Morgunblaðið - 02.05.2018, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 02.05.2018, Qupperneq 13
Sterk Ótrúlegt er hversu lítið slitin aldargömul peysan er. Ekkert gat er á henni að finna, en stroff- ið hefur aðeins trosn- að. Bjó sig undir að sitja við dánarbeð eiginmannsins „Foreldrar mínir fóru að búa saman um 1940, en pabbi minn, Þor- lákur Helgaon, var hafnarverkfræð- ingur og þurfti starfs síns vegna að ferðast mikið um landið. Hann ferð- aðist með strandferðaskipunum Herðubreið og Skjaldbreið, í alla vega veðrum og stundum þurfti hann að fara ríðandi,“ segir Ragn- heiður og bætir við að faðir hennar hafi orðið mikið veikur í fimmta bekk í Menntaskólanum í Reykja- vík. „Hann fékk brjósthimnubólgu á alvarlegu stigi, en náði sér af henni, lauk sínu stúdentsprófi árið 1923, og ákvað þá að ganga yfir landið, ásamt bekkjarbróður sínum sem einnig hafði orðið veikur, til að herða sig, verða sterkari og jafna sig í lung- unum. Þeir gengu frá Reykjavík yfir í Hrútafjörð.“ Ragnheiður segir að móðir hennar hafi verið áhyggjufull yfir öllum ferðalögum eiginmanns- ins í vinnunni og að hún hafi lagt áherslu á að hann væri vel klæddur og passaði upp á lungun. „Hún samdi við hann að hann færi ævinlega með færeysku hlýju ullarpeysuna hennar með sér, sem hafði dugað svo vel frostaveturinn mikla. Pabbi gegndi þessu yfirleitt, nema einu sinni, þá tók hann peys- una ekki með. Þetta var árið 1945 og mamma var þá komin sjö mánuði á leið með bróður minn. Hún fær hringingu og henni sagt að pabbi hafi verið lagður inn á sjúkrahúsið á Húsavík, fárveikur. Það horfði ekki vel með hann, svo hún var beðin um að koma norður. Hún tók rútu í hasti og bjó sig undir að sitja við dánarbeð eiginmannsins. En hann hresstist sem betur fer og náði aftur heilsu. Þá tók mamma af honum loforð að aldrei færi hann aftur án peysunnar. Hann sagði: „Frú Elísabet, þetta er rétt hjá þér, þessi peysa hefur marg- oft bjargað lífi mínu.“ Og hann stóð við það að fara aldrei án peysunnar alla sína verkfræðingstíð.“ Þetta var aðalflíkin þegar ég var að reyna að vera hippi Peysan hélt áfram að þjóna því hlutverki sínu hjá næstu kynslóð að halda hita á heimilismeðlimum, því aldrei var farið í útilegu án þess að peysan góða væri með í för. „Hvort sem það var bróðir minn eða ég sem fórum í útilegu, þá tók- um við þennan dýrgrip með. Auk þess fannst mér hún svaka smart á árunum 1966 til 1968, þegar ég var að reyna að vera hippi, þá var þetta aðalflíkin og ég sló í gegn þegar ég skartaði henni. Ég ferðaðist mikið með Náttúrufræðifélaginu og ævin- lega var peysan með í för.“ Elísabet dóttir Ragnheiðar reyndi að nota peysuna en átti erfitt með hvað hana klæjaði undan henni. Arnmundur sonur hennar hefur aft- ur á móti tekið þá afstöðu að láta sig ekki klæja. „Peysan hefur verið í notkun í þessi hundrað ár, en það mátti litlu muna að hún færi frá mér þegar ég flutti fyrir ári úr Hákoti, húsi mínu í Fischersundi. Mér datt í hug að gefa hana til Byggðasafnsins í Skógum því hún tengdist sögu afa míns, sýslumannsins í Rangárþingi. En ég ákvað að flytja hana með mér á nýtt heimili, sem betur fer, því eftir það kom áhugi ömmudrengsins á peys- unni í ljós.“ Sýslumaðurinn Björgvin afi Ragnheiðar keypti tuttugu fær- eyskar peysur fyrir heimili sitt hinn harða vetur 1918. Harkan í kuldanum þennan frostavetur byrj- aði í desember en síðan herti frostið enn meir og varð gríðarlegt í janúar. Efri-Hvoll 1923 Björgvin sýslumaður og kona hans, Ragnheiður, t.h. situr Elísabet en t.v. stendur systir hennar. Framan við eru tvær fósturdætur og sá skeggjaði er Jón skrifari. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is Vorin eru sannarlega yndisleg, þegar lífið kviknar bæði í gróðri og skepnum. Garðar fólks fyllast af fjöl- breyttum fuglasöng og jörðin angar af nýju lífi. Magnús Guðmundsson, starfsmaður Náttúrufræðistofnunar, hefur komið upp vefmyndavél undir þakskeggi þar sem svartþrastarkerla liggur á í Mosfellsbæ. Getur fólk því fylgst með streymi þessu með því að fara á YouTube og slá inn í leit: Magn- ús Guðmundsson Live Stream. Ótrúlega gaman er að fá að gægj- ast inn um þennan glugga og sjá hvernig parið skiptir með sér verkum og hvort þeirra er duglegra að draga björg í bú. Kerlingin leitar til dæmis fanga í garðinum og fer stuttar ferðir en karlinn leitar aftur á móti eftir ormum í næstu görðum. Og athygli vekur að þó svo að boð- ið sé upp á epli og brauð kýs fugla- parið frekar að bjóða ungum sínum upp á sprelllifandi ánamaðka. Þeir eru iðnir blessaðir smáfugl- arnir við að koma lífinu á legg, alltaf að fljúga fram og til baka og leggjast svo stundum hjá ungunum. Að kíkja öðru hvoru inn á þetta streymi er til- valið að gera með börnum. Endilega … Morgunblaðið/Ómar Fallegur Þessi svartþröstur var í Laugardalnum eitt árið, með sinn gula gogg. … fylgist með svartþresti fæða unga sína í beinni útsendingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.