Morgunblaðið - 02.05.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 02.05.2018, Qupperneq 1
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ég trúi ekki öðru en fólk sýni yfir- vegun og skynsemi þegar í alvöruna er komið. Að mínu mati eru ummæli formanns VR ekki af þeim toga,“ seg- ir Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, boðaði harðar aðgerðir í ávarpi sínu á baráttufundi verkalýðsfélag- anna í gær, 1. maí. Kjarasamningar á almenna markaðnum eru lausir um næstu áramót og umræða vegna nýrra samninga er þegar hafin. Vegna þess hafa forsvarsmenn VR, Eflingar, Verkalýðsfélags Akraness og Framsýnar á Húsavík fundað að undanförnu og teiknað upp sam- félagssáttmála þar sem stjórnvöldum og atvinnulífinu verði boðið til þátt- töku og sáttargjörðar. „Við boðum baráttu sem hefur ekki sést í íslenskri verkalýðshreyfingu í áratugi,“ segir Ragnar Þór sem vill, ef ekki semst, að farið verði í skærur, svo sem að senda smærri hópa í verk- kröfugerð fyrir næstu samninga væri í undirbúningi heyrðust gamalkunn sjónarmið um að hækkun lægstu launa ógnaði stöðugleika og setti verðbólgu á skrið. Annað hefði þó komið á daginn á síðustu árum en nú væru lágmarkslaun að ná 300 þúsund krónum, eins og SGS hefði krafist í kjaraviðræðum fyrir tveimur árum. Þá hefði kaupmátturinn aukist um- talsvert og ekki hækkað jafnmikið í tuttugu ár. sbs@mbl.is Ummælin óskynsamleg  Fólk sýni yfirvegun, segir formaður SA  Formaður VR boðar harða baráttu og skærur  Framkvæmdastjóri SGS segir kaupmátt ekki hafa hækkað jafnmikið í 20 ár föll svo lama megi mikilvæga starf- semi. Markmiðið sé að allir geti lifað mannsæmandi lífi fyrir dagvinnulaun og haft öruggt þak yfir höfuðið. Því þurfi, til viðbótar við aðgerðir í kjara- málum, að fara í víðtækar kerfis- breytingar svo sem í húsnæðismálum þar sem setja verði reglur sem verji almenning gegn leigufélögum. Kaupmáttur aukist mikið Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, sagði í ávarpi í Ólafsvík í gær að nú þegar MSkæruaðgerðir »4 M I Ð V I K U D A G U R 2. M A Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  102. tölublað  106. árgangur  Vinningar í hverri viku - Happdrætti DAS Það eru 1000 milljónir! Kauptu miða á das.is eða í síma 561 77 57 Nýtt happdrættisár hefst í maí Meira en milljarður í vinningum ár hvert Hannes Hannesson er skynsamur og spila r í Ha ppd ræt ti D AS • Sex 30 milljóna króna vinningar á tvöfaldan miða eða 15 milljónir króna á einfaldan miða • Drögum út meira en 51 þúsund vinninga á árinu PEYSA FRÁ FROSTAVETR- INUM MIKLA ÆVINTÝRI Á SELFOSSI ÞRIÐJA KRYDDIÐ ER BREIÐSKÍFA OG MYNDLISTARSÝNING HANDBOLTI ÍÞRÓTTIR PRINS PÓLÓ 30NOTUÐ Í 100 ÁR 12  Skaginn 3X hefur sótt um að stækka iðnarbyggingar á athafna- svæði sínu á Akranesi um 4.000 fermetra. Bæjarstjórn Akraness áformar breytingu á hafnarsvæði á Grenjum til að koma til móts við óskir fyrirtækisins. Í frumhugmyndum er sýnd stækkun landfyllingar til norðurs út í Krókalón ásamt brimvarnar- garði. Fyllingarnar gætu orðið 12 til 13 þúsund fermetrar. Fyrirhugaðar skipulagsbreyt- ingar verða kynntar á íbúafundi sem haldinn verður í dag. Skaginn 3X hefur undanfarin ár verið leiðandi fyrirtæki í nýsköp- un í matvælaiðnaðinum og þá sér- staklega í tækjabúnaði fyrir sjáv- arútveg. Það á ekki möguleika á að stækka nema með landfyll- ingum. » 10 Hátækni Skaginn 3X smíðar búnað fyrir matvælaiðnað, ekki síst sjávarútveg. Hugað að stækkun Skagans 3X með landfyllingum  Merlin En- tertainments sem undirbýr stofnun hvala- athvarfs í Vest- mannaeyjum hefur hafið byggingu húss fyrir hvalalaug- ar við höfnina. Þar verða mjaldrarnir tveir hafðir í sóttkví þar til þeir fara í kvíar í Klettsvík. Elliði Vignisson bæjar- stjóri nefnir þetta sem dæmi um hvað mikil alvara er í verkefninu enda telur hann allar líkur á að af því verði. Þá segir hann að búið sé að semja um flug á hvölunum frá Sjanghæ til Keflavíkurflugvallar í mars 2019. „Þetta eru væntanlega dýrustu farmiðar sem nokkur hefur keypt,“ segir Elliði. » 2 Byrjað að byggja hús fyrir hvalalaugarnar Til Eyja Mjaldur syndir með kálfi. Fjölmenni tók þátt í hátíðahöldum í gær, 1. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins. Efnt var til baráttufunda eða samkomur haldnar á um 30 stöðum víðsvegar um landið þar sem for- ystumenn ræddu baráttumálin og verkefnin framundan, nú þegar styttist í að kjarasamn- ingar verði lausir. Má segja að margir hafi þarna mælt af heitu hjarta, jafnvel þótt kalt væri í veðri á þessum annars fallega vordegi. Margir tóku þátt í hátíðahöldum verkalýðsfélaganna 1. maí Morgunblaðið/Hari Mælt af heitu hjarta á fallegum vordegi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.