Morgunblaðið - 12.04.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 12.04.2018, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018FRÉTTIR Snögg og góð þjónusta Stafrænt prentaðir límmiðar á rúllum Vantar þig lítið upplag? Stafræn límmiðaprentun hentar vel fyrir minni upplög. Pappír, hvítt plast, glært plast og fl. þú velur! Sími 540 1818 | Skemmuvegi 4 | Kópavogi midaprent@midaprent.is | midaprent.is Félag kvenna í atvinnurekstri veitti Hildi Petersen sérstök þakk- arverðlaun fyrr á árinu fyrir eft- irtektarvert ævistarf. Hún hefur unnið við fyrirtækjarekstur frá 23 ára aldri og hefur á löngum ferli unnið að ýsum framfaramálum. Fyrir um ári stofnaði Hildur fyr- irtækið Vistvæna framtíð til að vinna gegn plastsóun. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Þær eru að vekja almenning til umhugsunar um þá vá sem plast- mengunin í hafinu er. Við búum við þann veruleika að það er ör- plast í loftinu, fæðunni og jafnvel okkar hreina og góða íslenska vatni. Þar sem þetta nána sambýli okkar við plast hefur aðeins varað í nokkra áratugi vitum við ekki enn hvaða áhrif þessi mengun mun hafa á heilsu okkar. Augljóslega er þetta risaverkefni og fyrirtæki mitt Vistvæn framtíð kaus að byrja á því að ráðast til atlögu við plastpokana í matvörubúðunum. Við fengum frábæra unga lista- menn: Lindu Ólafs, Sverri Norland og Sölva Dún til liðs við okkur til að hanna innkaupapoka með tær- um og jafnframt beittum boðskap um mengunina í hafinu. Hver var síðasti fyrirlesturinn eða ráðstefnan sem þú sóttir? Það var #metoo-ráðstefna á vegum FKA. Var ótrúlega áhrifa- ríkt að hlusta á ýmsar birt- ingamyndir þess máls, auk þess sem Guðni forseti flutti hvetjandi og einlæga upphafsræðu. Hvaða hugsuður hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Besta fyrirmynd mín í lífinu og viðskiptum var faðir minn Hans Petersen en ég byrjaði að vinna með honum í ljósmyndavöruversl- uninni í Bankastræti þegar ég var 12 ára. Ég tók við af honum fyrir tæpum 40 árum og rak fyrirtækið í 21 ár. Ég hef farið á óteljandi ráðstefnur og námskeið í lífinu til að fylgjast með tímanum og fyllt þar upp í heildarmyndina en grunnurinn og gildin komu frá föður mínum. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég hef mikla ástríðu fyrir því að lesa í tíðarandann og aðlaga þjón- ustu og vöruframboð þörfum markaðarins. Það geri ég með því að horfa á og lesa fjölmiðla og ekki síst með því að umgangast margt fólk og hlusta á hvað það hefur fram að færa. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Ég hef aldrei haft áhuga á gráð- um. Á síðastliðnum árum hef ég sett mig nokkuð inn í samfélags- miðlana sem er bæði góður vett- vangur til að vera í sambandi við fjöldann allan af fólki og líka í við- skiptalegum tilgangi. Ég gæti al- veg hugsað mér að kunna betur á þann heim allan. Hugsarðu vel um líkamann? Ég var svo heppin að detta inn í gönguhóp hjá Útivist fyrir um sex árum og stunda hann af kappi. Auk þess finnst mér mjög gott að synda og líka gaman að spila golf. