Morgunblaðið - 02.05.2018, Blaðsíða 27
var tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna
forseta Íslands fyrir þær rannsóknir.
Vorið 2015 lauk Lísbet síðan MBA-
prófi frá Háskóla Íslands. Efni lokarit-
gerðar var mælingar á arðsemi í
mannauðsstjórnun.
„Ég byrjaði snemma að passa börn,
rétt 10 ára og náði varla upp fyrir
handfangið á barnavagninum. Fór svo
þegar ég hafði aldur til, rétt fyrir ferm-
ingu, að vinna í frystihúsinu Brynjólfi,
eins og venja var hjá krökkum í hverf-
inu, og vann síðan ýmis störf þar til
námi lauk.“ Árið 1999 hóf Lísbet störf
sem starfsmannastjóri hjá Fiskistofu
en árið 2005 stofnaði hún eigið fyrir-
tæki og tók að sér stjórnunarráðgjöf
og námskeiðahald innan fyrirtækja
auk þess sem hún flutti inn erlenda
fyrirlesara á sviði stjórnunar. Þá starf-
aði hún því samhliða sem ráðgjafi In-
sights Learning and Development, al-
þjóðlegu fyrirtæki sem hefur það að
markmiði sínu að efla fólk, í störfum
sínum sem utan þeirra. Árið 2010 var
Lísbet boðin staða forstöðumanns
flutninga- og fræðslumála hjá SVÞ –
Samtökum verslunar og þjónustu, við
hagsmunagæslu, sem hún gegndi þar
til hún tók við stöðu framkvæmda-
stjóra Starfsafls fræðslusjóðs, í eigu
Samtaka atvinnulífsins og Flóa-
bandalagsins, á vormánuðum 2016.
Lísbet hefur komið að ýmsum
nefndarstörfum og hér eru dæmi um
nokkur: Sat í nýliðanefnd FKA, Fé-
lags kvenna í atvinnulífinu, í stjórn
Inspired by Iceland (Ísland allt árið)
og í stjórn Íbúasamtaka Bústaða og
Háaleitis. „Í dag sit ég í stjórn félags
MBA-HÍ og gegni formennsku í hópi
um góða stjórnarhætti á vegum
Stjórnvísi.
Ég hef verið svo lánsöm að fá að
starfa við það sem mér þykir skemmti-
legast; samskipti, stjórnun og góða
stjórnarhætti. Önnur áhugamál eru
hönnun, listir, útivera og mannrækt.
Best þykir mér að fara í góðan göngu-
túr meðfram fjörunni eða þar sem
svæði er skógi vaxið, þar núllstilli ég
mig. Þá hef ég í gegnum árin fiktað við
myndlist og skrif.“
Fjölskylda
Eiginmaður Lísbetar frá 6.11. 2004
er Sveinbjörn Allansson, f. 8.12. 1968,
innkaupastjóri Globus. Foreldrar
hans: Hjónin Allan Heiðar Svein-
björnsson, húsasmíðameistari á Akra-
nesi, f. 24.4. 1937, og Kristín Jóns-
dóttir, frá Guðnabæ á Akranesi, f.
17.11. 1939, d. 16.2. 2018.
Börn: 1) Daði, f. 13.8. 1988, nemi í
sjúkraþjálfun, maki: Valdís Eva, nemi í
hjúkrunarfræði. Barnabörn: Benedikt
og Alexandra; 2) Allan, 18.11. 1996,
verkamaður á Akranesi, maki: Wiolka
Zabielska, verkakona; 3) Andri, f.
14.11. 2003, nemi; 4) Dagmar, 1.9.
2005, nemi.
Systkini: Albróðir Lísbetar er
Gunnar, f. 1.10. 1964, maki: Ragnheið-
ur Ása Ingiþórsdóttir, f. 30.7. 1966.
Hálfsystkini, samfeðra: 1) Íshildur
Þrá, f. 11.12. 1936, maki: Sigurður Þor-
gilsson, f. 19.2. 1936, d. 29.4. 1982. 2)
Valmundur Óli, f. 20.8. 1938. 3) Einar
Trúmann, f. 9.8. 1940, maki: Sigríður
Knudsen, f. 23.5. 1949. 4) Þröstur
Bergmann, f. 27.3. 1942, maki: Ingv-
eldur Bjarnadóttir, f. 5.5. 1945. 5)
Níels, f. 28.8. 1945, maki: Rakel Guð-
mundsdóttir, f. 26.10. 1949. 6) Agatha,
f. 11.12. 1947, maki: Robert M. Reader.
Foreldrar: Hjónin Einar Söring, f.
20.10. 1913, d. 25.11. 2001, yfirverk-
stjóri, og Svanhvít Guðmundsdóttir, f.
14.9. 1946, lyfjatæknir og ritari.
