Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018SJÁVARÚTVEGUR Miðhrauni 13 - Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is YANMAR Aðalvélar 9 - 6200 hö. Mynd: Landhelgisgæslan Uppbygging fiskeldis Matorku úti á Reykjanesi hefur gengið vel. Frá því í ágúst hefur staðið yfir slátrun á fyrstu kynslóð bleikju sem hefur vaxið og dafnað í tönkum stöðv- arinnar skammt frá Grindavík, og styttist í að slátrun á annarri kyn- slóð hefjist. Matorka tók þátt í bás Íslands- stofu á sjávarútvegssýningunni í Boston á dögunum en fyrirtækið hefur þegar gert strandhögg á Bandaríkjamarkaði. „Við stefnum á að ná framleiðslunni upp í 3.000 tonn innan skamms, og með litla básnum í Boston vildum við vinna í haginn fyrir það. Væri of seint að fara að sinna sölu- og markaðsstarfinu þeg- ar byrjað er að slátra,“ segir Árni Páll Einarsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins en í dag getur Matorka framleitt árlega um 1.500 tonn af fiski. Eignarhald í Matorku skiptist nokkurn veginn til helminga á milli innlendra og erlendra aðila og á m.a. hollenski sjóðurinn Aqua Spark 20% hlut í félaginu en hann sérhæfir sig í fjárfestingum í sjálfbæru fiskeldi. Fiskeldisstöðin á Reykjanesi er ekki sú fyrsta sem Matorka rekur því árið 2010 keypti félagið eldisstöð austur í Landssveit, skammt frá Hellu. „Þar prófuðum við okkur áfram í eldinu, og gerðum m.a. til- raunir með tilapíueldi, en eftir því sem starfseminni vatt fram áttuðum við okkur æ betur á hve miklu það skiptir fyrir fiskeldi að vera staðsett þar sem náttúrulegar aðstæður eru sem hagfelldastar,“ segir Árni. „Við lögðumst í ítarlega rannsóknarvinnu til að finna þann stað á Íslandi þar sem bestu aðstæðurnar væru fyrir fiskeldi á landi og leiddi það okkur til Grindavíkur.“ Aðgangur að grunnvatni, flugvelli og heitu vatni Meðal þess sem gerir Reykjanesið að góðum stað fyrir fiskeldi er ná- lægðin við Keflavíkurflugvöll þaðan sem senda má nýslátraðan eldisfisk- inn nánast hvert í heiminum sem er. „Jarðhitinn skiptir líka máli enda hægt að hámarka vaxtarhraða fisks- ins með því að hafa kjörhitastig á vatninu. Skipulagsmál eru einnig veigamikill þáttur, en mest af öllu munar um gott aðgengi að nægilega miklu magni af vatni. Fiskeldið þarf á grunnvatni að halda en ekki yf- irborðsvatni og ekki að því hlaupið í mörgum landshlutum að fá nóg vatn til starfseminnar.“ Árið 2012 náðust samningar við HS Orku þar sem Matorka tryggði sér aðgang að affalls-heitavatni frá Svartsengi og lóð undir fiskeldið frá Grindavíkurbæ. Í framhaldinu hófst vinna við hönnun stöðvarinnar og öflun tilskilinna leyfa, útboð og framkvæmdir og loks árið 2016 hóf Ístak smíði fiskeldisstöðvarinnar. Seiðaeldi Matorku verður áfram á Suðurlandi og segir Árni Páll það gert til að draga úr hættunni á að smit og sjúkdómar spilli eldinu. „Það er ekki æskilegt að hafa bæði seiða- eldi og fiskeldi ofan í hvort öðru og eykur öryggið að halda þessum ein- ingum aðskildum.“ Í eldisstöðinni í Landssveit, og í nýju stöðinni í Grindavík hefur Mat- orka einkum ræktað bleikju. Árni Páll segir að fyrirtækinu hafi gengið vel að rækta tilapíu en sú tegund reyndist ekki hentug útflutnings- vara vegna lágra verða og harðrar samkeppni við framleiðendur í þriðjaheimslöndum. „Ég var ráðinn inn í fyrirtækið árið 2013 og þá var sú ákvörðun tekin að við myndum snúa okkur alfarið að eldi laxfiska, og þá sér í lagi bleikju.