Morgunblaðið - 20.03.2018, Síða 31

Morgunblaðið - 20.03.2018, Síða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 ✝ MatthildurValdís Elíasdóttir fædd- ist 21. mars 1923 á Elliða í Staðar- sveit, Snæfells- nesi. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund 23. febrúar 2018. Foreldrar henn- ar voru Elías Kristjánsson frá Lágafelli, f. 29. júlí 1880, d. 10. desember 1938, og Sigríður Guðrún Jó- hannesdóttir frá Dal í Mikla- holtshreppi, f. 25. júní 1888, d. 16. október 1928. Alsystkini: Kristján, f. 1911, d. 1988; Vigdís Auðbjörg, f. 1914, d. 1965; Jóhanna Hall- dóra, f. 1915; stúlka fædd andvana 1916; Hulda Svava, f. 1917, d. 2002; Jóhannes Sæ- mundur, f. 1920, d. 1921; Unn- ur, f. 1926; stúlka fædd and- vana 1928. Hálfsystkini: Erla, f. 1932; Sigríður Guðrún, f. 1934; Magnús, f. 1935; Elías Fells, f. 1937. Matthildur giftist Sigurði Hjálmari Þorsteinssyni frá Neðri-Miðvík, Aðalvík á Horn- ströndum, f. 6. mars 1918, d. 9. september 1984. Foreldrar foreldrum sínum og systk- inum á bænum Elliða, Staðar- sveit, Snæfellsnesi. Þegar Matthildur var fimm ára dó móðir hennar heima af barns- förum. Fjölskyldan flutti að Lága- felli 1932 þegar Matthildur var níu ára. Þar bjó faðir hennar með Söru Magnús- dóttur og áttu þau fjögur börn saman. Tíu árum síðar lést faðir Matthildar, þá var hún 15 ára. Matthildur fer til Reykja- víkur vorið 1939, 16 ára og býr hjá elstu systur sinni, Vig- dísi, og Þórarni, mági sínum. Síðan fer hún í vist hjá Stef- áni Má, syni Einars Benedikts- sonar skálds, á Hringbraut. Hún flytur til Vigdísar á Skeggjagötu, þar sem hjónin ráku saumastofu og vann hún þar. Hún kynnist Sigurði H. Þorsteinssyni og 1943 flytja þau til föður Sigurðar í Neðri- Miðvík, Aðalvík á Horn- ströndum. Þau flytja suður 1945, búa fyrst við Nesveg og síðar í íbúðarbragga nálægt Granaskjóli. Þau byggja 1957 á Skólabraut (nú Valhúsa- braut) á Seltjarnarnesi. 1966 flytja þau á Bræðraborgarstíg og þar bjó Matthildur í 40 ár. Sigurður féll frá 1984. Eftir heilaáfall 2006 flytur Matthildur í Staðarsel ásamt Elíasi og býr heima þar til hún fer á Grund 2012. Þar lést hún 94 ára að aldri. Útförin hefur farið fram. hans voru Þor- steinn Bjarnason frá Neðri-Miðvík og kona hans, Hólmfríður Ragn- heiður Guðmunds- dóttir, f. 20. nóv- ember 1890, d. 3. ágúst 1921. Börn þeirra: 1) Hafþór Vestfjörð f. 16. febrúar 1943, d. 22. júní 1997, maki Margrét Helga- dóttir, börn þeirra Helgi og Sigurður. 2) Ragnar Vest- fjörð, f. 17. janúar 1945, maki Þórunn Kristjónsdóttir, barn þeirra Sigríður Rita, Þórunn átti fyrir Stein, Baug og Helgu Jónu. 3) Elías Vest- fjörð, f. 8. október 1947. 4) Þorsteinn Vestfjörð, f. 21. mars 1949, maki Ingunn Hrefna Albertsdóttir, barn þeirra Sigríður Hrefna, Ing- unn Hrefna átti fyrir Albert. 5) Sigþór Rúnar, f. 21. sept- ember 1954, d. 12. desember 1975. 