Morgunblaðið - 02.05.2018, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
„Það væri mjög gagnlegt að taka
nágrannaríki okkar til fyrirmyndar
og veita skattaafslætti til einstak-
linga og fyrirtækja, á móti því fé
sem viðkomandi setja í rannsókn-
arsamstarf og styrki til háskóla, og
hvetja þannig til samstarfs at-
vinnulífs og háskólanna,“ segir Jó-
hanna Vigdís Guðmundsdóttir.
„Það skiptir svo miklu máli fyrir
samfélagið að færa þekkinguna út
úr háskólunum og inn í atvinnu-
lífið. Það nærir nýsköpunarum-
hverfið og þannig verða líka til
nýjungar í rótgrónum fyrirtækj-
um.“
Jóhanna Vigdís er framkvæmda-
stjóri tengsla hjá Háskólanum í
Reykjavík og mun á þriðjudag
stýra kynningarfundi um verkefna-
sjóð HR. Sjóðurinn úthlutar
styrkjum vegna rannsóknarverk-
efna meistara- og doktorsnema við
HR, sem unnin eru í samstarfi við
atvinnulífið og eru alls 44 milljónir
í pottinum þetta árið.
„Á við þokkalegt
þróunarteymi“
Jóhanna Vigdís segir brýnt að
reynt verði að greiða enn frekar
fyrir samstarfi háskólasamfé-
lagsins og atvinnulífsins. Í tilviki
HR hafi gefist mjög vel að eiga í
nánu og markvissu samstarfi við
jafnt stór sem smá fyrirtæki.
Þannig séu nemendur betur búnir
undir vinnumarkaðinn og atvinnu-
lífinu gert mögulegt að nýta dýr-
mæta þekkingu og starfskrafta
nemendanna.
Hún segir verkefnasjóðinn gott
dæmi um vel heppnað samstarf.
„Með því að leggja fjármagn í
verkefnasjóðinn eru fyrirtækin að
fá til sín mjög hæfa nemendur til
að sinna afmörkuðum rannsóknar-
eða þróunarverkefnum. Samstarfs-
fyrirtækin koma til okkar með
ákveðnar hugmyndir um rann-
sóknir, eða verkefni til að fram-
kvæma, sem geta fallið að rann-
sóknarsviði framhaldsnema við
ýmsar deildir háskólans. Nemend-
urnir gera á móti tillögur að verk-
efnum, í samstarfi við leiðbeinend-
ur sína, og fagleg nefnd ákveður
hvaða verkefni hljóta styrk,“ segir
Jóhanna Vigdís. „Meistarasjóður-
inn getur í raun verið mjög hag-
kvæm leið fyrir fyrirtæki til að
finna svör við brennandi en erf-
iðum spurningum, án þess að þurfa
að nýta til þess krafta starfsmanna
sem hafa í nógu að snúast við sín
daglegu störf. Samstarfsfyrirtækin
fá iðulega mikið fyrir sinn snúð og
ekki óalgengt að út úr slíku sam-
starfi komi, yfir samningstímann,
rannsóknir sem jafnist á við
þokkalegt rannsóknar- og þróun-
arteymi.“
Nemendurnir græða líka, enda
fá þeir að spreyta sig á raunhæfu
verkefni þar sem þeir geta nýtt þá
þekkingu sem þeir hafa öðlast í
náminu. Þeir skapa sér um leið
dýrmæt sambönd í atvinnulífinu og
ná mögulega að greiða sér leið að
góðu framtíðarstarfi. „Allar deildir
HR eiga líka í samvinnu við fjölda
fyrirtækja sem fá til sín nemendur
í starfsnám. Þar fá nemendurnir
þekkingu og þjálfun, og fyrirtækin
leið til að kynnast efnilegum fram-
tíðarstarfsmönnum.“
Samstarfið færir þekk-
inguna út í atvinnulífið
Ljósmynd/Golli
Ávinningur Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir segir bæði háskólann, nemend-
urna og fyrirtækin hagnast á samstarfinu og að það ýti undir nýsköpun.
44 milljónir til styrktar rannsóknum framhaldsnema við HR
Undanfarna sex mánuði hefur olíu-
framleiðsla Venesúela minnkað um
23% eða um það bil 450.000 föt af
olíu á dag. Að sögn FT telja mark-
aðsgreinendur líklegt að fram-
leiðslan muni dragast saman um
allt að 500.000 föt til viðbótar á
þessu ári.
Til að setja þróun olíuframleiðslu
Venesúela í samhengi þá sömdu
Rússland og OPEC-ríkin um það í
árslok 2016 að minnka olíu-
framleiðslu sína um 1,8 milljónir
fata á dag til að hækka heimsmark-
aðsverð á olíu.
