Morgunblaðið - 20.03.2018, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.03.2018, Blaðsíða 35
Raufarhöfn voru auðvitað Óskar Halldórsson, þeir Sveinn Ben. og Vilhjálmur Jónsson sem ráku Óðin og Valtýr Þorsteinsson. Óskar, eða Íslandsbersi, eins og Halldór Laxness kallar hann í Guðs- gjafaþulu, var heimagangur heima hjá okkur, alltaf hress og kátur. Hann gaf mér einu sinni ávöxt sem ég hafði aldrei séð áður. Ég ætlaði að bíta í ávöxtinn en Óskar hló og sagði: „Þú verður fyrst að afhýða þetta.“ Það var þá banani. Óskar var alltaf að færa fólki eitthvað, var alúðlegur og skemmtilegur og ekki til í honum hroki.“ Eftir hjúkrunarnámið fór Ásthild- ur að vinna á Sjúkrahúsi Akraness og vann þar alla sína starfsævi. Hún stundaði almenna hjúkrun til ársins 1958. Starfaði síðan við Ungbarna- eftirlitið á Akranesi 1964-70, var hjúkrunarforstjóri við Sjúkrahúsið á Akranesi 1970-75 og var hjúkrunar- framkvæmdastjóri þar 1975-93 er hún lét af störfum. Ásthildur hefur starfað í Odd- fellowreglunni á Akranesi, stúku nr. 5 Ásgerði, frá árinu 1984 og gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum. Ásthildur hefur ferðast töluvert og hefur mikla ánægju af klassískri tónlist: „Ég vann yfirleitt öll sumur á sjúkrahúsinu og tók því sumarfríið á veturna á áttunda áratugnum. Þá fórum við hjónin í mörg ár til Gran Canaria í janúar eða febrúar og dvöldum þar fram í mars. Seinna fórum við að ferðast meira um Evr- ópu. En nú erum við hætt þessu flandri fyrir nokkrum árum, erum áskrifendur að Sinfóníutónleikum og förum mikið í leikhús. Annars er ég mikil fjölskyldu- manneskja. Ég vil helst vera á með- al minna nánustu, hef yndi af yngstu kynslóðinni og nýt þess að fylgjast með henni vaxa úr grasi.“ Fjölskylda Eiginmaður Ásthildar er Helgi Kristmann Haraldsson, f. 13.10. 1933, fyrrv. bifreiðastjóri og fram- kvæmdastjóri. Foreldrar hans voru Haraldur Kristmannsson, f. 2.8. 1893, d. 13.12. 1973, bifreiðastjóri á Akranesi, og k.h. Jóna Þorleifs- dóttir, f. 12.5. 1897, d. 22.9. 1992, húsmóðir á Akranesi. Börnin eru 1) Hólmfríður Jóns- dóttir, f. 26.6. 1952, sjúkraliði í Mos- fellsbæ, en hún var ung ættleidd af bróður Ásthildar, og konu hans, og á Hólmfríður á þrjú börn; 2) Haraldur Helgason, f. 10.12. 1958, verktaki á Akranesi og eru börn hans Krist- rún, f. 1995, og Ásthildur Jóna, f. 1998; 3) Einar Baldvin Helgason, f. 20.7. 1960, vélvirkjameistari á Akra- nesi en kona hans er Sigríður Ása Bjarnadóttir leikskólakennari og eru börn þeirra Baldvin, f. 1985, Ása Birna, f. 1988, og Bjarni Kristmann, f. 1993; 4) Gerður Helga Helgadótt- ir, f. 8.2. 1964, leikskólakennari á Akranesi en maður hennar er Sæv- ar Jónsson blikksmíðameistari og eru börn þeirra Emil Kristmann, f. 1990, og Jón Helgi, f. 1998. Lang- ömmubarið er Kári Leó Emilsson, f. 2016. Systkini Ásthildar; Jón Einars- son, f. 1923, d. 1993, vélstjóri hjá Landhelgisgæslunni, búsettur í Reykjavík; Katrín Einarsdóttir, f. 1925, nú látin, húsfreyja í Atlanta í Bandaríkjunum; Árni Einarsson, f. 1927, kennari, búsettur í Hafnar- firði; Sveinn Einarsson, f. 1929, rennismiður, búsettur í Reykjavík; Baldvin Einarsson, f. 1940, bygg- ingafræðingur, búsettur í Reykja- vík, og Guðrún Einarsdóttir, f. 1942, húsfreyja á Laugarvatni. Foreldrar Ásthildar voru Einar Baldvin Jónsson f. 25.8. 