Morgunblaðið - 20.03.2018, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 79. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Stærstu þotunni snúið til …
2. Hélt framhjá með æskuástinni
3. Svindlsíminn hringdi í lögguna
4. Átján ára og 11 kíló
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Finnski leikhópurinn Blaue Frau
sýnir gagnvirku þátttökuleiksýning-
una 35 x ég og nokkrar leikkonur í
Rósenborg á Akureyri í dag og á
morgun kl. 18 og 20 báða daga og í
Tjarnarbíói 24. og 25. mars kl. 19 og
21. Í verkinu er reynt að skapa femín-
íska útópíu. Gestaleikkona fyrir norð-
an er Saga Geirdal Jónsdóttir og
Kristbjörg Kjeld fyrir sunnan.
Blaue Frau skapar
femíníska útópíu
Svipmyndir af
samfélagi er yfir-
skrift síðasta
Þriðjudagsfyrir-
lestrar vetrarins í
Listasafninu á
Akureyri sem fram
fer í dag kl. 17. Þar
segja myndlistar-
konan Jeannette
Castioni og leikarinn Ólafur Guð-
mundsson frá verkefni sem fjallar um
Íslendinga af mismunandi uppruna í
samhengi við skapandi upplifun þeirra
af sjálfum sér og samfélaginu í gegn-
um leiklist, myndlist og gjörninga.
Svipmyndir af sam-
félagi á Akureyri
Í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá
fæðingu Björns Þorsteinssonar er
efnt til Bjarnarmessu í Veröld – húsi
Vigdísar í dag kl. 16.30. Björn var
brautryðjandi í nútímasagnfræði á Ís-
landi og um langt skeið einn fremsti
fræðimaður á sínu
sviði. Meðal þeirra
sem heiðra minningu
Björns með erindum
eru Björn Pálsson,
Þórunn Valdimars-
dóttir og Jón Atli
Benediktsson.
Bjarnarmessa í dag
Á miðvikudag- Suðlæg átt, víða 8-13 m/s, en hvassara vestast.
Rigning með köflum, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 3 til 8 stig.
Á fimmtudag Sunnan 8-13 m/s, norðaustan 8-13 á Vestfjörðum.
Rigning eða slydda, en bjart með köflum norðaustanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan og suðaustan 8-13 og rigning með
köflum, úrkomulítið norðaustantil. Styttir að mestu upp í kvöld.
VEÐUR
„Maður er búinn að vera fárán-
lega heppinn að fá öll þessi
tækifæri, lærir alls konar hluti
af þessu, með því að sjá hvern-
ig þessir menn haga sér innan
og utan vallar, og hvernig þetta
líf er. Maður kynnist þessum
sérstaka anda sem er hjá liði á
þessu getustigi, þar sem allir
eru með rosalegt atvinnu-
mannahugarfar,“ segir Tryggvi
Snær Hlinason, landsliðs-
maður í körfuknattleik og
leikmaður Valencia. »4
Heppinn að fá öll
þessi tækifæri
Bæði karla- og kvennalið Stjörnunnar
leita að þjálfurum þar sem Einar
Jónsson og Halldór Harri Krist-
jánsson eru á förum. Aron Krist-
jánsson hefur verið
nefndur til sögunnar
sem mögulegur
þjálfari karlaliðs
Garðbæinga.
Morgun-
blaðið fer
yfir stöð-
una á
þjálfara- og
leikmanna-
málum í opnu
íþróttablaðsins.
» 2-3
Stjarnan leitar að þjálf-
urum og Aron nefndur
„Ég hef fína tilfinningu fyrir þessum
leik. Það er ekkert um meiðsli í
hópnum og leikmenn eru í góðu
formi enda keppnistímabilið á nálg-
ast hápunkt um þessar mundir,“
segir Þórey Rósa Stefánsdóttir,
landsliðskona í handknattleik, en Ís-
land mætir Slóveníu í Laugardals-
höllinni annað kvöld í undankeppni
Evrópumótsins. »1
Hef fína tilfinningu
fyrir þessum leik
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Stofnfundur Addison-samtakanna á Íslandi var
haldinn fyrir skömmu. Tilgangur þeirra er að
halda utan um þá sem greinast með Addison-
sjúkdóminn og aðra sem þurfa að taka inn lyfið
hýdrókortisón vegna streitu, auk aðstandenda
þeirra. Markmiðið er jafnframt að efla almenna
fræðslu og vitund um sjúkdóminn.
