Morgunblaðið - 02.05.2018, Síða 26

Morgunblaðið - 02.05.2018, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018 Egill Örn Pálsson Hjaltalín, húsasmiður og verktaki, á 40 ára af-mæli í dag. Hann er fæddur og uppalinn í Stykkishólmi og ernýfluttur þangað aftur eftir að hafa búið í Noregi um tíma, nánar tiltekið í Førde, sem er höfuðstaður Sogns og Firðafylkis. „Við hjónin fluttum þangað 2011, bæði út af efnhagnum og líka æv- intýraþrá. Fórum þrjú út og komum fimm til baka.“ Egill rekur fyrirtækið E. Hjaltalín í Hólminum og sinnir mest við- haldi. „Ég er að skipta um þök og þakrennur, svo er að aukast airbnb og gistirými í Hólminum og þá hefur maður verið að innrétta svoleið- is. Ég var líka að smíða leikmynd fyrir leikfélagið en ég starfaði við það í Borgarleikhúsinu í fjögur ár áður en ég fór út.“ Egill teiknar líka og málar. „Ég gaf út fyrir tveimur árum póstkort með myndum af Stykkishólmi sem eru til sölu í bænum og gaf líka út jólakort með jólasveinunum. Það er hægt að sjá myndir eftir mig á Fa- cebook-síðunni Egill Hjaltalín art.“ Eiginkona Egils er Ásta Sólveig Hjálmarsdóttir, fulltrúi á Pósthús- inu. Synir þeirra eru Hjálmar Ingi, f. 2006, Reynir Axel, f. 2013, og Bjarki Fannar, f. 2016. Foreldrar Egils eru Páll Hjaltalín, húsasmiður frá Brokey, og Ásta Jónsdóttir. „Ég hugsa að ég fari út að borða í tilefni dagsins, en við hjónin erum að gæla við að halda upp á afmælið þegar það er komið betra veður.“ Fjölskyldan Egill, Ásta, Reynir Axel, Bjarki Fannar og Hjálmar Ingi. Smíðar, teiknar og málar í Hólminum Egill Hjaltalín er fertugur í dag L ísbet Einarsdóttir fæddist 2. maí 1968 í Reykjavík en ólst upp í Innri- Njarðvík. „Ég bjó fyrstu níu mánuðina á Ak- urbrautinni á meðan pabbi kláraði húsið sem hann byggði á Njarðvíkur- brautinni þar sem ég bjó þar til ég flutti að heiman tvítug. Þarna var dásamlegt að alast upp og minning- arnar margar.“ Lísbet var í Grunnskóla Njarðvíkur og lauk þaðan grunnskólaprófi. Árið 1993 lauk hún stúdentsprófi af nátt- úrufræðibraut og tækniteiknaraprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Við tók nokkurra ára hlé áður en námi var áfram haldið í Háskóla Íslands, nú í fé- lagsfræði þar sem hún lauk BA-prófi í félags- og atvinnulífsfræði árið 1999. Í náminu gerði hún rannsóknir ásamt Pálínu Benjamínsdóttur, þær fyrstu hérlendis, um einelti á vinnustöðum og Lísbet Einarsdóttir framkvæmdastjóri – 50 ára Samskipti, stjórnun og góðir stjórnarhættir Hjónin „Þar sem eiginmaðurinn verður einnig fimmtugur á árinu höfum við ákveðið að fagna allt árið,“ segir Lísbet Einarsdóttir. Ásamt yngra settinu Frá vinstri: Dagmar, Lísbet, Andri og Sveinbjörn. Þessir flottu krakkar, Erika A. Sigurðardóttir, Sigurbjörg K. Marteinsdóttir og Kristófer A. Jónsson, héldu tombólu fyrir utan Krambúðina á Akureyri og söfn- uðu 5.758 kr. fyrir Rauða krossinn. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Agility Super 4 Super 8 Mini Comfort RAFSKUTLUR Í MIKLU ÚRVALI Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.