Morgunblaðið - 20.03.2018, Side 26

Morgunblaðið - 20.03.2018, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 ✝ Bjarni ÞórPálmason fæddist í Reykja- vík 21. október 1991. Hann and- aðist á Landspít- alanum 11. mars 2018. Foreldrar hans eru Pálmi Krist- insson verkfræð- ingur, f. 12.5. 1957, og Salome Tynes flugfreyja, f. 31.5. 1961. Bjarni var ókvæntur og barnlaus. Systkini hans eru fræðingur, f. 6.3. 1989. Bjarni ólst upp í Fossvogs- hverfinu í Reykjavík og stund- aði nám við Fossvogsskóla og Réttarholtsskóla. Hann lauk grunnskólaprófi frá Hjalla- skóla í Kópavogi árið 2007. Bjarni Þór stundaði knatt- spyrnu frá barnsaldri og var liðtækur félagi í Víkingi. Eftir grunnskólanám starf- aði Bjarni í byggingarvinnu en undanfarin ár starfaði hann sem stuðningsfulltrúi við Hörðuvallaskóla í Kópavogi og Fjölbrautaskóla Suður- nesja og sem leiðbeinandi við leikskólann Aðalþing í Kópa- vogi og í Kjallara Hins hússins á vegum Reykjavíkurborgar. Útför Bjarna Þórs fer fram frá Bústaðakirkju í Reykjavík í dag, 20. mars 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Ágúst Ottó, versl- unarmaður, f. 23.2. 1995, og Birna Lind, menntaskólanemi, f. 18.12. 2000. Hálfsystkini Bjarna, samfeðra, eru Hjalti Þór, verkfræðingur, f. 6.5. 1981, maki hans er Ingunn Agnes Kro lög- fræðingur, f. 27.3. 1982, og Elísabet, jarðfræðingur, f. 9.8. 1986, sambýlismaður hennar er Grétar Már Pálsson verk- Elsku Bjarni minn. Þó að það sé sárt og erfitt að kveðja þig á þessari stundu er ég afar þakk- látur og stoltur yfir því að hafa fengið að vera pabbi þinn og að fá að njóta þeirrar hlýju og mann- gæsku sem þú gafst okkur. Það er sú minning um þig sem mun lifa áfram í hjörtum okkar. Snemma kom í ljós að Bjarni var atorkusamur og fór sínar eigin leiðir. Oftar en ekki var hann fremstur meðal jafninga og óskráður leiðtogi og fyrirmynd í sínum vinahópi. Þegar hann var sjö ára gamall ákvað hann að byggja kastala í garðinum. Við foreldrarnir vorum að heiman og því ákvað Bjarni að hringja í nýja farsímann hans afa síns, sem þá var staddur á Spáni, til að spyrja hann hvar naglarnir hans pabba væru. Afi hans reyndi að fá hann ofan af þessu enda ekkert vit í því að negla 5 tommu nagla í trjábol- inn, hvað þá að hringja til útlanda sem var rándýrt á þessum tíma. Þegar heim var komið blasti verk- ið við okkur, hann hafði eytt öllum deginum í að reka 150 nagla í trjá- bolinn. Öllum mátti ljóst vera að hið stóra og myndarlega tré væri ónýtt og yrði að fjarlægja. En viti menn, tréð sem stendur rétt neð- an við Bústaðakirkju tók óvæntan vaxtarkipp og óx og dafnaði sem aldrei fyrr. Upp úr þessu lá leið Bjarna í fótboltann þar sem hann af mikl- um áhuga fékk útrás fyrir hæfi- leika sína og getu. Víkingur var að sjálfsögðu hans félag og Víkin nánast hans annað heimili á þess- um tíma og fram yfir unglingsár- in. Bjarni var efnilegur knatt- spyrnumaður og mikill markaskorari. Hann gerði ekki mikið úr frammistöðu sinni á vell- inum, honum fannst það bara sjálfsagt að skora mörk og að vinna leiki fyrir Víking. Bjarni var einstaklega góður og hjartahlýr drengur og hvers manns hugljúfi. Hann átti það til að huga betur að velferð og líðan annarra en að sinni eigin. Bjarni var lítið gefinn fyrir veraldleg gæði og að leita uppi þekkta og þá sem meira eiga undir sér. Hans fólk var litla fólkið, börnin og fatl- aðir. Það