Hermann Arnar Austmar er talsmaður sam-
takanna. Hann segir að samkvæmt upplýsingum
félagsmanna séu liðlega 50 manns með Addison-
sjúkdóminn hérlendis, þar af 21 greindur með
nýrnahettubilun og 31 með aðra sjúkdóma. Á
Facebook eru 22 í hópi sem nefnist Lífið með
Addison. „Við þurfum að taka inn hýdrókortisón
í töfluformi til þess að lifa af,“ segir hann og
bendir á að a.m.k. fimm sjúkdómar valdi því að
fólk sé háð inntöku hýdrókortisón, t.d. vegna bil-
aðs heiladinguls eða bilaðra nýrnahettna, en
kortisól er sterahormón sem myndast í nýrna-
hettunum undir eðlilegum kringumstæðum.
Greining erfið
Fólk með Addison-sjúkdóminn hittist á liðnu
hausti og að fenginni reynslu margra var ákveðið
að stofna samtök til að stuðla að aukinni fræðslu
meðal lækna um sjúkdóminn. „Það gengur erfið-
lega að greina sjúkdóminn nema fyrir þá sem
eru sérfræðingar eða hafa reynslu af sjúkdómn-
um,“ segir Hermann. Hann bætir við að rétt
greining taki oft langan tíma og viðbrögð fólks á
heilbrigðissviði í neyðartilfellum séu oft hæg eða
röng, sem geti leitt til lífshættulegs ástands sjúk-
linganna. „Reynsla mín og annarra er á þá lund,
starfsmenn í heilbrigðisþjónustu virðast ekki
geta greint vandann nema þeir hafi reynslu af
sjúkdómnum,“ segir hann.
Um 30% sjúklinga með Addison-sjúkdóminn í
Bandaríkjunum lifa við skert lífsgæði eða eru ör-
yrkjar, að sögn Hermanns. Hann segir að margir
hafi jafnframt aðra sjúkdóma eins og til dæmis
sykursýki.
„Við þurfum að fara varlegar en margir aðrir,
þurfum eiginlega að sjá inn í framtíðina,“ segir
Hermann og vísar til þess að sérstaklega andleg
streita hafi þau áhrif að auka þurfi lyfjaneysluna,
en helstu einkenni eru slappleiki, flökurleiki og
skert þol. „Ef við erum veik eða grunur er um
sýkingu verðum við að bregast hraðar við,“ held-
ur hann áfram. Í því sambandi segir hann að ný-
lega hafi verið tekinn úr honum endajaxl og þá
hafi tannlæknirinn skrifað upp á sýklalyf. „Hann
vildi að ég tæki það til öryggis, því við erum
gjarnari að fá sýkingu.“
Addison-samtökin í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi
og Danmörku buðu Hermanni á ráðstefnu um
sjúkdóminn í Finnlandi í fyrra. Hann segir að
dönsku samtökin hafi til dæmis látið útbúa
fræðsluefni sérstaklega hannað fyrir lækna til
þess að auðvelda þeim greininguna.
Á ráðstefnunni var jafnframt rætt um lyfja-
öryggi. Hermann segir að oft hafi reynst erfitt
að fá lyf vegna þess að þau hafi hreinlega ekki
verið til. „Við getum lifað án þeirra í einhvern
tíma en það er óþægilegt að vera á síðustu pill-
unum því þær halda bókstaflega í okkur lífinu,“
segir hann.
Hermann segir að ferðamenn með sjúkdóminn
geti verið í ákveðinni hættu, sérstaklega á fram-
andi slóðum. Það hafi komið fyrir að læknar er-
lendis hafi neitað að gefa sjúklingum hýdrókort-
isón. Samtökin á Norðurlöndum hafi látið útbúa
eyðublað, sem sé aðgengilegt á heimasíðum
þeirra, þar sem fram komi að viðkomandi þurfi á
lyfinu að halda og án réttrar þjónustu geti það
þýtt dauða. Samtökin á Íslandi stefni að því að fá
að þýða danska leiðarvísinn og annað fræðslu-
efni.
Danska sambandið hefur látið framleiða mynd-
band þar sem sýnt er hvernig fólk með sjúkdóm-
inn getur sprautað sig í neyðartilfellum. Her-
mann segir að til standi að halda námskeið, þar
sem hjúkrunarfræðingur kynnir hvernig á að
bera sig að við slíkar aðstæður. „Fræðsla og
réttar upplýsingar skipta alla miklu máli,“ segir
hann.
Efla fræðslu um Addison
Morgunblaðið/Hari
Addison Hermann Arnar Austmar er talsmaður íslensku samtakanna sem voru stofnuð fyrir skömmu.
Þurfa að taka lyfið hýdró-
kortisón til þess að lifa af