Morgunblaðið - 02.05.2018, Síða 17
Borgarsjóður safnar skuldum og eigið fé rýrnar
Allar tölur eru á föstu verðlagi m.v. árslok 2017. Heimild: Ársreikningar Reykjavíkurborgar.
Meðalaukning skulda á ári Hækkun skulda á hverjum degi
2010 til 2017 2014 til 2017 2010 til 2017 2014 til 2017
2010 til 2017 2014 til 2017
2010 til 2017 2014 til 2017
2010 til 2017 2014 til 2017
Skuldaaukning á hverja fjölskyldu Hækkun/lækkun eigin fjár
1,5
1,0
0,5
0
8
7
6
.000 22
20
18
16
5
0
-5.000
7.045
1,8
19,3
8.084
1,0
22,1
5.799
-7.330
Milljónir kr.
Milljónir kr.
Milljónir kr.
Milljónir kr.
Salurinn er þéttset-
inn. Langflestir hlut-
hafarnir eru mættir.
Fyrir liggur árs-
skýrsla stjórnar og
beðið er eftir ræðu
stjórnarformannsins
sem setið hefur í
brúnni í átta ár og
þar af síðustu fjögur
sem hæstráðandi.
Það hefur verið
bullandi góðæri í efnahagslífinu.
Hagvöxtur með því mesta í sög-
unni. Landsframleiðsla jókst um
3,8% á síðasta ári og hagvöxtur ár-
ið á undan var 7,4%. Ríkissjóður
hefur verið rekinn með afgangi
undanfarin ár og greitt skuldir
hressilega niður.
En þegar hluthafarnir fara yfir
síðustu ár er fátt sem getur veitt
þeim gleði. Tekjur hafa sannarlega
hækkað verulega. Heildartekjur
voru 28 milljörðum hærri að raun-
virði á síðasta ári en fyrir fjórum
árum og liðlega 41 milljarði hærri
en fyrir átta árum. Slík tekjuaukn-
ing hefði átt að vita á gott.
Fyrirtækið þeirra hefur safnað
skuldum – þær hafa tvöfaldast að
raunvirði á átta árum. Sem hlutfall
af tekjum hafa skuldir hækkað úr
56% í 85%. Launakostnaður hefur
hækkað um 58% á föstu verðlagi
án þess að hluthafarnir geti stoltir
bent á að þjónusta við við-
skiptavini fyrirtækisins hafi batn-
að. Þvert á móti.
Fyrir lok fundarins verða hlut-
hafarnir að ákveða hvort þeir vilji
endurnýja umboð stjórnar og
stjórnarformannsins til næstu
fjögurra ára.
Átta milljarðar á ári
Líkt og hluthafar á aðalfundi
þurfa íbúar Reykjavíkur að taka
ákvörðun þegar þeir
ganga að kjörborði
undir lok maí. Vilja
þeir halda áfram á
sömu braut eða telja
þeir nauðsynlegt að
breyta um stefnu í
málefnum höfuðborg-
arinnar. Borgarbúar
gera sér grein fyrir að
óbreytt stefna felur í
sér að haldið verður
áfram að safna skuld-
um. Sé miðað við síð-
ustu fjögur ár munu
skuldir hækka um liðlega 22 millj-
ónir króna á hverjum einasta degi
– virka daga sem helgidaga – á
næstu fjórum árum. Þetta þýðir
yfir 32 milljarða skuldaaukningu á
kjörtímabilinu eða um átta millj-
arða að meðaltali á ári.
Skuldir borgarsjóðs hafa meira
en tvöfaldast að raunvirði á síð-
ustu átta árum. Í lok síðasta árs
námu skuldirnar tæpum 99 millj-
örðum króna. Bagginn sem íbú-
arnir þurfa að bera hefur því orðið
þyngri með hverju ári. Skuldir á
hverja fjölskyldu nema um 3,8
milljónum króna og hafa hækkað
um tæplega 1,8 milljónir króna á
föstu verðlagi frá ársbyrjun 2010.
Hærri tekjur – lakari þjón-
usta
A-hluti borgarsjóðs hefur notið
þess að tekjur hafa hækkað hressi-
lega á síðustu árum. Á síðasta ári
voru tekjur 41,4 milljörðum króna
hærri á föstu verðlagi en árið
2010, þegar Samfylkingin og Besti
flokkurinn tóku við lyklavöldunum
í Ráðhúsinu. Þetta er nær 56%
raunhækkun. Á hverja fjölskyldu
námu tekjurnar tæplega 3,8 millj-
ónum króna eða 1,3 milljónum
hærri á föstu verðlagi en 2010.