6) Hjördís Svava Vest- fjörð, f. 2. nóvember 1959, sambýlismaður Benedikt Bjarnason, Hjördís átti fyrir Hauk Davíð, Benedikt átti fyr- ir Snorra, Bjarna Þór og Kjartan. Matthildur bjó ásamt Mikið er ég þakklát fyrir samveruna þessa löngu ævi og að þú varst skýr og minnug allt til enda. Það er ekkert sjálf- sagt. Þú sagðir mér oft sögur af því þegar þú varst komin til Reykjavíkur, nýorðin 16 ára. Sögur af mannlífinu, konunum á saumastofunni, vinkonunum og ferðunum í Gúttó og Iðnó til að dansa. Það fannst þér skemmtilegt. Þú varst létt í lund, hláturmild og alltaf fannst mér mikil rómantík í þér, allt til enda varstu líka bæði stolt og sterk. Ekki varstu mikið að kvarta eða dvelja við það sem betur mátti fara, vildir alltaf gera gott úr hlutunum. Þú hafð- ir tamið þér ákveðið æðruleysi. Þú hafðir gaman af því að lesa og þá sérstaklega frásagnir af Snæfellsnesi eins og ævisögu Árna prófasts Þórarinssonar eftir Þórberg Þórðarson, mikið gastu hlegið að henni, einnig bækurnar hans Oscars Clausen af góðu fólki og fleira. Einnig hafðir þú áhuga á bókum um andleg málefni og framhaldslíf. Þær voru ófáar ferðirnar sem ég arkaði úr Vesturbænum upp í stóra, fallega húsið í Þingholt- unum, þar sem Borgarbóka- safnið var til húsa og fékk lán- aðar bækur handa okkur. Yfirleitt Enid Blyton bækurnar handa mér og ofangreindar bækur handa þér og bar ég mest heim 10-12 bækur í einni ferð. Uppáhalds ljóðskáldið þitt var Davíð Stefánsson, þú hélst líka upp á Jóhannes úr Kötlum, Matthías Jochumsson og Tómas Guðmundsson. Útvarpið var alltaf í gangi heima og þú kunnir textana við öll dægurlögin og raulaðir með. Svo heklaðir þú ófá rúmtepp- in úr lopa og gafst eitthvað í gjafir, prjónaðir líka og saum- aðir út. Þér þótti alltaf vænt um sveitina þína, Staðarsveit á Snæfellsnesi og Jökulinn. Syst- ir þín, Vigdís, og Þórarinn mað- ur hennar áttu sumarbústað rétt hjá Elliða, þar sem þú fæddist. Þú varst svo heppin að geta stundum farið þangað að sumri og það fannst þér ynd- islegt. Þá var rölt út að gamla bæjarstæðinu á Elliða, undir Elliðahamrinum. Þar var gamli hestasteinninn enn. Og við komum við hjá stóra álfaklett- inum og köstuðum kveðju á álf- ana, ég trúði því auðvitað að þeir byggju þar. Þú kenndir mér að þekkja hljóðið í fugl- unum og að þekkja fífuna og fleiri blóm. Eftir að mamma fór á Grund, gat hún komið í heimsóknir annað slagið í Staðarselið þar sem hún bjó áður. Elli bróðir bjó þar og tók á móti henni og hún gat stoppað í einhverja daga. Yfirleitt er talað um að fólk fari inn á hjúkrunarheimili í hvíldarinnlagnir en hún sagð- ist vera að fara í hvíldarinnlögn þegar hún fór heim og hafði gaman af. Smám saman hrakaði sjón- inni og þá hlustaði mamma meira á hljóðbækur, útvarp og tónlistardiska inn á milli. Hún var og er einstaklega góð fyrirmynd og verður það áfram. Ég flyt þér, móðir, þakkir þús- undfaldar, og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt. Er Íslands bestu mæður verða taldar, þá mun þar hljóma fagurt nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna, blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna, – og bráðum kemur eilíft vor. (Davíð Stefánsson) Hjördís (Hjöddý) Fyrir um það bil níu árum rugluðum við Hjördís dóttir þín reytum okkar saman. Þá varstu komin í hjólastólinn í Staðar- seli. Ég þurfti ekkert að þreifa mikið fyrir mér til að finna að þarna fór góð og heilsteypt manneskja. Þú varst ekkert að barma þér yfir þínu hlutskipti eða kvarta yfir neinu. Tókst hlutunum með æðruleysi og