Morgunblaðið - 02.05.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.05.2018, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Borgaryf-irvöld íReykjavík ganga æ lengra í að knýja í gegn þétt- ingu byggðar. Sú stefna að nýta auðar lóðir og þétta byggð eftir því sem að- stæður leyfa er sjálfsögð og hefur lengi verið við lýði. Nú- verandi borgaryfirvöld hafa hins vegar gengið mun lengra en þetta og stunda þéttingu af slíkum ákafa að stór hætta er á ferðum að óafturkræfur skaði verði af. Nýtt dæmi um þetta eru þéttingaráform við Furugerði, meðfram Bústaðavegi. Í aðal- skipulagi segir um þetta svæði: „Svæðið er að mestu fullbyggt og fastmótað. Möguleiki er á lítilsháttar þéttingu íbúða- byggðar (4-6 íbúðir) við Furu- gerði, næst Bústaðavegi (Gróðrarstöðin Grænahlíð).“ En þó að talað sé um 4-6 íbúðir í aðalskipulagi hefur borgin nú uppi áform um að byggja allt að 37 íbúðir á lóðinni. Þegar íbú- arnir kvörtuðu svöruðu borgar- yfirvöld með hótunum um að „strangt til tekið [sé] möguleiki á að fara upp í allt að 49 íbúðir á þessum reitum án þess að breyta aðalskipulagi Reykja- víkur“. Borgaryfirvöld átta sig vita- skuld á að á þessu svæði eru ekki aðstæður fyrir alla þessa þéttingu og um leið að ótti íbú- anna sé skiljanlegur. Borgaryf- irvöld vita sem er að ef slíkum fjölda íbúða er troðið inn í hverfi sem er „að mestu full- byggt,“ eins og segir í aðal- skipulagi, þá hlýtur eitthvað undan að láta. Eitt af því sem ástæða er til að hafa áhyggjur af á svæðinu er að bílastæði verða ekki næg fyr- ir alla nýju íbúana. Þetta er augljóst og borgaryfirvöld gera sér bersýni- lega grein fyrir því. Þau reyna ekki að halda því fram að áhyggjurnar séu ástæðulausar en svara þess í stað út í hött. Svar borgaryfirvalda er að íbú- ar við Furugerði geti „nýtt reiðhjól sem samgöngumáta, til jafns við bifreið, þar sem breyt- ingar á Grensásvegi hafa leitt til betra aðgengis fyrir reið- hjól“. Það að Grensásvegurinn var þrengdur fyrir um 200 milljónir króna á sem sagt að vera rétt- læting fyrir því að íbúar við Furugerði þurfi ekki að eiga bíla eins og aðrir borgarbúar. Þegar rökstuðningurinn er kominn í slíka órafjarlægð frá veruleikanum er ástæða fyrir borgarbúa að hafa áhyggjur. Og ekki aðeins íbúa Furugerð- is, því að ofurþétting eins og þar er áformuð er möguleg mun víðar í borginni. Í aðalskipulag- inu sem vitnað var í hér að framan má sjá að í næsta ná- grenni við Furugerðið eru til dæmis margir aðrir möguleikar á ofurþéttingu byggðar sé horft til orðalags aðalskipulagsins og túlkunar núverandi borgaryfir- valda um það hvað sé mögulegt „strangt til tekið“. Að ekki sé talað um aðra borgarhluta þar sem „strangt til tekið“ má þétta byggð verulega þó að í aðal- skipulagi segi að svæðið sé „að mestu fullbyggt,“ enda víðast hvar hægt að ferðast um á reið- hjólum og meira að segja hvernig sem viðrar, vetur, sum- ar, vor og haust, strangt til tek- ið. Furðusjónarmið borgaryfirvalda ná nýjum hæðum} Íbúar við Furugerði ferðist á reiðhjólum Í gær hækkuðulaun almennt samkvæmt kjara- samningum um 3%. Lægstu laun hækk- uðu meira, eða um 7%. Eftir tvo mán- uði hækkar svo mótframlag at- vinnurekenda í lífeyrissjóði úr 10% í 11,5% og hafa þá hækkað um 3,5% á tveimur árum. Þessar myndarlegu hækk- anir koma í framhaldi af nokkr- um öðrum myndarlegum hækk- unum á síðustu árum. Samanlagt hafa kjör launþega því breyst gríðarlega til hins betra á liðnum árum og gengi krónunnar hefur tryggt að launþegar hafa notið verulegra kjarabóta. Þegar Ísland er borið saman við önnur ríki má sjá að staðan hefur gjörbreyst á fáum árum og Ísland er í hópi þeirra landa þar sem laun eru hæst. Ánægjulegt er að um leið er Ísland í hópi þeirra landa þar sem laun eru jöfnust. Á næstu mánuðum og miss- erum skiptir miklu að verja þann árangur sem náðst hefur. Illa