var fólkið sem hann hafði unun að vinna með. Þau elskuðu hann og vildu vera með honum og hann elskaði að vera með þeim. Það gaf honum lífshamingju og gleði og meira en allt veraldlegt getur gefið. Á góðviðrisdögum átti Bjarni það til að koma heim í Kvistaland með vini sína úr Hinu húsinu og fara með þeim í heita pottinn. Það voru hlýjar tilfinningar sem fóru um okkur þegar við horfðum á þá vinina busla í heita vatninu í garð- inum. Bjarni var þeirra maður, þeir litu upp til hans og hann var umvafinn væntumþykju frá þeim. Bjarni var líka vinsæll hjá krökkunum í leikskólanum og þau vildu vera með honum. Þegar hann mætti til vinnu hópuðust börnin oft út að hliðinu og hróp- uðu: Bjarni er kominn – Bjarni er kominn. Foreldrar sumra leik- skólabarnanna voru hins vegar misánægðir með það þegar börnin þeirra tóku upp á því að tússa myndir á handleggi sína þegar heim var komið. Skýringin var einföld; „ég vil vera eins og Bjarni“. Þetta þótti eðlilega ekki nógu gott, enda húðflúrið tekið fyrir á fundi með starfsmanninum. Aðeins mánuður er síðan þú barst kistuna hennar ömmu þinn- ar út úr Bústaðakirkju. Þessar síðustu vikur hérna heima voru okkur afar dýrmætar. Þótt líf þitt hafi ekki alltaf verið auðvelt varst þú einbeittur og ákveðinn og sagð- ir okkur frá fallegum og spenn- andi framtíðaráformum þínum. Á ögurstundu brast svo hjartað þitt og þú varst frá okkur tekinn. Sorg okkar er mikil og erfið en minn- ingin um þig mun lifa að eilífu. Elsku Bjarni minn, þú varst einstök gjöf sem við þökkum fyrir. Guð geymi þig, elsku drengurinn minn. Þinn pabbi. Þegar ég fékk þennan fallega hnoðra í fangið, frumburðinn minn, fannst mér líf mitt full- komnað. Ég var bókstaflega að springa af hamingju, ást, stolti, gleði … þeirri tilfinningu sem all- ar mæður hljóta að upplifa þegar þeim fæðist nýtt líf. Stelpurnar inni á ungbarnastofunni sögðu með blik í augum „oh, þú átt þenn- an fallega, hárprúða dreng með dökku augnkústana!“ Já, hann byrjaði snemma að bræða okkur kvenfólkið með fallegu augunum sínum og dökku augnhárunum. Strax við fæðingu kom hann mér í skilning um að það þyrfti að hafa svolítið fyrir honum. Bjarni vildi t.d. ekki vera á brjósti, snéri bara upp á sig þegar reynt var að leggja hann á brjóst. Móðurmjólk- inni var pumpað á pela fyrstu 2-3 vikurnar og þar með var brjósta- gjöfinni lokið. Bjarni var fyrirferðarmikill og kröftugur strákur. Uppátækja- samur, fjörugur grallari sem fór alltaf sínar eigin leiðir. Það var ekkert setið í rólegheitum og kubbað í lego, nei, herbergið var sett á annan endann, búnar til hindrunarhlaupabrautir úr hús- gögnum og lökum eða rennt sér á dýnu niður stigana heima í Loga- landi. Það var aldrei lognmolla í kringum Bjarna. Þegar hann hafði aldur til var skottast niður í Vík- ina, fyrst á fótboltanámskeið og síðan á æfingar hjá Víkingi. Nú vorum við foreldrarnir sannfærðir um að með fótboltanum fengi lífs- kraftur Bjarna okkar útrás. Það gerði hann svo sannarlega. Hann var efnilegur fótboltastrákur og minningarnar frá þessum árum eru fjölmargar og góðar. Bjarni var vinamargur og æskuvinirnir héldu alltaf tryggð hverjir við aðra, þó svo að vegir þeirra lægju í ólíkar áttir. Bjarni var einstaklega barn- góður og hjartahlýr. Hann mátti ekkert aumt sjá. Hann vann um tíma á leikskóla og við umönnun fatlaðra. Þar var hann á heima- velli. Börnin