Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 12.04.2018, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2018 13SJÓNARHÓLL BÓKIN Það er ekki að ástæðulausu að bandaríski hagfræðingurinn og íhaldsmaðurinn Thomas Sowell er í uppáhaldi hjá mörgum. Dag- blaðapistlar hans og bækur þykja af- burðagóð samfélags- rýni og stinga á alls kyns kýlum. Er hrein unun að hlusta á gömul og ný viðtöl við Sowell sem finna má á YouTube, og heyra hvernig hann snýr kenningum og heimssýn vinstri- manna á haus. Sowell lauk meist- aragráðu í hagfræði frá Columbiaháskóla og var yfirlýstur marxisti við út- skrift, en sá að sér eftir eitt sumar í vinnu hjá hinu opinbera, og varð gallharður frjálshyggjumaður. Í framhaldinu lauk hann dokt- orsgráðu frá Chicagoháskóla þar sem hann var lærisveinn Miltons Friedman. Sowell var að senda frá sér nýja bók, Discrimination and Disparities. Þar fjallar Sowell um efni sem hon- um hefur lengi verið hugleikið: ójöfnuð og mismunun. Meðal þess sem Sowell undirstrikar í bókinni er að þeir sem reyna að kenna kapítal- ismanum um ójöfnuð eru ekki á réttri braut. Þvert á móti væri, að mati Sowell, réttara að benda fingri á hið op- inbera sem oft gerir illt verra með alls kyns inngripum, jafn- vel þegar yfirlýst markmið inngrip- anna eru að hjálpa þeim verr settu. En velgengni ein- staklinga og staða þeirra í samfélaginu er líka að miklu leyti undir þeim sjálfum komin og bendir Sowell á að þeir sem telja sig hafa farið halloka í líf- inu vegna mismununar og fordóma ættu að líta í eigin barm. Ef að er gáð hafa ýmsir hópar innan þjóð- félagsins náð að skara fram úr, þökk sé eljusemi og réttum lífsviðhorfum, og það þrátt fyrir að hafa þurft að sæta meira mótlæti en nokkur þarf að þola í dag. ai@mbl.is Sowell fjallar um rætur ójöfnuðar TIL LEIGU Norðurgrafarvegur 4 116 Reykjavík Lager- og iðnaðarhúsnæði Stærðir: 157,6 fm. & 166,4 fm. Leiguverð: Tilboð 534 1020 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is Ólafur S: 824 6703 Magnús S: 861 0511 Sigurður J. S: 534 1026 Helgi Már S: 897 7086 Bergsveinn S: 863 5868 Til leigu tvö vönduð lager- og iðnaðarrými sem eru að gólffleti í opnum vinnusölum um 92,4 – 111,4 fm. með snyrtingum á jarðhæð. Milliloft eru um 55 fm. Gólf eru lökkuð. 3ja fasa rafmagn til staðar. Hæð á innkeyrsludyrum er um 4,2 m. og upphitun er með hitablásurum. Stórt malbikað bílaplan er við húsið. VSK leggst við leigufjárhæð. Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun - 534 1020 // sala@jofur.is Allar nánari upplýsingar veitir: Helgi Már Karlsson Löggiltur leigumiðlari Löggiltur fasteignasali 534 1024 / 897 7086 hmk@jofur.is Samtök atvinnulífsins, aðildarsamtök þeirra og Við-skiptaráð Íslands gerðu nýverið alvarlegar at-hugasemdir við drög að frumvarpi til nýrra per- sónuverndarlaga sem byggjast á reglugerð Evrópusambandsins. Gildissvið regluverksins er mjög víð- tækt og tekur í raun til allra fyrirtækja sem eru annað hvort með starfsmenn eða viðskiptavini. Af grein sem Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra ritaði í Morgunblaðið síðast- liðinn laugardag er ljóst að ekki verður orðið við veigamikl- um athugasemdum samtakanna. Grunnstefið í málatilbún- aði ráðherrans er að nýju reglunum sé ætlað að vernda almannahagsmuni. Fyrirtæki þurfi að þola þær íþyngjandi reglur sem nauðsynlegar eru til þess. Allir eru sammála því að nauðsynlegt sé að styrkja persónuverndarrétt ein- staklinga, enda hafa möguleikar til vinnslu persónuupplýsinga í markaðslegum tilgangi stórauk- ist með nýrri tækni á und- anförnum árum. Samtökin styðja því í öllum meginatriðum efni