grundaðar hugmyndir um að hægt sé að bæta kjör jafn hratt og gert hefur verið á síð- ustu árum eru ekki það sem launþegar þurfa á að halda. Með skynsemi er hægt að ná enn meiri árangri og tryggja áframhaldandi kjarabætur inn í framtíðina. En með óraunsæju skrumi er líka hægt að eyði- leggja þann árangur sem náðst hefur. Vonandi velja lands- menn fyrri leiðina. Ísland er komið í hóp þeirra landa þar sem laun eru hæst og jöfnust} Gríðarlegar kjarabætur Á dögunum átti ég erindi í kjörbúð í miðborg Reykjavíkur. Erindið var ekkert mikilvægt, heldur ætlunin að fjárfesta í sódavatni og tyggjói, sem hvorugt telst nauðsynjavara. Þegar kom að því að greiða reyndist fjárhæð þessara hluta vera 838 krónur! Vatnsflaskan, sem innihélt 500 ml af kolsýrðu vatni, var verð- lögð á 439 kr og tyggjóið á 399 kr. Þar sem þetta var engin nauðsynjavara, þakkaði ég bara fyrir mig, sagðist hætt við kaupin og hélt mína leið. Nú má margt segja um það hvað það er yfir- leitt heimskulegt að fjárfesta í vatni og tyggjói, en ég vona að lesendur sjái í gegnum fingur sér með það og horfi á efni pistilsins sem er hvort ekki eigi að fara í átak gegn okri á Íslandi. Undanfarin ár, þegar ferðamönnum hefur fjölg- að umtalsvert, hefur borið æ meira á frásögnum af brauðsneiðum í sjoppum sem seldar eru líkt og um dýr- indis steikur sé að ræða, kaffibollum sem verðlagðir eru eins og kampavínslögg eða gistingum á fábrotnum gisti- heimilum í dreifbýli sem verðlagðar eru eins og fjögurra stjörnu hótel á Times Square. Frá Feneyjum bárust þær fregnir fyrr á árinu að lög- reglustjórinn þar í borg í félagi við borgarstjóra hefði ákveðið að grípa til aðgerða gegn okri, eftir að fréttir bár- ust af því að fjórir japanskir ferðamenn hefðu verið rukk- aðir um 139 þúsund krónur fyrir fjórar steikur og bakka með grilluðum fiski. Þetta gullgrafaraæði er því sem betur fer ekki einskorðað við okkur Íslendinga, en okkar er að bregðast við hér á landi. Stjórnvöld ættu, í samvinnu við samtök neytenda og fleiri aðila, að hefja vinnu við það að athuga hvernig sporna megi við svona okri sem enga tengingu hefur við raunveruleg útgjöld söluaðila. Stjórnvöld segi ég því þó að samkeppnin eigi að leysa öll vandamál þá er staðreyndin engu að síður sú að okrið virðist frekar breiða úr sér en hitt. Með fjölgun ferðafólks ber meira á þessu. Ferðafólk virðist eiga í meiri erfið- leikum með að átta sig á þessu gríðarháa verð- lagi á köflum sem kemur líklega til af okkar ör- gjaldmiðli sem og hversu flókið það kann að vera í stuttri heimsókn að setja sig inn í hvar er betra að kaupa inn og hvaða staði ber að forðast. Þetta snýr vissulega einnig að okkur íbúunum, en ég leyfi mér engu að síður að full- yrða að við erum þó betur í stakk búin til að sneiða einfaldlega hjá stöðum sem okra með viðlíka hætti á viðskiptavinum sínum. Einhvers konar þak á álagningu hefði þó vissulega áhrif á okkur öll. Samtök ferðaþjónustu og Íslandsstofa ættu einnig að sjá sér hag í því að koma að slíku verkefni. Þessi græðgi sem birtist okkur í ofurálagningu á vörum og þjónustu spyrst fljótt út og hefur nú þegar sett svartan blett á okk- ar góða land. Förum í þetta verkefni og finnum tæki sem nýta má til að sporna við þessum óskunda. Helga Vala Helgadóttir Pistill Okur í boði? Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. Helgavala@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Skattbyrði barnlausra laun-þega hér á landi sem erumeð meðallaun er nokkruþyngri en nemur meðaltal- inu í ríkjum innan OECD. Sömu sögu er að segja af skattgreiðslum hjóna eða sambýlisfólks þar sem annað er útivinnandi, með meðallaun og tvö börn á framfæri sínu. Þetta má lesa út úr árlegum samanburði OECD á skattbyrði launafólks á seinasta ári í 35 aðildarríkjum stofnunarinnar. Þessar niðurstöður koma í ljós þeg- ar reiknað er hversu hátt hlutfall af launatekjum sínum launþegar greiða sjálfir í skatta og að teknu tilliti til bóta en þá mælist skattbyrði barn- lausra einstaklinga á Íslandi með meðallaun 28,7% á síðasta ári en með- altalið innan OECD var 25,5%. Þetta þýðir að einhleypur og barnlaus laun- þegi með meðallaun á vinnumarkaði hér á landi hélt eftir 71,3% af atvinnu- tekjum sínum eftir skatta en með- altalið innan OECD fyrir þennan hóp launþega var 74,5% samkvæmt út- reikningum OECD. Barnabætur og aðrir frádrættir draga vitanlega úr skattbyrði laun- þega sem eru með börn á framfæri sínu. Í samanburði OECD kemur fram að skatthlutfall einstaklings með tvö börn á framfæri sínu og með með- allaun fór í 18,6% í fyrra þegar tekið hefur verið tillit til bóta. Sú sköttun er þó eftir sem áður nokkuð yfir meðal- tali OECD-ríkjanna, sem var 14% í fyrra. Er skatthlutfallið fyrir þennan hóp hér á landi hið tólfta hæsta meðal allra 35 aðildarlanda OECD, að því er fram kemur í umfjöllun um skatt- byrðina á Íslandi. Þetta hefur í för með sér að 81,4% af heildarlaununum eru eftir í vasa launþegans á Íslandi sem er með meðallaun og tvö börn á framfæri sínu eftir að hann hefur greitt alla sína skatta og skyldur. En meðallaunþeginn í OECD fær meira af tekjum sínum í vasann eða 86% en munurinn er þó mikill milli landa. Í 23. sæti í samanburði OECD Um árabil hefur OECD líka notað annan mælikvarða á skatta ein- staklinga og reiknað svokallaðan skattafleyg við samanburð á skatt- lagningu á laun í aðildarlöndunum. Skattafleygurinn sýnir hlutfall samanlagðra skatta og launatengdra gjalda af launakostnaði atvinnurek- andans vegna starfsmanns. Hér eru þá t.d. tryggingagjald og framlög til almannatrygginga frá sjónarhóli launagreiðandans tekin með svo og endurgreiðslur frá skatti og bætur launþegans reiknað sem hluti af heildarlaunakostnaði vegna sérhvers starfsmanns. Fleygurinn sýnir í hverju landi fyrir sig hversu breitt bil er á milli heildarlaunakostnaðarins og þess sem launþeginn ber úr býtum eftir skatta. Því hærri sem skatta- fleygurinn er, þeim mun minna fær launþeginn í vasann eftir skatta. Skattbyrðin hér á landi á þennan mælikvarða var nálega sú sama í fyrra og á árinu á undan. Ísland er í 23. sæti meðal OECD-ríkjanna eða sama sæti og árið 2016. Fleygurinn er hærri í 22 OECD-löndum en hér. Hlutdeild skatta og launatengdra gjalda af meðallaunum einhleyps og barnlauss einstaklings var 33,2% á seinasta ári, örlítið lægri en á árinu á undan og talsvert undir meðaltalinu innan OECD, sem var 35,9%. Samanburður á skattgreiðslum hjóna með tvö börn þar sem annað er útivinnandi og með meðallaun setur Ísland einnig í 23. sæti meðal OECD- landanna. Hafa ber í huga við þennan saman- burð fyrirvara sem fjármálaráðu- neytið hefur áður bent á vegna út- reikninga OECD á skattafleygum að lífeyriskerfi margra landa OECD byggjast upp á skatti sem leggst bæði á launagreiðendur og launþega, en hér á landi er meginstoð lífeyriskerf- isins utan hins opinbera. Þyngri skattbyrði en að jafnaði í OECD Morgunblaðið/Ómar Úttekt Skattar af launatekjum hækkuðu í 20 af 35 löndum OECD í fyrra . Þó að skattafleygurinn hafi breyst tiltölulega lítið hér á landi á seinustu misserum og verið undir meðallagi OECD, hefur hann hækkað verulega yfir lengri tíma litið og skatt- byrði launþega með meðal- laun þyngst á undanförnum árum. OECD bendir á að frá árinu 2000 hefur skattafleygur ein- hleyps launþega á Íslandi hækkað um 4,4 prósentustig á sama tíma og hann minnk- aði um 1,1 stig að meðaltali í OECD-löndunum. Mestar hækkanir urðu eftir hrunið á árunum 2009 til 2013 en þá jókst skattbyrðin um þrjú pró- sentustig. Hækkaði eft- ir hrunið SKATTAFLEYGURINN Morgunblaðið/Arnaldur Fé Skattafleygurinn var 28,8% árið 2000 en 33,2% í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.