Þetta er 51% hækkun að teknu til-
liti til fólksfjölgunar.
Á síðasta ári voru tekjurnar
tæplega 28 milljörðum hærri en
2014, – árið sem Dagur B. Egg-
ertsson varð formlega borgar-
stjóri.
Mikil hækkun tekna hefði að
öðru óbreyttu átt að gefa borginni
svigrúm til að auka og bæta þjón-
ustu við borgarbúa – gera borgina
fallegri, þrifalegri og vistvænni.
Svigrúmið hefur farið í eitthvað
allt annað. Foreldrar eru úrkula
vonar um að börn þeirra fái leik-
skólapláss, eldri borgarar búa við
lakari þjónustu, úthverfi borgar-
innar eru afskipt og stjórnsýsla
borgarinnar hefur lítinn metnað til
að leiðbeina og greiða úr erindum
íbúa og fyrirtækja. Upplýsingum
er skipulega haldið frá borgar-
búum og borgarstjóri er fyrir
löngu hættur að bera ábyrgð á því
sem fer úrskeiðis. Lífsgæði íbú-
anna sem og annarra sem þurfa að
reka erindi í höfuðborginni hafa
verið skert með því að hefta sam-
göngur.
Stefna skortsins
Í skipulagsmálum hefur stefna
skortsins verið innleidd. Stjórn-
endur borgarinnar hafa sagt sig
frá allri ábyrgð í húsnæðismálum.
Þeir telja það ekki lengur skyldu
sína að tryggja nægjanlegt fram-
boð lóða á sanngjörnu verði fyrir
íbúðir – fjölbýli, einbýli og raðhús.
Lóðaskortur í höfuðborginni hefur
öðru fremur verið drifkraftur mik-
illar hækkunar á kaupverði íbúða
og hækkunar húsaleigu. Skort-
stefnu í lóðamálum hefur meiri-
hluti borgarstjórnar fylgt eftir
með frjórri hugmyndasmíði við að
hækka gjöld og álögur á húsbyggj-
endur.
Kostnaðinn af skortstefnu
Reykjavíkurborgar hefur almenn-
ingur þurft að greiða. Kaupmáttur
launa er lakari en ella og skuldir
heimilanna hærri. Hækkun fast-
eigna- og leiguverðs hefur bein
áhrif á framfærslukostnað – gerir
fólki erfiðara að eignast húsnæði
eða leigja sómasamlega íbúð fyrir
fjölskylduna á sanngjörnu verði.
Aðgerðir ríkissjóðs til að leysa
vandann skila ekki þeim árangri
sem að er stefnt. Húsnæðisstuðn-
ingur í formi vaxta- og leigubóta,
aukið fjárhagslegt svigrúm með
heimild til að nýta skattfrjálsan
séreignarsparnað til að kaupa
fyrstu íbúð, eru étin að stórum
hluta upp á markaði þar sem
heimatilbúinn skortur ræður verð-
myndun.
Framtíðarsýn borgarbúa
Reykvíkingar taka ákvörðun um
framtíðina í kjörklefanum 26. maí
næstkomandi. Þeir vita að álögur –
skattar og gjaldskrár borgarfyrir-
tækja – verða ekki lækkaðar á
komandi árum, með óbreyttri hug-
myndafræði. Lausatökin í rekstri
A-hluta borgarsjóðs á síðustu átta
árum grafa undan allri von um að
borgarbúar fái að njóta hag-
kvæmni stærðarinnar með lægri
álögum og betri þjónustu. En íbú-
ar Reykjavíkur geta treyst því að
undir gunnfánum núverandi meiri-
hluta verður haldið áfram að safna
skuldum, skortstefnan verður fest
betur í sessi og stöðugt stærri
hluti hins daglega lífs fer í að sitja
í biðröðum í holóttu gatnakerfi.
Eftir Óla Björn
Kárason » Sé miðað við síðustu
fjögur ár munu
skuldir hækka um lið-
lega 22 milljónir króna
hvern einasta dag –
virka daga sem helgi-
daga – á næsta kjör-
tímabili.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Skuldir borgarsjóðs: 22 milljónir á dag
17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018
Með ráð undir rifi hverju Eiginlega er það aðeins fyrir fuglinn fljúgandi að komast ferða sinna í miðborginni en samt má víða fara á hlaupahjólinu og að minnsta kosti undan rigningunni.
Eggert