Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Allri áhöfninni sagt upp 337 milljóna gjaldþrot Garðsbúsins Milljarðakröfur hafa gengið á víxl Levi’s fer í mál við Kenzo vegna … Samkaup kaupa valdar verslanir … Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Heyfihamlaðir ferðamenn voru að- stoðaðir 40 þúsund sinnum á Kefla- víkurflugvelli árið 2017, samkvæmt samantekt öryggisfyrirtækisins Securitas, sem séð hefur um þjón- ustuna síðan 1. apríl árið 2014. Eitt ár er síðan samningurinn var endur- nýjaður til þriggja ára eftir útboð. Telma Dögg Guðlaugsdóttir útibússtjóri Securitas á Reykjanesi segir að í dag starfi um 50 starfs- menn við þessa þjónustu, bæði í fullu starfi og í hlutastörfum. Í vikulok munu aðrir 30 bætast við vegna aukinna umsvifa í sumar. Hún segir að tæknin við þessa vinnu hafi tekið stakkaskiptum og nú séu skráningar allar í gegnum spjaldtölvur tengdar við kerfi flugstöðvarinnar. Securitas stofnaði á dögunum nýja deild sem eingöngu sér um þjónustu á flugvellinum, Aviation Services. Telma segir að auk þjónustu við hreyfihamlaða þá sjái nýja deildin um öryggisleit og umsjón með tapað fundið. „Við unnum útboð fyrir þriggja ára þjónustu við bandaríska flugfélagið United Airlines sem er að hefja flug hingað í sumar. Þetta er samningur um hefðbundna öryggis- leit. Það eru meiri kröfur að þessu leyti á bandarísku félögin en þau ís- lensku.“ 50 - 60 týnast daglega Þriðja þjónustan sem Securitas hefur tekið við á flugvellinum er um- sjón með tapað-fundið, bæði fyrir flugvöllinn í heild sinni, og einnig í vélum WOW air. „Þar erum við einnig búin að tæknivæða þjón- ustuna með samningi við hugbún- aðarfyrirtækið Missing X sem er mjög framarlega í þessum málum. Nú geta ferðamenn, sem verða fyrir því að tapa farangri, fengið fljótari afgreiðslu og geta fylgst mun betur með hvernig málin þróast svo allt verður skilvikara.“ Mest voru 175 hreyfihamlaðir ferðamenn aðstoðaðir á einum degi árið 2017. Aðstoða 40.000 hreyfihamlaða Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Securitas hefur stofnað nýja deild sem eingöngu sér um þjónustu á Kefla- víkurflugvelli. Um 100 manns munu starfa við ýmsa þjónustu þar í sumar. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Stanslaust er þrýstingi haldiðuppi um aukin útgjöld ríkissjóðs og sveitarfélaga. Margt af því mætti missa sín, hvað sem líður stóryrðum um „sjálfsagðar“ kröfur um að skattfé sé varið í hitt og þetta. En það geta hins vegar allir tekið undir þá skoðun að hlúa beri vel að öldr- uðum og ekki síst þeim sem eiga við vanheilsu að stríða. Það er þokka- legur mælikvarði á hvort samfélagið rísi undir skyldum sínum eða ekki. Í viðtali sem nýlega var birt í Við-skiptaMogga við Önnu Birnu Jensdóttur, framkvæmdastjóra Sól- túns, kom fram að í raun séu 500-700 manns á biðlistum eftir að komast á hjúkrunarheimili. Enginn þeirra vill vera á þeim lista og er þar af hreinni og brýnni þörf. Anna Birna, sem er einn mestireynsluboltinn á sviði öldr- unarhjúkrunar í landinu, nefnir að á næstu 12 árum, eða til ársins 2030, þurfi að fjölga hjúkrunarrýmum um 1.800 en þau eru í dag um 2.700 tals- ins. Samkvæmt nýrri fjármála- áætlun ríkisstjórnar Katrínar Jak- obsdóttur er stefnt að því á næstu fimm árum að fjölga hjúkr- unarrýmum