Morgunblaðið - 02.05.2018, Qupperneq 9
9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018
Píratar í Reykja-
nesbæ kynntu
framboðslista
sinn á opnum
fundi sl. laugar-
dag. Listann
skipa 22 ein-
staklingar með
fjölbreyttan bak-
grunn, segir í
fréttatilkynn-
ingu.
Efstur á listanum er Þórólfur Júl-
ían Dagsson, fisktæknir og vél-
stjóri. Hrafnkell Brimar Hall-
mundsson, fornleifa- og tölvunar-
fræðingur, er í öðru sæti og
Margrét Sigrún Þórólfsdóttir,
grunn- og leikskólakennari, skipar
þriðja sætið. Í fjórða sæti er Guð-
mundur Arnar Guðmundsson sagn-
fræðingur og Jón Páll Garðarsson
framkvæmdastjóri í fimmta sæti.
Þórólfur leiðir Pírata
í Reykjanesbæ
Þórólfur Júlían
Dagsson
Viðreisn býður fram lista í Mos-
fellsbæ í komandi kosningum sem
skipaður er til jafns körlum og
konum. Valdimar Birgisson auglýs-
ingastjóri er efsti maður listans en
næst koma Lovísa Jónsdóttir lög-
fræðingur, Ölvir Karlsson lögfræð-
ingur og Hildur Björg Bærings-
dóttir verkefnastjóri.
Helstu áherslumál Viðreisnar
eru gegnsæi í allri stjórnsýslu
bæjarins og að velferð allra íbúa sé
í fyrsta sæti. Viðreisn ætlar t.d. að
styrkja skólastarf með því að styðja
betur við kennara og tryggja öllum
nemendum nútíma tækni og að-
búnað.
Viðreisn með lista
í Mosfellsbæ
Mosfellsbær Efstu menn hjá Viðreisn.
N-listinn býður
fram að nýju í
Húnaþingi vestra
fyrir komandi
kosningar. List-
inn bauð fram í
síðustu kosn-
ingum og náði
meirihluta í
sveitarstjórn.
Oddviti listans er
Magnús Magnús-
son, sóknarprestur og hrossabóndi
á Lækjarbakka í Miðfirði. Magnús
hefur verið sóknarprestur í Breiða-
bólsstaðarprestakalli frá árinu
2010. Í öðru sæti N-listans er Sig-
ríður Ólafsdóttir, sauðfjárbóndi og
ráðunautur í Víðidalstungu, og í 3.
sæti er Magnús Eðvaldsson,
íþróttakennari á Hvammstanga og
varamaður í sveitarstjórn.
N-listinn áfram í
Húnaþingi vestra
Magnús
Magnússon
Páll Valur
Björnsson, kenn-
ari og fv. þing-
maður fyrir
Bjarta framtíð í
Suðurkjördæmi,
leiðir lista Sam-
fylkingarinnar í
Grindavík fyrir
sveitarstjórnar-
kosningarnar 26.
maí. Í öðru sæti
er Marta Sigurðardóttir bæjar-
fulltrúi og í þriðja sæti kemur nýr
inn Alexander Veigar Þórarinsson,
kennari og knattspyrnumaður. Í
fjórða sæti er Erna Rún Magnús-
dóttir nuddari.
Páll Valur efstur hjá
Samfylkingunni
Páll Valur
Björnsson
„Við lofum ekki upp í ermina á
okkur,“ segir Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins og flugvallar-
vina í borgarstjórn, sem ásamt
fleirum hefur stofnað nýtt framboð
fyrir borgarstjórnarkosningarnar
26. maí.
Framboðið nefnist Borgin okkar
Reykjavík, en tíu efstu sætin voru
kynnt sl. föstudag.
Sveinbjörg skipar efsta sæti
listans, í öðru sæti er Edith Alvars-
dóttir þáttagerðarmaður, Jóhannes
Ómar Sigurðsson viðskiptafræð-
ingur er í þriðja sæti og fjórða sæt-
ið skipar Viktor Helgi Gizurarson,
vélaverkfræðinemi í Háskóla Ísl.
Nýr listi Borgarinnar okkar Reykjavíkur
Reykjavík Efstu fjögur á lista Borgarinnar okkar, sem býður fram í Reykjavík í vor.
Viðreisn og Neslistinn bjóða fram
sameiginlegan lista í bæjarstjórnar-
kosningunum á Seltjarnarnesi,
undir listabókstafnum N. Sjö efstu
frambjóðendur voru kynntir nýver-
ið á fundi á kaffihúsinu Örnu á Sel-
tjarnarnesi. Tvö efstu sæti listans
skipa Karl Pétur Jónsson vara-
bæjarfulltrúi og Hildigunnur
Gunnarsdóttir, námsráðgjafi við
Kvennaskólann.
Í næstu sætum á listanum koma
Björn Gunnlaugsson, kennari og
verkefnastjóri hjá Kópavogsbæ, og
Rán Ólafsdóttir laganemi. Í fimmta
sæti er Oddur J. Jónasson þýðandi,
Margrét Hugrún Gústavsdóttir
blaðamaður er í 6. sæti og Ragnar
Jónsson rannsóknarlögreglumaður
er í 7. sæti.
Helstu baráttumál listans eru að
auka lýðræðislega stjórnarhætti á
Seltjarnarnesi, þar sem sami flokk-
ur hafi verið í meirihluta í 68 ár,
þ.e. Sjálfstæðisflokkurinn.
Karl Pétur efstur á sameiginlegum lista
Viðreisnar og Neslistans á Seltjarnarnesi
Seltjarnarnes Efstu frambjóðendur á
lista Viðreisnar/Neslistans.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018