alltaf var stutt í hláturinn og kímnina. Og það var ómögulegt annað en að hlæja með þegar líkaminn hristist af kitlandi hlátri. Ekki síst þegar bernsku- brek kraftmikilla ungra manna á Seltjarnarnesinu voru færð í sagnabúning. Þú varst sagnafróð og minn- ug en hafðir þínar skoðanir sem þú lést frá þér fara óhikað. Hugurinn var skýr alveg fram á hinstu stund. Síðustu árin dvaldir þú á dvalarheimilinu Grund. Ég varð ekki var við annað en að þar liði þér vel, þó einkum eftir að þú fékkst sérherbergi og gast hlustað á hljóðbækur og út- varpið til að stytta þér stundir. Fregnir bárust af því að fyrst eftir að þú komst á Grund hefðu gestir og gangandi mátt forða sér á hlaupum þegar Matthildur brunaði um gangana á hjólastólnum. Á gömlum myndum má sjá glæsilega konu sem horfir með reisn fram á veginn. Þessari reisn hélstu ávallt, allt fram á síðustu stund. Og ekki þætti mér það ólíklegt að ungir menn hefðu snúið sér við á götu á stríðsárunum þegar Matthildur gekk hjá. Þú varst vandlát á fatnað og vildir vera vel tilhöfð ekki síður en unglingarnir. Þó svo að aldurinn tæki sinn toll og líkamleg geta hörfaði hélstu þínu stolti. Degi er tekið að halla, þinn tími var kominn. Það var ekki venja Matthildar að göslast áfram eða vera með hávaða, friðsemdin var henni eðlislæg. Þegar þú lagðir aftur augun í hinsta sinn var mikil ró yfir þér. Þannig kvaddirðu þennan heim. Matthildur mín, takk fyrir allt. Hvíl í friði. Benedikt Bjarnason. Það var alltaf tilhlökkunar- efni að fara í heimsókn til Matt- hildar ömmu. Ekki það að elsku faðir minn sálugi hafi alltaf lát- ið okkur bræðurna vita fyrir- fram þegar bíltúrinn skilaði okkur óvænt í Vesturbæinn og lagt var fyrir framan húsið á Bræðraborgarstígnum. Amma átti nefnilega alltaf appelsín í glerflöskum og kynstrin öll af kökum og kexi sem við bræð- urnir höfðum gríðarlegan áhuga á og oft greiðan aðgang að í heimsóknum okkar. Meðan við gæddum okkur á kræsingunum í eldhúsinu stússaði amma stanslaust í einhverju og sagði okkur sögur af honum Krumma í næsta húsi eða öðru sem var í gangi í hverfinu og sjaldnast settist hún til borðs með okkur gestunum. Oft var gestkvæmt hjá ömmu og fjörugar umræður um landsins gagn og nauðsynj- ar fóru fram í eldhúsinu góða. Í minningunni var heimilið á Bræðraborgarstíg næstum eins og óformlegur samkomustaður ættingja og vina. Fólk leit inn, sat í einhvern tíma og spjallaði. Þarna leið öllum vel í góðum fé- lagsskap. Þegar komið var í heimsókn á Bræðraborgarstíginn og gengið upp stigann að útidyra- hurðinni tók oft á móti manni grjónagrautur í skál sem amma setti út fyrir kettina í hverfinu. Ólíkt okkur var köttunum ekki boðið inn því inni í borðstofu voru tveir gárar í búri og hefði þeim þótt sú heimsókn frekar óþægileg. Þessir gárar, sem ég man ekki hvort hétu eitthvað, minntu reglulega á sig með góðlátlegu tísti. Á fyrri hluta unglingsára minna heimsótti ég ömmu oftar og fékk þá stund- um að vera yfir nótt. Oft sat ég hjá búri gáranna, rétt hjá svarta þunga skífusímanum, og lék mér að segulbitum eða lá í sófanum inni í stofu og las sí- gildu myndasögurnar um Inn- rásina frá Mars, Ferðina til tunglsins eða Prinsinn og betl- arann. Þegar