elskuðu hann og hann elskaði þau. Elsku hjartans drengurinn minn. Lífsgleðin vék aldrei úr hjarta þínu. Þú varst ekki tilbúinn að yfirgefa þetta jarðlíf, en örlögin gripu harkalega í taumana og þú fékkst ekkert við ráðið. Hjartað þitt réð einfaldlega ekki við að- stæður. Þó að sorgin nísti mig og þó að ég sé ósátt almættinu, þá er ég svo óendanlega þakklát fyrir að hafa haft þig hjá mér í 26 ár. Þú varst fallegur að innan sem utan. En umfram allt varstu góður. Minning þín er það sem mun ylja okkur fjölskyldunni um ókomin ár. Ég kveð þig, elsku drengurinn minn, með ljóði eftir langömmu þína Hrefnu Tynes. Guð geymi þig að eilífu, elsku Bjarni minn. Far vel, þú fagra sál. Trúin er andans sigur sannleiksleitandi barna ljósið sem lifnar af engu ljómar þó eins og stjarna. Vissan sem vonin vekur veitist þó erfitt að skilja er þó blessunin besta brot af almættisvilja. Vonin er líftaugin ljósa leiðarstjarna á vegi aflgjafi breysku barni bjarmi af komandi degi. Ylur frá æðra heimi angan af jarðargróðri uppfylling allra drauma auður af andans fóðri. Kærleikur, kjarni lífsins kenn’ mér að þjóna þér einum. Þú sem ert æðsta aflið ættir í öllum greinum að vera í meðvitund manna mildinnar ríki máttur svo lífið frá vöggu til grafar verði þinn andardráttur. (Hrefna Tynes) Þín mamma. 21. október 1991 var mikill gleðidagur í mínu lífi þegar óskin rættist um yngra systkini og um leið nýjan besta vin. Ég man að þó ég hafi einungis verið fimm ára þá tók ég hlutverk eldri systur mjög alvarlega og lofaði að vernda þig og vera þér til halds og trausts með góðri leiðsögn frá Hjalta stóra bróðir. Það kom snemma í ljós að það var hægara sagt en gert. Þú varst ákveðinn, hug- myndaríkur og ævintýragjarn. Þú áttir auðvelt með að bræða alla í kringum þig þegar að einhver ætl- aði að segja þér til, með skæru bláu augunum og skemmtilega hlátrinum. Það átti reyndar eftir að koma systur þinni oft að góðum notum líka. Við urðum ævintýra- félagar og góðir prakkarar saman. Áhugamál þín á yngri árum voru oft óhefðbundin, eins og stang- veiði og tónlistarsmekkur á borð við Santana, Mambo No. 5. Ólíkt öðrum jafnöldrum þínum varst þú óhræddur að gera nákvæmlega það sem gerði þig glaðan. Við tók svo fótboltinn, skvísurnar og Réttó í bland við rokkið og rappið. Ég man að við lágum öll þrjú saman í Logalandinu þegar að símhringing kom til ömmu Birnu um nýfæddan bróður, hann Ágúst Ottó. Þér leist nú ekkert sérstak- lega vel á að fá hann heim og sagð- ir einfaldlega NEI, við mikinn hlátur okkar Hjalta. Fljótt urðu þið bræður, svo nálægt í aldri en þó gjörólíkir, nánustu vinir og trúnaðarfélagar. Svo kom yngsta systkinið, litla Birna okkar sem þú passaðir svo vel upp á og elskaðir. Unglingsárin tóku við hjá okkur og þá kom meira í ljós hversu ólík við öll vorum. En um leið hversu mikið við gátum lært af hvert öðru og það nýttum við okkur vel. Betri systkinahóp er ekki hægt að óska sér. Þegar að við komum öll sam- an þá var alltaf einkahúmorinn, gleðin og kærleikurinn ráðandi. Bústaðaferðirnar á Þingvöllum, utanlandsferðirnar, ferðalögin um landið á jeppanum hans pabba, þar sem setningin „eru ekki allir í stuði“ var endurtekin dag eftir dag, spilakvöldin, fjölskyldukvöld- in okkar dýrmætu, milljón góðar minningar. Þegar þú komst á unglingsárin þurfti ég svo að sætta mig við það að litli bróðir minn var