1894, d. 11.2. 1968, hreppstjóri á Raufar- höfn, og k.h., Hólmfríður Árnadótt- ir, f. 19.9. 1904, d. 17.7. 1992, hús- freyja á Raufarhöfn. Ásthildur Einarsdóttir Sabína Stefanía Jónsdóttir húsfr. í Þistilfirði Árni Árnason b. í Þistilfirði, síðast á Svalbarðsseli Ástfríður Árnadóttir húsfr. á Kópaskeri Árni Ingimundarson starfsm.Kaupfélags N-Þing. á Kópaskeri, frumbýlingur þar Hólmfríður Árnadóttir húsfr. á Raufarhöfn Hólmfríður Jónsdóttir húsfr. á Brekku Ingimundur Rafnsson hreppstj. á Brekku í Núpasveit Páll Einarsson ýslum., hæsta- éttardómari og fyrsti borgar- stjórinn í Rvík Unnur Ólafsdóttir veðurfr. í Rvík Franz Eduard Pálsson deildarstj. í Rvík Kristján Eldjárn gítarleikari Ari Eldjárn uppistandari Ólafur Pálsson verkfr. í Rvík Dr. Páll Einarsson jarðeðlisfr. í Rvík Baldvin Einarsson verkfr. í Rvík s r Einar Baldvin Pálsson yfirverkfr. hjá Reykjavíkur- borg Guðrún Laxdal húsfr. á Akureyri Jón Guðmundsson hafnsögum. á Akureyri Pálína Hildur Jónsdóttir húsfr. á Raufarhöfn Jón Einarsson kaupm. á Raufarhöfn Kristín Pálsdóttir dóttir Páls Jónssonar sálmaskálds í Viðvík Einar Baldvin Guðmundsson hreppstj., oddviti og alþm. á Hraunum í Fljótum, bróðursonur Baldvins Einarssonar sem gaf út Ármann á Alþingi Úr frændgarði Ásthildar Einarsdóttur Einar Baldvin Jónsson hreppstj. og kaupm. á Raufarhöfn ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 Loftpressur - stórar sem smáarBjörn Þorsteinsson sagnfræði-prófessor fæddist að Þjót-anda í Villingaholtshreppi 20.3. 1918. Þótt hann fæddist á Suður- landi var hann í raun af þekktum hún- vetnskum ættum, sonur Þorsteins Björnssonar, kaupmanns og frumbýl- ings á Hellu á Rangárvöllum, og f.k.h., Þuríðar Þorvaldsdóttur kenn- ara. Þorsteinn var bróðir Sigurgeirs, föður Þorbjörns, prófessors í eðlis- fræði við HÍ. Þorsteinn var sonur Björns Eysteinssonar í Grímstungu sem var forfaðir ýmissa þjóðkunnra Húnvetninga. Björn lauk stúdentsprófi frá MR 1941, cand.mag.-prófi í íslenskum fræðum frá HÍ 1947, stundaði fram- haldsnám við University of London 1948 og 1949 og varði doktorsritgerð HÍ 1970. Björn kenndi við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, Iðnskólann í Reykjavík og Laugalækjarskóla, kenndi sögu við MH og var prófessor í sögu við HÍ frá 1971. Þá var hann fararstjóri á sumrin um skeið, stofnaði leiðsögunámskeið á vegum Ferðaskrifstofu ríkisins 1960 og veitti þeim forstöðu til 1967 og síð- an, ásamt Vigdísi Finnbogadóttur. Björn var afkastamikill fræðimaður og stundaði brautryðjendarannsóknir á samskiptum Íslendinga og Eng- lendinga á síðmiðöldum. Meðal helstu fræðirita hans má nefna Nýja Íslandssögu; Enskar heimildir um sögu Íslands á 15. og 16. öld; Ensku öldina í sögu Íslands; Tíu þorskastríð 1415-1976; og Íslenzka miðaldasögu. Björn var formaður Rangæinga- félagsins í Reykjavík, var forseti Sögufélags, formaður Sagnfræð- ingafélagsins og ritstjóri Sögu. Þá fór hann í framboð fyrir Sósíalistaflokk- inn og Alþýðubandalagið. Björn lést 6.10. 