Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018FRÉTTIR SVEIGJANLEGOGLIPUR INNHEIMTUÞJÓNUSTA Hafðu samband, við leysum málin með þér! Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is Mesta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) ICEAIR -4,70% 14,0 SKEL +6,52% 1,72 S&P 500 NASDAQ 2,55% 7.091,397 1,72% 2.649,33 1,02% 7.257,14 FTSE 100 NIKKEI 225 12.10.‘17 12.10.‘1711.4.‘18 11.4.‘18 1.700 702.300 2.146,35 2.226,35 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 56,25 72,52 0,55% 21.687,1 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 50 Íbúðir í nýju 71 íbúðar byggingunni sem byrjuð er að rísa við Austur- höfn við hlið Hörpu, reit 5 B, fara í sölu með haustinu, að sögn Sveins Björnssonar, framkvæmdastjóra Austurhafnar. Kostnaður við verk- efnið hleypur á milljörðum króna. Búið er að selja allt verslunar- og þjónusturými á jarðhæð til fast- eignafélagsins Regins. Í húsinu verður gengið skrefinu lengra í lúx- us en áður hefur verið gert hér á landi, að sögn Sveins. „Við munum ljúka verkinu í lok næsta árs, á svip- uðum tíma og fimm stjörnu Marriot- hótelið við hliðina.“ Sveinn segir að 100 stæði í bíla- kjallara hússins verði seld með íbúð- unum í húsinu, en samtals verður 20 þúsund fermetra bílageymsla sem rúmar 1.000 bíla undir öllu svæðinu, að bílastæðinu í Hörpu og nýja Hafnartorginu hinum megin Geirs- götunnar, meðtöldu. Snjallíbúðir og stórar svalir Aðspurður segir Sveinn að verð íbúðanna sé enn óákveðið, en það muni taka mið af staðsetningu og gæðum. „Við erum að taka gæðin í okkar íbúðum umfram þennan hefð- bundna lúxusstaðal. Okkur finnst þetta lúxus „concept“ vera ofnotað á markaðnum, og allar nýjar íbúðir seldar sem lúxus. Í okkar íbúðum verður til dæmis aukin lofthæð, og í margar íbúðirnar verður innangengt beint úr lyftu. Við leggjum áherslu á færri en stærri herbergi. Flest her- bergin eru með sér baðherbergi, og allar innréttingar, blöndunartæki og eldhústæki verða fyrsta flokks.“ Sveinn segir að íbúðirnar verði allar svokallaðar snjallíbúðir. Þá verða klæðningar hússins í vandaðri kantinum, og nefnir Sveinn þar efni eins kopar og Dektor hágæðaflísar, sem og sjónsteypu og ál. „Með þessu brjótum við upp ytra útlitið og sköp- um útlit í anda miðbæjarins.“ Ennfremur verða svalir stórar, anddyri og stigagangar veglegir, og fallegur garður fyrir íbúana á þaki, að sögn Sveins. „Við munum einnig bjóða upp á aukið þjónustustig við íbúðirnar.“ Sveinn nefnir líka háþróað hús- stjórnarkerfi. „Það tengist m.a. loft- ræstingunni. Við munum blása lofti inn í allar íbúðir og tryggja yf- irþrýsting sem minnkar hættu á leka og myglu.“ Aðspurður segist Sveinn hafa skynjað áhuga bæði hér innanlands og frá útlöndum á íbúðunum. „Þetta er ein besta staðsetning í Reykjavík, og mögulega kemur ekki annað sam- bærilegt verkefni í sölu í næstu framtíð, með tilliti til gæða og stað- setningar. Þessar íbúðir eru margar eins og einbýli í fjölbýli.“ Eigendur Austurhafnar eru Hreggviður Jónsson sem á 40%, Eggert Dagbjartsson sem einnig á 40% og Arion banki sem á 20%. Hluti af heildarhugsun Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, segir í samtali við Við- skiptaMoggann að félagið líti á fjár- festingu sína í verslana- og þjón- usturýmunum á jarðhæð sem hluta af því stóra verkefni að byggja upp að nýju sterka miðbæjarverslun í Reykjavík. „Við erum að koma sterk inn í miðbænum. Við eigum núna m.a. byggingar á horni Lækj- argötu og Austurstrætis sem og allt verslunarhúsnæðið á Hafnartorg- inu. Því var eðlilegt framhald að halda áfram yfir Geirsgötuna og kaupa þetta atvinnuhúsnæði á reit 5 B. Við sjáum svæðið frá Lækjar- torgi að Hörpu sem eina einingu og viljum vera leiðandi í að búa það svæði undir að vera miðstöð versl- unar, viðskipta og veitinga í mið- bænum.