Morgunblaðið - 02.05.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018
Það var vel til fundið hjá ungumjafnaðarmönnum að endur-
flytja í gær tuttugu ára gamla ræðu
Jóhönnu Sigurðardóttur um hús-
næðismál. Ræðan mun vera sú
lengsta í sögu Alþingis, rúmar tíu
klukkustundir, og
vitaskuld eftir því
áhugaverð. Víst er að
margir höfðu beðið
óþreyjufullir í tvo
áratugi eftir að fá að
hlýða á ræðuna aftur.
Ekki var síður veltil fundið að fá
Dag B. Eggertsson til
að flytja hluta ræð-
unnar, enda er hann
nú sá kjörinn fulltrúi
Samfylkingarinnar,
og raunar þótt horft
sé til annarra flokka,
sem lengst getur tal-
að um hvaðeina. Talið er að ef Dag-
ur kemst einhvern tímann á þing sé
ræðumet Jóhönnu í stórkostlegri
hættu.
En nú þegar hafinn hefur veriðendurflutningur á gull-
kornum Jóhönnu verður vonandi
ekki látið staðar numið við húsnæð-
ismálin. Hún hafði svo margt mikil-
vægt að segja um önnur mál.
Margir sakna þess til dæmis aðfá ekki að heyra reglulega
ræður hennar um nauðsyn þess að
samþykkja Icesave-samningana,
sem tilvalið væri að flytja 1. maí á
næsta ári. Og helst árlega eftir það.
Og þá væri jafn viðeigandi og núað fá Dag til að flytja hluta af
ræðunum, því að fáir menn studdu
Icesave-baráttu ríkisstjórnar Jó-
hönnu jafn dyggilega og Dagur.
Er ekki öruggt að landsmenngeti leyft sér að fara að
hlakka til?
Jóhanna
Sigurðardóttir
Hvað með
Icesave-ræðurnar?
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Borgarráð hefur samþykkt tillögu skrifstofu eigna
og atvinnuþróunar um að gerður verði leigusamn-
ingur við Helga Svavar Helgason veitingamann
um verslunarhúsnæði á Langholtsvegi 70. Í þessu
húsi við Sunnutorg var í áratugi rekinn söluturn
en rekstri hans var hætt fyrir nokkrum árum.
Auglýst var eftir hugmyndum að starfsemi í
Sunnutorgi á Langholtsvegi 70 í september 2017.
Um er að ræða 57 fermetra verslunarhúsnæði
byggt árið 1959, teiknað af Sigvalda Thordarson
arkitekt. Við val á starfsemi var miðað við að húsið
gæði hverfið meira lífi og fjölbreytni. Væntanlegir
leigutakar áttu að leggja fram hugmyndir að
starfsemi, útliti og umhverfi en húsið hafði mikið
látið á sjá síðustu ár. Alls skiluðu 5 aðilar inn hug-
myndum. Þriggja manna dómnefnd sem í sátu
Hrólfur Jónsson, Ólöf Örvarsdóttir og Heiðar Ingi
Svansson valdi hugmynd Helga S. Helgassonar
besta en þar er gert ráð fyrir að lagfæra húsið og
vernda upprunalegt útlit. Ragnar Kjartansson
myndlistarmaður mun hanna staðinn. Gert er ráð
fyrir að opna síðar á árinu veitinga- og kaffihús.
Leigugjald er krónur 120.000 á mánuði.
Helgi Svavar Helgason er ekki ókunnur rekstri
veitingahúsa. Hann hefur m.a. rekið Slippbarinn
og Öldu hótel Bistró. Hann stefnir að því að kaffi-
húsið verði fjölskylduvænt. Það verður opið alla
daga frá kl. 10 til 21. sisi@mbl.is
Kaffihús kemur í stað sjoppu
Sunnutorg Húsið verður fært í upprunalegt horf.
Framkvæmdasýsla ríkisins hefur
óskað eftir tilboðum í nýbyggingu
fyrir Byggðastofnun í Sauðármýri
2 á Sauðárkróki. Um er að ræða
jarðvinnu, uppsteypu og fullbúið
hús og allan frágang að utan og
innan, ásamt lóð. Byggingin verður
998 fermetrar á tveimur hæðum og
með kjallara undir hluta hússins.
Á heimasíðu Byggðastofnunar
segir að verkefnið hafi verið unnið
samkvæmt aðferðafræði upplýs-
ingalíkana mannvirkja og að-
ferðafræði vistvænnar hönnunar.
Stefnt er að því að byggingin verði
vottuð sem vistvænt mannvirki
samkvæmt alþjóðlega vottunar-
kerfinu BREEAM.
Verkinu skal vera að fullu lokið
30. september 2019.
Tilboða ósk-
að í nýtt hús
Byggða-
stofnunar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sauðárkrókur Reisa á um 1.000 fer-
metra hús fyrir Byggðastofnun.
SAMSTARFSAÐILI
Hringdu í 580 7000
eða farðu á
heimavorn.is
AR SEM ÞÚ ERTHV
Veður víða um heim 1.5., kl. 18.00
Reykjavík 4 léttskýjað
Bolungarvík 1 snjóél
Akureyri 5 léttskýjað
Nuuk -2 snjókoma
Þórshöfn 5 rigning
Ósló 7 rigning
Kaupmannahöfn 7 skúrir
Stokkhólmur 11 léttskýjað
Helsinki 7 skýjað
Lúxemborg 10 skýjað
Brussel 12 heiðskírt
Dublin 10 súld
Glasgow 10 skúrir
London 12 skúrir
París 13 alskýjað
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 7 rigning
Berlín 14 heiðskírt
Vín 22 heiðskírt
Moskva 23 heiðskírt
Algarve 19 léttskýjað
Madríd 14 léttskýjað
Barcelona 12 þrumuveður
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 3 alskýjað
Montreal 13 skýjað
New York 19 heiðskírt
Chicago 23 heiðskírt
Orlando 25 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:56 21:55
ÍSAFJÖRÐUR 4:44 22:16
SIGLUFJÖRÐUR 4:27 21:59
DJÚPIVOGUR 4:21 21:28