Morgunblaðið - 20.03.2018, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.03.2018, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 Opið virka daga 9-18, laugardaga 11-16 • www.rafkaup.is Ármúla 24 • S. 585 2800 Vel var mætt á „rauðum“tónleikum SÍ á fimmtudagþó ekki væri í fulla sneis.Aðalaðdráttaragnið var ugglaust finnska sópransöngkonan er hér kom fram í fyrsta sinn á Ís- landi. Þar næst fjölskrúðug og al- þekkt sinfónía Berlioz. Fyrir settlegustu hlustendum kann þó að hafa vegið móti nafn naumtjáða módernistans Antons Weberns. Það var samt að ósekju, enda verkið frá því áður en tólftóna- aðferð Schönbergs var að fullu um garð gengin meðal þeirra Albans Berg í svokölluðum Seinni Vínar- skóla, nánar til tekið um það leyti sem „atónalt“ forstig hennar vakti mest fyrir nefndum lærimeistara beggja. Og einkum fyrir að vera vel samin og enn áheyrileg tónsmíð sem staðizt hefur tímans tönn betur en margt annað eftir lok síðrómantíkur, eins og vel kom fram í næmri túlkun kvöldsins þar sem SÍ var á efstu doppum þegar í upphafi. Hinir ástríðuþrungnu fimm söngvar Richards Wagner við ljóð Mathilde Wesendonck, einu lög hans fyrir einsöngvara og píanó eftir æskuárin (hér í orkestrun eftir Felix Mottl), hafa verið hljóðritaðir af liggur við hundruðum söngvara og samanburðarvalið eftir því yfir- gengilegt. Sjálfur féll ég á sínum tíma fyrir meðferð hinnar ungversku Sylviu Sass. En þó að stærra raddfæri Karitu Mattila hentaði kannski bet- ur óperufíklum, var túlkun hennar engu að síður fjölbreytt og lág- stemmt innileg þegar það átti við. Var söngkonunni tekið með þvílíkum kostum og kynjum utan úr sal að halda mætti að launuð claque-sveit (að mestu kvenkyns eftir hljóðum að dæma) hefði fylgt henni hingað. Eftir hlé brast á Draumóra- sinfónía Hectors Berlioz í öllu sínu ofskynjunarveldi, sem hefði á sál- arvíkkunartímum hippa eins mátt Hörkuspenn- andi vímukviða Eldborg í Hörpu Sinfóníutónleikar bbbbn Webern: Passacaglia Op. 1 (1908). Wag- ner: Wesendonck-Lieder (1858). Berlioz: Symphonie fantastique (1830). Karita Mattila S og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Yan Pascal Tortelier. Fimmtudaginn 15. mars 2018 kl. 19:30. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST AF TILRAUNUM Ragnheiður Eiríksdóttir heidatrubador@gmail.com Vorið er komið! Veðrið á höfuðborg- arsvæðinu hefur verið með besta móti síðustu daga en það er samt ekki hinn raunverulegi vorboði, held- ur lítil og sakleysisleg hljómsveita- keppni. Já, það er komið að Músíktil- raunum í þrítugasta og sjötta sinn. Þessi litla og saklausa hljómsveita- keppni er reyndar langt því frá að vera léttvæg fyrir íslenska menn- ingu. Sigurvegarar Músiktilrauna skrá sig á blöð sögunnar og fá tæki- færi til að spreyta sig á tónlistar- hátíðum innanlands sem utan, en all- ir þátttakendur fá reynslu í fram- komu og spilamennsku og íslenskt tónlistarlíf græðir á því að fá meiri tónlist og fleiri hljómsveitir. Ég við- urkenni fúslega að vera það mikill tónlistarnörd að ég telji bókstaflega niður dagana þar til tilraunirnar hefj- ast og á sunnudagskvöld var biðin loks á enda og ég trítlaði niður í Hörpu. Sex hljómsveitir voru skráðar til leiks og fyrst til að stíga á svið var 200 Mafía úr Kópavogi sem lék út- hverfarapp. Það voru 7 (sjö!) rapp- arar í þessu fyrsta bandi kvöldsins, ásamt einum taktgerðarmanni. Það er afar sérstakt að heyra sjö raddir flytja stemmur sínar af fullum krafti og sannfæringu, ýmist hverja í sínu lagi eða allar saman. Útkoman var nokkurs konar hættulegur rapp- karlakór og skilaði sér í gæsahúð frá fyrstu sekúndu. Skagabandið Madre Mia var næst á svið, skipað þremur stúlkum á aldr- inum 14-15 ára og þótt æskuljóminn sé alltaf sjarmerandi er þessi hljóm- sveit enn í mótun. Lagasmíðar voru ágætar en ég hefði viljað bæta við áslætti og helst að það vanti aðeins upp á einbeitingu og samspil. Davíð Rist frá Ísafirði var síðastur fyrir hlé og lék lágstemmt en lunga- mjúkt þjóðlagapopp. Síðara lag hans var betra og jafnvel smá krækja í við- lagi og í heildina er þarna prýðis- tónlist á ferð en kannski ekki sú frumlegasta. Eftir ágæta kaffipásu hófst leik- urinn að nýju og hljómsveitin Hug- arró úr Eyjafjarðarsveit steig á stokk. Þrír liðsmenn spila rokk- skotna pönktónlist, og bera með sér frumlegheit og leikgleði, enda segj- ast þeir eingöngu vera í hljómsveit til að skemmta sér og vonandi öðrum í leiðinni. Hugarró er kannski ekki þéttasta sveitin sem keppir í ár, en frjálst flæði trommarans og ferskar tónlistarpælingar voru afar kær- komnar. Tveir tvítugir Reykvíkingar skipa hljómsveitina Pixel Dream sem tók við sviðinu á eftir Hugarró. Laga- smíðar Pixel Dream eru dreymandi tölvupopp eins og nafn sveitarinnar segir til um, en þegar um ósungna tónlist er að ræða er enn mikilvæg- ara að vanda til verks og nostra við lagasmíðar og útsetningar. Þar vant- aði herslumuninn, og útkoman varð því full-óeftirminnileg og flöt. Síðust á svið á fyrsta undan- úrslitakvöldi Músiktilrauna 2018 var Melophobia frá Stykkishólmi sem lék tónlist í anda bandarísks háskóla- rokks. Tónlistin var mjög einföld, en þrátt fyrir að einfaldleikinn sé oftast bestur vantaði samt kjöt á beinin í þessu tilviki. Sjálfir voru liðsmenn í góðum fíling, einkum í öðru laginu sem var meira að segja með smá krækju í viðlagi og óvæntum upp- takts-kafla. Þegar atkvæði úr sal höfðu verið talin voru úrslitin ráðin, og Madre Mia hlaut kosningu úr sal. Dómnefnd kaus svo rapparana úr Kópavogi, 200 Mafía, áfram og þessi tvö bönd eru því komin í úrslit Músiktilrauna og leika aftur næsta laugardag. Frá lungamjúkum þjóðlagapopp- urum til hættulegra rapp-kóra 200 Mafía Nokkurs konar hættulegur rapp-karlakór sem skilaði sér í gæsa- húð frá fyrstu sekúndu, eins og segir í pistli. Sveitin komst áfram í úrslit. Morgunblaðið/Hanna Skagaband Hljómsveitin Madre Mia frá Akranesi komst áfram í úrslit Músíktilrauna eftir kosningu úr sal. Mjúkt Davíð Rist lék lágstemmt og lungamjúkt þjóðlagapopp. » Þessi litla og sak-lausa hljómsveita- keppni er reyndar langt því frá að vera léttvæg fyrir íslenska menningu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.