“ segir Helgi, en að hans sögn var meðal annars horft til nýja hafnarsvæðisins í Liverpool-borg, Liverpool One, við endurhugsun svæðisins. „Við eigum von á að allt að 50% af versluninni verði frá ferðamönnum. Við viljum hafa glæsilegar fataverslanir, veit- ingastaði og lífsstílsverslanir sem eiga heima í miðbænum, en hafa horfið þaðan á síðustu 20 árum. Við stefnum að góðu miðbæjarlífi eins og þekkist í löndunum í kringum okkur.“ Helgi segir að enn sé ekki byrjað að auglýsa þjónusturýmin á svæði 5 B til leigu, en áhugi sé þrátt fyrir það mikill. Taka hugmyndir um lúxus skörinni hærra Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Sala á nýjum lúxus íbúðum við hlið Hörpu hefjast með haustinu. Íbúðirnar ganga lengra en áður hefur þekkst hér á landi þegar lúxus er annars vegar. Myndir/T.ark arkitektar T.ark arkitektar hanna íbúðarbygginguna sem er 18 þúsund fermetrar. Íbúðir verða á efstu fimm hæðunum, en veit- ingastaðir og þjónusta á jarðhæð. Mikið verður lagt í þakgarð fyrir íbúa hússins að sögn Sveins Björnssonar. Göngugata mun liggja frá Lækjartorgi, í gegnum Hafnartorg, framhjá nýja Landsbankanum og Marriot-hótelinu og íbúðabyggingunni, að Hörpu. FJÖLMIÐLAR Tekjur fjölmiðla hafa dregist sam- an um 17% að raunvirði frá því er mest lét upp úr miðjum síðasta ára- tug. Samanlagðar tekjur fjölmiðla árið 2016 námu tæpum 27 millj- örðum króna á verðlagi þess árs. Hlutdeild Ríkisútvarpsins í heild- artekjum fjölmiðla nam um fimmt- ungi og 15% af samanlögðum aug- lýsingatekjum fjölmiðla. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstof- unnar. Verulegur samdráttur varð í tekjum fjölmiðla í kjölfar efnahags- hrunsins 2008. Frá árunum 2007 til 2010 lækkuðu tekjur fjölmiðla um fjórðung reiknað á verðlagi ársins 2016. Þrátt fyrir tilfinnanlegan sam- drátt í tekjum er þetta þó talsvert minna en víða annars staðar. Mest munar um samdrátt í auglýsinga- tekjum, en þær eru nú um fjórðungi lægri en þegar þær voru hæstar, reiknað á verðlagi 2016. Um 48% tekna fjölmiðla árið 2016 féll til sjónvarps, 26% til dagblaða og vikublaða, 13% til hljóðvarps, 8% til vefmiðla og 5% til tímarita. Umtalsverður samdrátt- ur í tekjum fjölmiðla Morgunblaðið/Eggert Hlutdeild RÚV í heildartekjum fjöl- miðla árið 2016 nam um fimmtungi. ÍBÚÐAMARKAÐUR Fjöldi viðskipta með íbúðar- húsnæði á höfuðborgarsvæðinu dróst saman um 7% á milli ára og voru þau 7.439 í fyrra. Þetta kemur fram í gögnum Þjóðskrár Íslands. Mun fleiri viðskipti áttu sér stað með íbúðarhúsnæði á höfuðborg- arsvæðinu á árunum 2003-2007 en verið hefur síðustu ár. Í Hagsjá Landsbankans segir að fjöldi við- skipta hafi hrunið á árunum 2008 og 2009, en aukist stöðugt frá 2009 til 2016. Í fyrra fækkaði viðskiptum svo aftur. Sú þróun virðist halda áfram það sem af er ári. Sé litið á fjölda viðskipta eftir mánuðum kemur í ljós að viðskipti voru mest í október á tímabilinu 2003-2017. Þar á eftir kemur mars- mánuður og svo september og nóv- ember. Þessir fjórir mánuðir skera sig nokkuð úr hvað fjölda viðskipta viðkemur, segir í Hagsjá. Á fyrra tímabilinu, 2003-2009, má sjá að að janúar sker sig verulega úr, viðskipti eru langminnst í þeim mán- uði, samkvæmt greiningu Lands- bankans. helgivifill@mbl.is Húsnæðiskaup drógust saman um 7% á milli ára Morgunblaðið/Ómar Húsnæði seldist betur árin 2003- 2007 en verið hefur síðustu ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.