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráð í einn dag? Ég myndi byrja á því að banna notkun á plastpokum í verslunum. Mér finnst í raun ríkja neyðar- ástand þegar rannsóknir sýna að árið 2050 verði meira af plasti í sjónum en fiski. Eiginlega finnst mér gamaldags að horfa á plast- poka sem eina valkostinn við kassa matvöruverslana og ekki ósvipað því ef að starfsfólkið þar væri með öskubakka og reykti við vinnuna. Við slíkar aðstæður þýðir ekki að setja lágstemmd markmið heldur hreinlega taka í neyð- arbremsur á sem flestum sviðum eins fljótt og hægt er. SVIPMYND Hildur Petersen, framkvæmdastjóri Vistvænnar framtíðar Morgunblaðið/Hari Hildur segir föður sinn, Hans Petersen, hafa verið sína bestu fyrirmynd. Hún var 12 ára gömul þegar hún hóf störf í ljósmyndavöruverslun hans í Bankastræti. Í dag leggur Hildur áherslu á lausnir við plastmengun. Í VIÐSKIPTAFERÐALAGIÐ Eins og lesendur vita fylgist Við- skiptaMogginn ekki bara vel með fjármálageiranum og atvinnulífinu, heldur vaktar líka stefnur og strauma í heimi tískunnar. Hefur ekki farið framhjá tískuspekingum blaðsins að merkilegir hlutir eru að gerast í kringum bandaríska götu- tískufyrirtækið Supreme. Supreme hóf göngu sína árið 1994 í lítilli verslun neðarlega á Manhattan og átti að endurspegla hjólabrettamenninguna í New York. Merkið sló fljótlega í gegn á meðal unglinga og klifraði síðan leift- urhratt upp met- orðastiga tískuheims- ins í gegnum sam- starfsverkefni við fyrirtæki á borð við Nike, North Face og meira að segja Louis Vuit- ton. Í febrúar sagði ViðskiptaMogginn frá eigulegu kúlu- spili sem Supreme gerði í samvinnu við Stern, en fyr- irtækið hefur líka unnið vörur með Thom Browne, Comme des Gar- çons, Brooks Brothers og Aquascutum, svo aðeins séu nefnd fínustu og dýr- ustu merkin. Nú hefur ferðatösku- framleiðandinn Rimowa bæst við hópinn. Er útkoman þessar mjög svo djörfu ferða- töskur sem sjá má hér til hliðar, fá- anlegar í rauðu eða svörtu, og ýmist í 45 l handfarangursstærð eða 82 l stærð sem þarf þá að innrita. Hönnunin byggist á Topas-línu Rimowa, en búið er að merkja tösk- urnar með vörumerki Supreme á svo áberandi hátt að ekki ætti að fara fram hjá nokkrum manni þeg- ar farið er í gegnum flugstöðvarnar. Samkrull götutísku og fínustu vörumerkja kostar sitt, og þarf að borga um 157-176 þús kr. fyrir töskurnar vestanhafs. Er það er nærri tvöfalt dýrara en venjulegar Topas-töskur frá Rimowa, sem þykja þó ekki ódýrar fyrir ai@mbl.is Farangur sem fer út fyrir öll velsæmismörk Áletrunin vefst utan um töskuna, og sést bæði að framan og aftan. Ekki má kalla tösk- urnar lágstemmdar. Áklæðið að innan er í stíl við skelina. Handfarang- ursstærðin í svörtu. NÁM: MR 1975; HÍ Viðskiptafræði 2 ½ ár 1978. STÖRF: Hans Petersen framkvæmdastjóri 21 ár eða frá 1979- 2000; frkvstj. Hundahólma í 5 ár; stjórnarformaður ÁTVR 12 ár; í stjórn Kaffitárs í 10 ár, í stjórn Spron 16 ár og þar af 5 ár sem formaður. Stjórnarformaður í styttri tíma hjá Sól, Pfaff, Fálkanum og nú stjórnarformaður Eyesland. Tók þátt í stofn- un FKA og var þar í stjórn í 9 ár, síðustu 4 árin sem varafor- maður, og 2 ár í stjórn Verslunarráðs. ÁHUGAMÁL: Útivera, matur og samskipti við fjölskyldu og vini. FJÖLSKYLDUHAGIR: Er gift Halldóri Kolbeinssyni geðlækni og á tvö uppkomin börn. HIN HLIÐIN Gripið í neyðarbremsuna vegna plastmengunar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.