ég var yngri hlustaði ég á Kardimommu- bæinn í plötuspilaranum og síð- ar lá ég yfir upptökum á Skon- rokki í myndbandstækinu hans Denna. Amma tók alltaf einstaklega vel á móti mér og sýndi þessum unga frekjuhundi sem ég gat stundum verið mikla þolinmæði og hlýju. Amma hafði svo góða nærveru að það skipti ekki máli hvort ég sat þögull eða talaði; manni leið vel hjá henni. Elsku yndislega amma mín. Takk fyr- ir allar góðu stundirnar okkar saman. Ég reyni að tárast ekki yfir því sem ég hef misst, held- ur gleðjast yfir því sem hefur gerst. Þinn Helgi. Matthildur Valdís Elíasdóttir ✝ Erna R. Sigur-grímsdóttir fædd- ist 29. júní 1938 í Reykjavík. Hún lést 28. janúar 2018. Foreldrar hennar voru Valgerður Bjarnadóttir, f. 3. ágúst 1914, d. 8. mars 1993, og Sigurgrímur Grímsson verkstjóri, f. 22. júlí 1912, d. 16. ágúst 1992. Systkini Bjarni Sigurgrímsson, f. 30.8. 1941, og Ingibjörg Sigurgríms- dóttir, f. 24.8. 1947, d. 30.1. 2018. Erna giftist Árna Ólafssyni, f. á Breiðabólstað í Miðdölum 4. sept. 1932, d. 28. júní 2004, bónda í Hlíð, Hörðudal, hinn 26. júní 1959. Foreldrar hans voru Ólafur Árnason frá Hólmi í Austur-Landeyjum, f. 20. ágúst 1892, d. 28. okt. 1975, og Sigríð- ur Ögmundsdóttir frá Fjósum í Búðardal. Fósturforeldrar Árna voru Ólafía Jónsdóttir, f. 27. júlí 1903, d. 20. des. 1988, og Gestur Jósefsson, f. 22. maí 1898, d. 11. des. 1983. Sonur þeirra er Sigurgrímur Ingi Árnason, f. 22. feb. 1965. Árni var bóndi þar til hann Foreldrar hennar voru Valgerður Bjarnadóttir, f. 3. ágúst 1914, d. 8. mars 1993, og Sigur- grímur Grímsson verk- stjóri, f. 22. júlí 1912, d. 16. ágúst 1992. Systkini Bjarni, f. 30.8. 1941, og Erna R., f. 29.6. 1938 í Reykjavík, d. 28. janúar 2018. Ingibjörg var gagn- fræðingur að mennt en fór vestur um haf sem barn- fóstra og eignaðist þar börn sín, Andrew M. Cubero og Eriku Ernu Cubero með Angel M. Cubero, f. 1947, d. 1984. Ingi- björg á fimm barnabörn, þau Marvin, Tönju, Alexander Bald- vin, Kristófer Inga og Birgi. Ingibjörg starfaði m.a hjá Pósti og síma og síðar hjá Út- vegsbanka/Íslandsbanka í er- lendum viðskiptum. Ingibjörg og systir hennar Erna fæddust á Laugarásvegi 54, en foreldrar þeirra bjuggu lengst af á Hjalla- vegi 12. Ingibjörg hafði gaman af lestri góðra bóka og krossgátur voru í uppáhaldi. Útför Ingibjargar fór fram í kyrrþey. brá búi og fluttist til Reykjavík- ur árið 1975 og gerðist starfs- maður í ÍSAL. Stofnaði Ker- fóðrun ásamt fleiri starfsmönn- um ÍSAL. Erna var húsmóðir í Hlíð en eftir að þau hjón fluttu til Reykjavíkur starfaði hún hjá Sambandinu við tollútreikn- inga. Hún var gagnfræðingur að mennt. Erna og systir hennar höfðu yndi af ferðalögum og fóru þær ásamt Árna margar góðar ferð- ir og síðar einar eftir hans dag. Útför Ernu fór fram í kyrr- þey. Ingibjörg Sigurgrímsdóttir fæddist 24. ágúst 1947 í Reykja- vík. Hún lést 30. janúar 2018. Jarðneskt líf okkar er ekki ei- líft og öll snúum við aftur til foldar. Við erum gestir á þessari jörð sem koma og fara. Þær systur Erna Ragnheiður og Ingibjörg voru ekki jafnaldrar, en mjög nánar. Báðar vel gerðar og góðar manneskjur þannig að eftir því var tekið. Það skiptir máli í