löggjafarinnar sem er þó að mörgu leyti mjög íþyngj- andi og kostnaðarsöm fyrir atvinnulífið. Athugasemdir samtakanna snúa að reglum sem til stendur að innleiða hér á landi með mun meira íþyngjandi hætti en annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Eru þó reglur Evrópusam- bandsins mjög íþyngjandi eins og þær koma af skepnunni. Því er ósvarað hvaða sérstöku aðstæður eru hér á landi sem kalla á að gengið sé enn lengra. Ráðherra hefur bent á að einhverjar þær íþyngjandi sér- reglur sem er að finna í drögunum sé þegar að finna í ís- lenskri persónuverndarlöggjöf. Þau rök eru afar fátækleg. Séríslenskar og íþyngjandi reglur hafa jafnslæm áhrif á samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja óháð því hvenær þær eru leiddar í lög. Þá verður að taka tillit til þeirra grundvallarbreytinga sem reglugerðin hefur í för með sér. Brot á reglunum munu geta varðað sekt sem nemur allt að 4% af árlegri heildarveltu fyrirtækis á heimsmarkaði eða 20 milljónum evra, eftir því hvort er hærra. Á sama tíma er lagt til að núverandi dagsektarheimild verði tvöfölduð. Í sumum tilfellum verður heimilt að dæma fólk í allt að þriggja ára fangelsi, en í Danmörku er refsiramminn 6 mánuðir í sambærilegum málum. Í 15. gr. núgildandi laga er að finna heimild til þess að innheimta þjónustugjald ef um er að ræða mikinn kostnað við að sinna beiðnum fyrirtækja, svo sem vegna ljósritunar skjala. Í drögunum er hins vegar lagt til að Persónuvernd geti ákveðið að fyrirtæki þurfi, ólíkt keppinautum sínum í öðrum löndum, að greiða kostnað sem hlýst af eftirliti. Á þessu er reginmunur og ef af verður mun samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja verða skert svo um munar. Til viðbótar við óþarflega íþyngjandi útfærslu ákvæða reglugerðarinnar hafa samtökin gagnrýnt aðferðina við inn- leiðingu hennar. Hún er innleidd með aðferð sem ekki hefur verið beitt hér á landi áður og Norðmenn nota ekki við innleiðingu á sömu reglugerð. Í raun er um lögfræðilega tilraunastarfsemi að ræða sem hætt er við að muni skapa talsverða réttaróvissu. Það er mjög bagalegt þegar um jafn víðtækt og íþyngjandi regluverk er að ræða. Nú fara að verða tvö ár síðan reglugerð Evrópusam- bandsins var samþykkt. Þá þegar hefði átt að hefja und- irbúning að innleiðingu hennar á Íslandi. Það er ekki fyrr en nú á síðustu vikum sem drög að frumvarpi hafa litið dagsins ljós. Regluverkið tekur gildi í Evrópusambandinu eftir rúman mánuð. Ef það tekur ekki gildi á Íslandi á sama tíma er hætt við að einhver erlend fyrirtæki verði tregari til að ganga til samninga við íslensk fyrirtæki þar sem reynir á vernd persónuupplýsinga. Til þess að koma í veg fyrir það gæti þurft að útskýra fyrir þeim að persónuupplýsingar séu nægjanlega verndaðar hér þótt reglugerð Evrópusam- bandsins hafi ekki enn verið innleidd. Við skorum á ráðherra, og þingmenn sem munu svo taka við málinu, að taka tillit til þessara sjónarmiða. Því oftar sem það gerist að löggjöf frá Evrópusambandinu er inn- leidd með meira íþyngjandi hætti hér en annars staðar því lakari er samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs gagnvart út- löndum. Lakari samkeppnishæfni bitnar ekki bara á fyr- irtækjum, og eigendum þeirra, heldur hagkerfinu í heild og okkur öllum. Hagsmunir almennings og fyrirtækja fara að öllu leyti saman að þessu leyti. VIÐSKIPTALÍF Ásta S. Fjeldsted framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Persónuvernd og almannahagsmunir ” Því er ósvarað hvaða sérstöku aðstæður eru hér á landi sem kalla á að gengið sé enn lengra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.