“ Kostir og gallar við laxeldi á landi Nú stendur til að renna fleiri stoð- um undir eldið og bæta laxinum við. Segir Árni Páll að eftirspurn eftir eldislaxi fari hækkandi með hverju árinu og betra sé fyrir fyrirtækið að eiga ekki allt sitt undir einni tegund. Aftur á móti fylgja því ákveðnar áskoranir að rækta lax í tönkum á landi, frekar en í sjókvíum. „Laxinn vex betur í sjó, en við höfum aðgang að sjóholum á landi og getum því haft háa seltu í laxatönkunum. Lax- eldi á landi er dýrara að mörgu leyti, en þýðir samt að við losnum við ýmsa kostnaðarliði sem fylgja eldi í sjókvíum. Þannig er t.d. laxalús ekki vandamál hjá okkur en nú er svo komið hjá sjókvíabændum í Noregi að þeir þurfa að eyða upp undir 60 evrusentum á hvert kíló til að berj- ast við laxalús. Nam heildarkostn- aður iðnaðarins vegna laxalúsar um það bil einum milljarði bandaríkja- dala á síðasta ári. Eldi á landi þarf mikið rafmagn, en fóðurnýting á landi er betri en úti á sjó og er fóðr- un stærsti einstaki kostnaðarlið- urinn í öllu fiskeldi.“ Fiskeldi á landi hefur líka þann kost að vera mjög hrein ræktun því halda má lyfjagjöf í lágmarki. Segir Árni Páll að Matorku hafi tekist að markaðssetja eldisbleikjuna sem „premium“ vöru og vonast hann til að það sama verði hægt að gera við laxinn. „Að framleiða vöru í þessum gæðaflokki greiðir okkur leið að kröfuhörðustu kaupendum og t.d. stutt síðan Matorka gerði samning um sölu á bleikju til veitingastaða- keðjunnar Nobu, sem meistarakokk- urinn Nobu Matsuhisha rekur í sam- starfi við Robert De Niro og fleiri stjörnur.“ Ljósmynd/Matorka - Óli Haukur Mýrdal Fiskeldi Matorku getur framleitt um 1.500 tonn árlega og ætlunin að tvöfalda framleiðslugetuna. Meðal eigenda er hollenski sjóðurinn Aqua Spark Morgunblaðið/Árni Sæberg Árni Páll Einarsson segir áríðandi að bæta við laxeldi, svo að fyrirtækið eigi ekki allt sitt undir einni tegund, bleikjunni. Laxeldi á landi hefur vissa kosti. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Matorka sækir á mark- aðinn fyrir hágæða eldisfisk og hefur m.a. samið við bandarísku veitingastaða- keðjuna Nobu. Bráðum bætist laxeldi við til að renna fleiri stoðum undir reksturinn. Fundu kjöraðstæður á Reykjanesi Bleikja er eftirsótt hráefni og kaupendurnir einkum fínni veit- ingastaðir og betri fiskbúðir. Eru viðskiptavinir Matorku aðallega í Kanada, Bandaríkjunum, Vestur- Evrópu og Dúbaí. Árni segir það há bleikjunni að framboðið er takmarkað og veld- ur það því að erfitt er að stækka markaðinn. „Það myndi þurfa mjög stóra aðila með mikla fram- leiðslugetu til að stækka mark- aðinn fyrir bleikju. Stóru mat- vöruverslanakeðjurnar myndu þurfa á miklu og stöðugu fram- boði að halda og væru ekki hrifnar af að bjóða neytendum upp á fisk- tegund sem gæti selst upp á augabragði. Verður að ná upp ákveðnu framleiðslustigi til þess að stærstu dreifingaraðilar geti farið að nota þessa vöru.“ Snúið að stækka bleikjumarkaðinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.