einfaldlega orðin miklu meira töff en ég. Út- geislun þín og gleði var svo ótrú- lega sterk og það vildu allir vera í kringum þig. Þú lifðir hátt og hratt og vildir upplifa allt það besta sem lífið hafði upp á að bjóða. Þú varst fordómalaus, hlýr og skilningsríkur og ég var mjög stolt af þér fyrir það. Þú varst allt- af heiðarlegur við mig og treystir á mig og fyrir það er ég þakklát. Fjölskyldan var þér mikilvæg og ég hef sjaldan heyrt ungan dreng tala af svo mikilli ástúð og virð- ingu um mömmu sína, sem sagði svo mikið um hvernig maður þú varst. Þú sást fegurðina í svo mörgu, oft hversdagslegum hlut- um sem fara fram hjá flestum og varst duglegur að senda mér myndir af slíkri fegurð sem gerði alla daga aðeins betri. Upp á hæstu eldfjallatinda, í dýpstu myrkustu gljúfur og á stærstu jökla Jarðar mun ég taka þig með og upplifa fegurðina í öllu sem að lífið hefur upp á að bjóða. Því lofa ég þér. Hvíl þú í friði elsku litli bróðir, við hittumst síðar í paradís. Þín systir Ella. Elísabet Pálmadóttir Ég get nánast svarað fyrir alla sem þekktu Bjarna Þór, hann var góður, hjálpsamur og vildi fólki vel. Hann elskaði alla og ekki síst börn og minnimáttar. Hann var stöðugt hlæjandi og breytti flestu í grín. Hann var með einstakt bros, sem lyfti mér alltaf upp. Ég gleymi aldrei samræðunum sem áttu sér stað, einstaka sinn- um á næturnar þar sem við töl- uðum saman um hvað lífið væri stutt. Mig langar að setja hér ljóð eft- ir Hrefnu Tynes, langömmu okk- ar, sem hún samdi fyrir Bjarna á skírnardaginn hans. Honum þótti mjög vænt um þetta ljóð og lét húðflúra það á sig þó nokkrum ár- um seinna. Blessa, faðir, litla vininn, vertu honum ljós og líf. Hvert sem annars leið hans liggur örugg er þín hjálp og hlíf. Elsku Bjarni minn. Orð fá ekki lýst hvað ég mun sakna þín mikið. Þú kenndir mér svo margt og varst sannarlega besti bróðir sem hægt var að hugsa sér. Og er ég ævinlega þakklát fyrir það. Ég veit þú vakir yfir okkur. Ég elska þig að eilífu og minning þín mun lifa í hjörtum okkar allra sem eftir erum. Guð geymi þig. Takk fyrir að vera bróðir minn. Þín litla systir Birna Lind. Þegar foreldrar mínir komu með mig heim af fæðingadeildinni leist Bjarna bróður ekkert á mig. Hann vildi að þau skiluðu mér strax aftur upp á spítala. Hann var ekki lengur eina barnið á heim- ilinu og líkaði ekki athyglin sem ég fékk. En hann komst yfir þetta og með tímanum fór honum að líka ágætlega við mig og fljótt urðum við miklir vinir. Bjarni varð mikil fyrirmynd í mínu lífi og mjög snemma ákvað ég að ég ætlaði að verða jafn flottur og hann. Bjarni var mikill prakkari og hann tók mig oft með sér í alls konar ævintýri. Þegar ég var fjög- urra ára og Bjarni þá sjö voru Bjarni og félagar hans á leið út að leika. Ég spurði þá hvort ég mætti koma með og hann sagði já og tók mig með. Hann skammaðist sín ekkert fyrir að hafa litla bróður með, heldur tók hann mig alltaf undir sinn væng. Það gladdi Bjarna mest að fá að gleðja aðra og ekki síst þá minni máttar. Bjarni starfaði lengi í Hinu húsinu með þroskaskertum krökkum og hann var þeim mikill gleðigjafi. Bjarni framleiddi gleði og orku hvert sem hann fór og í fjölskylduboðum var alltaf aug- ljóst þegar Bjarni var á svæðinu því hláturinn og hávaðinn í honum heyrðist milli hæða. Það var alltaf stutt í grínið hjá honum. Bjarni var góður bróðir og hann