1986. Í tilefni þess að hundrað ár eru liðin frá fæðingu Björns, verður haldið minningarþing honum til heiðurs, Bjarnarmessa, í Veröld, Húsi Vigdís- ar Finnbogadóttur, í dag kl. 16.30- 18.30. Merkir Íslendingar Björn Þorsteinsson 90 ára Adda Geirsdóttir 85 ára Friðrik Áskell Clausen Hörður Þormar Jóhannes Brandsson Rafn Heiðar Þorsteinsson Ragnar Ásmundsson Sigurbirna Hafliðadóttir 80 ára Ólafía Bjarney Ólafsdóttir 75 ára Ágúst Guðjónsson Brynjar Viborg Guðrún Gyða Sveinsdóttir Hilmar Guðmundsson Hjálmtýr Guðmundsson Júlíus Sæberg Ólafsson Óskar Már Ólafsson Páll Þorsteinsson Sigurður Sigurðsson Þorbjörg Ásmundsdóttir 70 ára Grétar Geirsson Guðjón Sveinbjörnsson Guðmundur Ingi Hildisson Heiðrún Sveinbjörnsdóttir Heimir Skarphéðinsson Jóhannes Þórarinsson Kristján Ólafsson Ragnhildur Ásmundsdóttir Sigríður Gunnarsdóttir Sigurður Þráinsson Valdís R. Ívarsdóttir Þóra Þórarinsdóttir 60 ára Algimantas Rumsevicius Guðríður Jónsdóttir Hörður Grétar Olavson Ingibergur G. Þorvaldsson Katrín Baldursdóttir Nexhmije Fuga Elezdóttir Óskar Kristinsson Sigurveig Pétursdóttir Valdís Inga Valgarðsdóttir Þyri Magnúsdóttir 50 ára Ari Hallgrímsson Boban Ristic Daiva Kiskeviciene Dragan Kristinn Stojanovic Elsa Björk Harðardóttir Geirrún K. Stefánsdóttir Guðmundur Breiðfjörð Guðný E. Briem Óladóttir Hildur Gylfadóttir Jóhannes Þ. Jóhannesson Jón Arnar Baldurs Páll Grímsson Sigurlaug G. Skaftadóttir Tomasz Jan Wróblewski Zbigniew Józef Troscianko 40 ára Arnór Fannar Reynisson Artur Miroslaw Lepkowski Árnmar J. Guðmundsson Björg Pétursdóttir Dröfn Nikulásdóttir Egill Örn Sverrisson Fanný B.M.Jóhannsdóttir Heiða Jóhannsdóttir Kjartan Þ. Þorvaldsson Krishna Kumar Damodaran Ólafur Pétur Pétursson Óskar Örn Árnason Sigurbjörg Ólafsdóttir Svetlana Zaytseva 30 ára Harpa Hrund Jóhannsdóttir Helena Björk Eiríksdóttir Ragnheiður Stefánsdóttir Sandra Bjarney Helgadóttir Snævar Ingi Hafsteinsson Steinþór John Magnússon Þór Sævarsson Carlsson Til hamingju með daginn 30 ára Sigrún ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk BA-prófi í íslensku við HÍ og BA-prófi í myndlist við LHÍ og er að vinna í textíl og við skriftir og vinnur með IYFAC. Maki: Friðgeir Einarsson, f. 1981, rithöfundur og sviðslistamaður. Sonur: Tómas, f. 2013. Foreldrar: Huld Konráðs- dóttir, f. 1963, og Sig- urður Tómas Magnússon, f. 1960. Sigrún Hlín Sigurðardóttir 40 ára býr á Akureyri, lauk kennaraprófi og er leikskólakennari á Trölla- borgum. Maki: Sumarliði Guðmar Helgason, f. 1974, lausna- stjóri og tónlistarmaður. Börn: Gunnlaugur Orri, f. 2000; Hákon Helgi, f. 2003, og Bríet Sunna, f. 2010. Foreldrar: Gunnlaugur Konráðsson, f. 1946, og Valborg María Stefáns- dóttir, f. 1951. Soffía Júnía Gunnlaugsdóttir 40 ára Helga ólst upp í Reykjavík, er þar búsett, lauk BEd.-prófi frá KHÍ og er grunnskólakennari við Hlíðaskóla í Reykjavík. Dætur: Júlía, f. 2003; Laufey, f. 2006, og Katla, f. 2012. Foreldrar: Laufey Jó- hannsdóttir, f. 1955, grunnskólakennari við Hlíðaskóla í Reykjavík, og Steinþór Þórarinsson, f. 1951, d. 1994, húsasmið- ur. Helga Steinþórsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.