mér hvað hún Eva okkar, móðir Hauks sé nú sterk og hvað allir séu samhentir um að vera sterkir og finna Hauk. Sannleikurinn er hins- vegar sá að við brotnum daglega undan vanmætti okkar. Vill einhver hjálpa okkur? Getur einhver sem þekkir mun- inn á réttu og röngu staðið með okkur á þessum erfiðu tímum? Það er nógu erfitt fyrir okkur sem elskum Hauk að glíma við sorgina, missinn og óvissuna. Að þurfa á sama tíma að glíma við íslenska ráðamenn sem eru bandamenn þeirra er bera ábyrgð á hvarfi Hauks, er ekki að hjálpa. Enginn þeirra þorir að taka afstöðu með Hauki og því réttlæti sem hann barðist fyrir. Enginn þeirra vill taka afstöðu til þess hvort Haukur hafi verið réttdræpur eða réttlátur. Getur einhver tekið af okkur byrðarnar í smá stund og barist fyrir okkur um að fá Hauk heim, þó ekki væri nema í einn dag? Við þráum hvíld. Getið þið prestar sem mig þekkið, þið siðfræðingar og allir góðir menn sem vitið skyn góðs og ills, hjálpað okkur? Getið þið tekið eitt augna- blik úr lífi ykkar til að gúggla orð- unum „Constitution of Rojava“ og lesið þá stefnuskrá. Ef þið viljið komast nálægt því að skilja Hauk Hilmarsson er best að byrja á því að kynna sér það sem hann fór til að verja. Látið í ykkur heyra! Var vinur minn réttdræpur? Getur einhver hjálpað okkur að finna Hauk? Það er meiri huggun að lemstr- uðu DNA-sýni af einhverri hæð í Sýrlandi heldur en ekkert. Sorgin hefur beygt okkur en það er óvissan sem brýtur. Vill einhver hjálpa okkur? Getið þið, góðu menn og konur sem byggið Ísland og þekkið mun- inn á réttu og röngu, hjálpað okk- ur? Getið þið útskýrt fyrir ráðamönn- um þessa lands að við erum í raun ekki öll sammála um nauðsyn þess eða siðferðislegt réttlæti að drepa annað fólk í pólitískum tilgangi? Getið þið útskýrt fyrir ráðamönn- um hvaða hrylling við erum að kalla yfir annað fólk með þátttöku í stríðsrekstri? Spyrjið okkur sem nú söknum Hauks. Það er okkar veruleiki þessa dag- ana. Eftir Lárus Pál Birgisson »Ég hef heyrt út und- an mér hvað hún Eva okkar, móðir Hauks, sé nú sterk og hvað allir eru samhentir um að vera sterkir og finna Hauk. Sannleik- urinn er hinsvegar sá að við brotnum daglega undan vanmætti okkar. Lárus Páll Birgisson Höfundur er sjúkraliði. Vinur minn Haukur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.