var líka góður vinur. Við töl- uðum oft um lífið og tilveruna og mér fannst eins og ég væri að tala við sjálfan mig þegar ég talaði við Bjarna. Hann skildi mig það vel og svo líkir vorum við. Bjarni hefur verið mér við hlið allt mitt líf og mun vera það áfram í minningunni. Nú er hlutverki hans í þessu lífi lokið og ég er viss um að hans bíð- ur annað og stærra hlutverk á nýj- um stað. Ég veit að inni í honum syngur ennþá vitleysingur. Ég elska þig Bjarni minn og sakna þín. Þinn bróðir Ágúst Ottó Pálmason. Elsku Bjarni bróðir. Ég sem hélt að ég gréti ekki. Það er margt í þessum heimi sem maður skilur ekki og þetta er eitt af því. Sorgin er mikil en eins og sagt er þá er sorgin ást sem kemst ekki til skila. Þú komst með látum inn í líf okkar og það var alltaf fjör í kring- um þig. Þegar ég flutti 13 ára gamall til ykkar í Logalandið fékk ég að taka betur þátt í fjörinu. Hvort sem ég var vakinn við að fá golf- kúlu í hausinn svo að ég vaknaði og kæmi að leika eða þú ryddist inn í herbergi mitt þegar ég var virðulegur táningur þá fyrirgaf maður þessu brosi og augum allt. Þú varst alltaf að prakkarast eitt- hvað, spilandi fótbolta, körfubolta á planinu eða rennandi þér á sleða, orkan var svo mikil. Þegar þú upp- götvaðir leyni-nammiskápinn í eldhúsinu, sem ég hafði löngum sótt lymskulega í, fórst þú aðra leið. Þú tókst ekki einn mola og faldir slóð þína heldur kláraðir þú alla molana og sagðir svo hrein- skilnislega að sektin yrði sú sama við að taka alla molana eins og að taka bara einn. Á unglingsárunum eru mér minnisstæðar þær utanlandsferð- ir sem við fórum saman. Ein ferð- in var til Englands þar sem að við sáum bæði mína menn og svo ykk- ar Ágústar menn spila. Í Bítla- borginni fannst þér ekkert sjálf- sagðara en að skella þér í dulargervi minna manna og á leiknum ákvaðst þú að þykjast syngja með ensku bullunum. Það þótti þeim ekki jafn fyndið og okk- ur. Eftir leik þinna manna fórum við svo baksviðs þar sem þú sem sannur bróðir barst Ágúst á öxlum þér svo að hann gæti séð átrún- aðargoðið sitt. Bjarni Þór Pálmason Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, BIRGIR HALLUR ERLENDSSON skipstjóri, Hraunvangi 1, Hafnarfirði, lést fimmtudaginn 15. mars á Landakoti í Reykjavík. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 27. mars klukkan 15. Arndís Birgisdóttir Kristján Haraldsson Erlendur Þ. Birgisson Hallur Birgisson Kristín Dóra Karlsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HJALTLÍNA SIGRÍÐUR AGNARSDÓTTIR frá Ísafirði Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ er látin. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 22. mars klukkan 13. Sigurbjörg Gísladóttir Herdís J. Thompson Allyn Thompson Sigríður Jóhannesdóttir Kristjana M. Jóhannesdóttir Páll Sólberg Eggertsson Þuríður Sveinsdóttir Brynja Jóhannesdóttir Sigurjón Stefánsson Jóhanna Jóhannesdóttir Guðmundur Hj.F. Jóhannes. Eyrún Anna Gestsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi GARÐAR GUÐJÓNSSON lést á Hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 14. mars. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju miðvikudaginn 28. mars klukkan 13. Kristín Jóhannesdóttir Sævar Garðarsson Jóna Fríða Gísladóttir Rúnar Garðarsson Þóra Einarsdóttir Hrefna Garðarsdóttir Úlfar Garðarsson barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.