þessum heimi að hafa gott hjartalag og vilja öðrum vel, því eins og allir vita er kærleikurinn ofar öllu. Því er það mikil gæfa að vera þess aðnjótandi að kær- leikurinn finni sér líf í tilvist okkar allra. Þær systur voru fullar af kærleika. Stóra systir, Erna Ragnheiður, var hafsjór af fróðleik um t.d. ættir og upp- runa þeirra beggja og þannig leið mér eins og ég hefði per- sónulega þekkt foreldra þeirra, þau Völu Bjarna og Sigurgrím, ömmu Magneu, ömmu Sumar- línu og fleiri. Sögurnar af fólkinu hennar voru góðar og föður- bræðurnir, synir ömmu Línu, voru líka í uppáhaldi, sérlega einn sem gaf Ernu þvottabala og sólskinssápur sem var fengur, því þá gat hún hjálpað ömmu Línu að þvo þvott, gólf og tröpp- ur. Ingibjörg, litla systir, var dulari og sagði ef til vill minna, en ef þannig lá á henni gat hún opnað sig og þá var jafnan gott að leggja við hlustir. Báðar voru þær eldklárar og létu sér annt um fólkið sitt, bæði vini og vandamenn og vildu þeim allt hið besta, enda með hjartað á réttum stað. Það sem er ein- kennilegt en undirstrikar klár- lega hvað þær systur voru nán- ar, er að andlát þeirra bar að með aðeins tveggja daga milli- bili, sem segir mjög mikið um mjög sérstakt samband þessara tveggja heiðurskvenna. Þær vildu ekki skiljast hvor frá ann- arri, heldur vera saman í þess- um heimi og þeim næsta, hjá sínu fólki. Ég var svo heppin að fá að vera nærri þessum elskum nokkuð lengi og er því afar þakklát. Maður fær ekki alltaf tækifæri til að kynnast góðu fólki og njóta samvista við það. Ég vil að lokum votta ástvin- um systranna samúð mína við fráfall þeirra og þakka þessum samhentu systrum áralanga vin- áttu og góða samveru. Í hel trega eilífðra tára í tilveru genginna orða. Fugl heljar í fánýti sára er flaug á væng í roða rósar í engladal fráfalls, Herra kærleika blessar. Fall í fang heljar í kæru ofin ástúð í nánd þinna. Félagi farinn í dal hinna, á fund Paradísa væru vina, rós lifir í engladal Guðs, Jesús horfir í hlýju á þig. Frá í ferð í láti til þinna falleg englasál fylgi þér. Fór frá í Paradís hinna ferðalag í eilífð sem er rósaljós í engladal hels, Herra í kærleik hérna. Í kalli er kærleiks gjöf kyrrsett er rósin í sorg. Flýgur fugl, horfir í höf ferðast víða um borg, rós engladals frá gröf, Jesús vill bænörva þig. Vökult flug fugls í höf, ferðlag ástvinar á skýi. Vonvísi, ekkert meiðir, vænting staðurinn nýi. Rósrof í engladal hels. Herra, kærleikur þeirra. Endastöð í eilífð sé þín í ósk að gæfa sé kærri að fugl fangi þarfa sýn frá himni er engill nærri í kliði látinn frá Paradís, Jesús vill bænheyra þig. (Jóna Rúna Kvaran.) Blessuð sé minning Ernu Ragnheiðar og Ingibjargar Sig- urgrímsdætra. Jóhanna B. Magnúsdóttir. Erna R. Sigurgrímsdóttir og Ingibjörg Sigurgrímsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og frænka, KRISTBJÖRG G. KRISTJÁNSDÓTTIR, Melaheiði 15, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Boðaþingi, fimmtudaginn 15. mars. Útför hennar verður gerð frá Digraneskirkju föstudaginn 23. mars klukkan 15. Gretar Þór Bergsson Þórir Bergsson Kristín Bergsdóttir Einar Baldvin Pálsson Kristján Þór Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.