Er olíuframleiðsla í Venesúela í
miklum ólestri og hefur fjöldi
starfsmanna ríkisolíufyrirtækisins
PDVSA sagt upp störfum. „Okkur
skortir vinnuvélar, okkur skortir
verkfæri, okkur skortir allt,“ hefur
FT eftir Patrick Pouyanne, for-
stjóra franska olíufyrirtækisins
Total, sem er með starfsemi í
Venesúela.
Tveir innkaupastjórar Chevron,
sem einnig er með rekstur í land-
inu, voru handteknir í síðustu viku
og sakaðir um landráð eftir að þeir
neituðu að undirrita vörukaupa-
samning við PDVSA þar sem verð
reyndist í mörgum tilvikum tvöfalt
hærra en á almennum markaði.
Segir Reuters að fulltrúar PDVSA
noti slíka samninga sem leið til að
raka til sín mútum. Þegar hafa 80
stjórnendur hjá PDVSA og hjá
birgjum þeirra verið handteknir
fyrir meinta spillingu.
Forsetkosningar fara fram í
Venesúela 20. maí næstkomandi og
hafa Bandaríkin, ESB og fimmtán
stærstu lönd Rómönsku Ameríku
sagt að þau muni ekki viðurkenna
niðurstöður kosninganna enda hafi
stjórnvöld meinað öllum nema ein-
um fulltrúa stjórnarandstöðunnar
að bjóða sig fram gegn Nicolás
Maduro sem stýrt hefur landinu frá
2013. Er talið líklegt að Bandaríkin
bregðist við sigri Maduro með
auknum viðskiptaþvingunum, sem
munu laska olíugeira landsins enn
frekar. ai@mbl.is
AFP
Skortur Hallað hefur hratt undan
fæti í stjórnartíð Nicolás Maduro.
Olíuframleiðsla Vene-
súela minnkar hratt
Donald Trump Bandaríkjaforseti
hefur ákveðið að fresta því um 30
daga að leggja aukna tolla á innflutt
ál og stál frá ríkjum Evrópusam-
bandsins, Kanada, Mexíkó og öðrum
vinalöndum. FT segir þetta veita
embættismönnum meira ráðrúm til
að semja um varanlegar undanþágur
frá tollunum en fulltrúi Hvíta hússins
upplýsti á mánudag að ekki yrði um
frekari fresti að ræða.
Heimildarmenn telja stutt í að
samkomulag náist á milli Bandaríkj-
anna, Kanada og Mexíkó um breyt-
ingar á fríverslunarbandalagi Norð-
ur-Ameríku sem m.a. munu hlífa
nágrönnum BNA við tollunum. Hafa
Bandaríkin notað fyrirhugaða ál- og
stáltolla sem vopn í viðræðunum en
Kanada er stærsti innflytjandi áls og
stáls til Bandaríkjanna.
Viðræður við ESB virðast ekki
ganga jafn greiðlega. Hafa Bandarík-
in lagt til að setja magnkvóta á inn-
flutning á evrópsku áli og stáli, eða
semja um hagstæðari tolla á iðnaðar-
vörum, en samningamenn ESB verið
lítt hrifnir af þeim hugmyndum.
Fulltrúar Evrópusambandsins
sögðu á mánudag að ESB skorti ekki
viljann til að semja um lægri tolla við
Bandaríkin en fyrst þyrftu ráðamenn
í Washington að veita ríkjum Evrópu
varanlega undanþágu frá nýju ál- og
stáltollunum. „Þó að við höfum lengi
verið vinir og samstarfsaðilar Banda-
ríkjanna þá munum við ekki semja á
meðan við sætum hótunum,“ sagði í
tilkynningu frá framkvæmdastjórn
ESB.
Bráðabirgðasamningar hafa þegar
náðst á milli Bandaríkjanna og Arg-
entínu, Ástralíu, og Brasilíu. Hafa
löndin 30 daga til að staðfesta samn-
ingana en þeir munu fela í sér varan-
lega undanþágu frá nýju tollunum. Í
síðasta mánuði gerðu Bandaríkin og
Suður Kórea með sér verslunar-
samning sem m.a. kveður á um að
innflutningur á suðurkóresku stáli til
Bandaríkjanna muni minnka um
30%. ai@mbl.is
AFP
Skjálfti Stál undirbúið til flutnings. Útspil Trumps kann að hafa nýst til að
flýta fyrir breytingum á Nafta-samningnum við Mexíkó og Kanada.
Trump frestar
tollum á vinaþjóðir
ESB sakar BNA um að beita hótunum