um 550 og bæta aðbún- að á 240 rýmum sem nú þegar eru til staðar. Gangi áætlanir ríkisstjórn-arinnar eftir mun það rétt að- eins eyða núverandi biðlistum. Þá mun hið opinbera hafa sjö ár til við- bótar til að byggja 1.250 rými til við- bótar. Því miður er ástæða til að ótt- ast að forystan muni ekki hafa döngun í sér til þess. Mun meira þarf tilUm langt árabil hafa fyrirtækiog félagasamtök af ýmsum toga leitað leiða til að draga úr kynbundnum launamuni á vinnu- markaði og þar hefur verið verk að vinna. Þótt deilt hafi verið um hver munurinn sé í raun og veru eru of mörg dæmi þekkt um misrétti í þessa veru til þess að ástæða sé til að draga tilvist vandans í efa. Þá hafa ýmsir aðilar leitað leiða til að mæla muninn svo hægt sé að bregðast við og tryggja að öllu fólki sé umbunað á málefnalegum for- sendum. Meðal þeirra fyrirtækja semtekið hafa til hendinni í þess- um efnum er Orkuveita Reykjavík- ur og þar hefur verið gengið hraustlega til verks líkt og þegar parketið var lagt á steypublautt gólfið í höfuðstöðvunum ógurlegu að Bæjarhálsi. Ekkert hálfkák þar á bæ. Og á síðustu árum hafa mæli- tæki fyrirtækisins séð hinn kyn- bundna launamun minnka jafn hratt og þrýstinginn á borholum þess á Hellisheiði. Fyrrnefnda þrýstingsfallinu ber sannarlega að fagna en hitt er meira áhyggjuefni. Slíkur hefur árangur fyrirtæk-isins verið í baráttunni við hinn kynbundna launamun að í lok síð- asta árs mældist hann ekki aðeins horfinn heldur benda mælingar til að taflinu hafi hreinlega verið snúið við. Enn leynist launamunur hjá fyrirtækinu, kynbundinn einnig, en konum í vil. Þeir sem barist hafa gegn kynbundnum launamuni í gegnum árin yrðu flestir uggandi við þær fréttir, enda hefur munur í þessum efnum verið þyrnir í augum sanngjarns fólks, í hvora áttina sem hann hefur gengið. En þannig er það ekki hjá Orku-veitunni. Það kom í ljós þegar Sólrún Kristjánsdóttir, mannauðs- stjóri Orkuveitunnar, fór yfir hinn gegndarlausa árangur fyrirtækisins í þessum efnum á ársfundi fyrir skemmstu. Töluðu staðreyndirnar sínu máli þar, munurinn var konum í vil sem nam 0,2%. Og hvað kallaði sá munur á? Jú, að skálað væri í kampavíni í hópi „mannauð- steymis“ fyrirtækisins. Það skiptir nefnilega máli hjá sumum á hvern hallar og hvenær. Hvenær ætli mannauðsstjóri myndi draga tappa úr flösku yfir mælanlegu misrétti þar sem hallaði á konur? Og ef hann gerði það, myndi hann nokkru sinni leyfa sér að hafa það í flimt- ingum á aðalfundi? Kannski, en það yrði hans síðasti aðalfundur á þeim vettvangi. Ekki sama Jón og séra Jóna Landsvirkjun mun greiða 1,5 milljarða króna í arð. Það er sama fjárhæð og í fyrra. Arðgreiðslur Landsvirkjunar 1 2 3 4 5 Settu starfsfólkið í fyrsta sæti WOW Biz er fyrir þá sem vilja aukin þægindi, einfaldleika og greiða leið inn í vélina. Innifalið er hraðferð um borð,máltíð, forfallavernd og sömuleiðis BigSeat, eða besta sætið sem er í boði hverju sinni. WOW air flýgur einu sinni til tvisvar á dag til allra helstu viðskiptaborga Evrópu og Ameríku. WOW Biz kjörin leið fyrir þá sem þurfa að komast hratt og örugglega milli staða. WOW Biz Sumir þurfa einfaldlega meira WOW en aðrir. BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS er

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.