Morgunblaðið - 02.05.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Bæjarstjórn Akraness áformar
breytingu á hafnarsvæði á Grenj-
um til að koma til móts við óskir
fyrirtækisins Skaginn 3X hf. um
aukið rými. Fyrir liggur umsókn
fyrirtækisins um stækkun iðn-
aðarbygginga um 4.000 fermetra.
Skaginn 3X hefur undanfarin ár
verið leiðandi fyrirtæki í nýsköpun
í matvælaiðnaðinum og þá sérstak-
lega í tækjabúnaði fyrir sjávar-
útveg. Lausnir Skagans byggjast á
mikilli sjálfvirkni með áherslu á
aukin gæði og nýtingu afurða auk
þess sem hagkvæmar og umhverf-
isvænar kæli-, pökkunar- og flutn-
ingslausnir eru hafðar að leiðar-
ljósi. Hjá fyrirtækinu starfa um 90
manns við hönnun, þróun og fram-
leiðslu. Skaginn 3X hf. hlaut
Nýsköpunarverðlaun Íslands árið
2017.
Athafnasvæði Skagans 3X er á
Grenjum milli Lambhúsasunds og
Krókalóns. Þar hefur um áratugi
verið dráttarbraut og skipasmíða-
stöð Þorgeirs og Ellerts. Í frum-
hugmyndum er litið til stækkunar
landfyllingar til norðurs út í Króka-
lón. Hugsanlegar landfyllingar
gætu orðið um 12-13.000 fermetrar.
Fyllingarefni mun koma úr viður-
kenndum námum með starfsleyfi.
Efni í brimvarnargarð fæst að
mestu úr núverandi garði verði sú
leið valin að færa hann fram til
norðurs.
Í skipulagslýsingu, sem birt er á
vef Akraneskaupstaðar, koma fram
áherslur sveitarstjórnar, upplýs-
ingar um forsendur, viðfangsefni
og fyrirhugað skipulagsferli. Með
framlagningu og kynningu lýsingar
í upphafi verks er umsagnaraðilum,
hagsmunaaðilum og almenningi
gefinn kostur á að leggja fram
sjónarmið og ábendingar sem að
gagni gætu komið við skipulags-
vinnuna áður en gengið verður frá
breytingartillögum til afgreiðslu og
auglýsingar.
Svæðið á Grenjum er þéttbyggt
stórum iðnaðarbyggingum. Úti-
svæði með ýmsum búnaði og að-
stöðu er á suður- og vesturhluta
svæðisins. Landið hefur verið mót-
að með landfyllingum við eiðið milli
Lambhúsasunds og Krókalóns frá
landi yfir á Vesturflös, sem markar
vesturmörk svæðisins. Ströndin við
Krókalón hefur breyst mikið, ann-
ars vegar vegna sjóvarnargarða
meðfram henni allri og hins vegar
vegna landfyllinga á Grenjum.
Skipulags- og umhverfisráð legg-
ur áherslu á að vaxtarmöguleikar
fyrirtækja á skipulagssvæðinu
verði tryggðir eftir því sem að-
stæður leyfa. Jafnframt verði þess
gætt að landfyllingar og landmótun
falli sem best að landslagi og um-
hverfi.
Vaxtarmöguleikar fyrirtækisins
Skaginn 3X, sem er vaxandi fram-
leiðslufyrirtæki á sínu sviði á al-
þjóðamarkaði, séu takmarkaðir
nema með landfyllingum. Hagræði
felist í stækkun iðnaðarbygginga
þannig að auka megi framleiðslu-
getu fyrirtækisins á Akranesi.
Framkvæmd í umhverfismat
Skipulagsbreytingarnar eru háð-
ar lögum um umhverfismat. Því
verður unnin umhverfisskýrsla
samhliða breytingu á aðalskipulagi
þar sem metin verða þau áhrif sem
hugsanlegar breytingar kunni að
hafa á umhverfi og samfélag.
Skipulagsbreytingin verður
kynnt á íbúafundi sem haldinn
verður í bæjarþingsalnum, þriðju
hæð í Stillholti 16-18, í dag, mið-
vikudaginn 2. maí kl. 18:00. Einnig
verður kynnt fyrirhuguð breyting á
Akraneshöfn sem felst m.a. í nýjum
hafnarbakka með 220 metra við-
legu, þ.e. 90 metra lenging á núver-
andi bakka.
Skaginn 3X áformar stækkun
Hyggst byggja 4.000 fermetra nýbyggingu á Akranesi Nýbyggingin mun rísa á landfyllingum til
norðurs út í Krókalón Skipulagslýsing kynnt á íbúafundi í dag Hafnargarðurinn verður lengdur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skipaskagi Yfirlitsmynd yfir byggðina á Akranesi. Lengst til vinstri má sjá byggingar Skagans 3X sem sumar
hýstu áður skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts. Litið er til stækkunar á landfyllingum til norðurs út í Krókalónið.
VÍKURVAGNAR EHF.
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík -
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Hjólastandar á bíla og í bílskúrinn.
Hver standur er fyrir 2-3 hjól.
Vönduð evrópsk framleiðsla.
Dráttabeisli á allar gerðir bíla ásamt ásetningu.
Fastar kúlur, smellukúlur og prófílbeisli.
Ásetning á staðnum. nnanmál
YFIR 30 ÁRA REYNSLA Í AÐ ÞJÓNUSTA VIÐSKIPAVINI
- MIKIL ÞEKKINGOGVÖNDUÐVINNUBRÖGÐ - farangursbox á allar gerðir bíla.Stærðir 360 - 500 lítra
Vönduð evrópsk framleiðsla.