Lísbet Einarsdóttir
Ingigerður Kristjánsdóttir
húsfreyja í Borgarfirði
Jón Gunnarsson
bóndi og verkamaður
í Borgarfirði
Gunnhildur Jónsdóttir
bóndi í Ásgarði
Guðmundur Pétursson
pípulagningamaður í Ásgarði, Sandgerðisbæ
Svanhvít Guðmundsdóttir
lyfjatæknir og ritari í Innri-Njarðvík
Pétur Magnússon
sjómaður og bílstjóri
á Hellissandi
Ingveldur Sigurðardóttir
húsfreyja og verkakona á Hellissandi
Jónína G. Einarsdóttir
húsfreyja á Álftanesi
Einar Einarsson
bóndi á Álftanesi
Valgerður Einarsdóttir
húsfreyja og verkakona í Keflavík
Þórarinn Ole Söring
sjómaður og verkamaður í Keflavík
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfreyja í Mjóafirði
Ole Larsen Strome
sjómaður í Mjóafirði
Úr frændgarði Lísbetar Einarsdóttur
Einar Þ. Söring
bílstjóri og yfirverkstjóri í Innri-Njarðvík
Framkvæmdastjórinn Lísbet.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018
Þorsteinn Eyjólfsson, lögmaður og
hirðstjóri, var uppi á 14. öld. Hann
var frá Urðum í Svarfaðardal en átti
fleiri höfuðból og er talinn sonur
Eyjólfs Arnfinnssonar riddara á
Urðum og k.h., Ólafar Björnsdóttur.
Þorsteins er fyrst getið árið 1356,
þegar hann sigldi til Noregs ásamt
Jóni skráveifu og Árna Þórðarsyni
og fengu þeir, ásamt Andrési Gísla-
syni, sem siglt hafði út árinu áður,
sameiginlega hirðstjórn yfir landinu
til þriggja ára. Mun Vestfirðinga-
fjórðungur hafa komið í hlut Þor-
steins.
Árið 1362 sigldi Þorsteinn til Nor-
egs ásamt Þorsteini Hallssyni presti
á Hrafnagili. Voru þeir handteknir
þar og hnepptir í varðhald. Magnús
Eiríksson smek konungur lét leysa
Þorstein úr haldi 1863 en vinátta er
sögð hafa verið með þeim.
Árið 1364 kom Þorsteinn aftur til
landsins ásamt Ólafi Péturssyni;
Þorsteinn var þá lögmaður og þeir
virðast hafa gegnt hirðstjóraemb-
ættinu einnig þar til Andrés Gísla-
son og Ormur Snorrason komu til
landsins 1366. Árið 1367 sigldi Þor-
steinn aftur og fór þá að finna Magn-
ús konung, sem sat í varðhaldi í Sví-
þjóð. Á heimleiðinni var hann
hertekinn, 2. maí 1368, af lýbskum
kaupmönnum og fluttur til Lübeck,
þar sem hann sat í fangelsi. Heim
kom hann 1369 og hafði þá lögsögn
yfir öllu landinu og aftur 1372-1380.
Hann virðist hafa tekið við hirð-
stjórn af Andrési Sveinssyni þegar
hann sigldi 1387 og haft hana þar til
Eiríkur Guðmundsson kom út með
hirðstjórn sama ár. Þegar Eiríkur
var drepinn 1388 tók Þorsteinn enn
við embættinu og gegndi því þar til
Vigfús Ívarsson kom til landsins
1390. Hann varð þá aftur lögmaður
og gegndi því embætti líklega til
dauðadags.
Erfðaskrá Þorsteins er til, gerð
þriðja í hvítasunnu 1386 á Hólum í
Hjaltadal og kemur þar fram að
hann var stórauðugur. Kona hans
var Arnþrúður, dóttir Magnúsar
Brandssonar á Svalbarði. Börn Þor-
steins sem eru þekkt voru Ingibjörg
kona Hrafns Bótólfssonar lögmanns,
og Arnfinnur, riddari og hirðstjóri á
Urðum.
Þorsteinn lést eftir 1402.
Merkir Íslendingar
Þorsteinn
Eyjólfsson
Urðir í Svarfaðardal Þorsteinn
var þaðan og bjó líklega þar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
100 ára
Þórður Árni Björgúlfsson
90 ára
Guðrún M. Friðbjörnsdóttir
Sigrún A. Höskuldsdóttir
85 ára
Kristjana Aðalsteinsdóttir
Vilborg Magnúsdóttir
Þóra Stefánsdóttir
80 ára
Einar Kjartansson
Elsa L. Hermannsdóttir
Haraldur Thorlacius
Sveinbjörn Matthíasson
75 ára
Auður Guðjónsdóttir
Björn Jóhannsson
Cecil Haraldsson
Guðrún Þ. Jóhannsdóttir
Jón Már Smith
Reynir Svanholt Sveinsson
Sigurður Kr. Jóhannsson
Steinunn Kristín Norberg
70 ára
Aalo Jaerving
Erna Jónsdóttir
Guðbjörg Helga Bjarnad.
Hannes Benediktsson
Kristín Bjarney Sveinsdóttir
Ólafur Guðgeirsson
Steinn Árni Sigurðsson
60 ára
Ólína Einarsdóttir
Sigurbjörg J. Sverrisdóttir
Sigurjóna Þórhallsdóttir
Sigurlaug Jónína Hauksd.
Trausti Gunnsteinsson
Una Eyrún Ragnarsdóttir
50 ára
Aðalheiður L. Guðmundsd.
Brynja Grétarsdóttir
Gerður Björnsdóttir
Guðbjarni Guðmundsson
Guðbjörg Hulda Stefánsd.
Guðbrandur Baldursson
Guðni Hólm Stefánsson
Kristín Ragna Gunnarsd.
Lísbet Einarsdóttir
Sigríður Björk Arnardóttir
40 ára
Áslaug Pálsdóttir
Egill Örn P. Hjaltalín
Erla Pálsdóttir
Friðrik Lindbergsson
Guðjón Ingi Sigurðsson
Guðmundur Þór Bjarnason
Guðrún Árný Guðmundsd.
Gunnar Már B. Sigurðsson
Hjörtur J. Guðmundsson
Jón Þór Hauksson
María Óladóttir
Sigfús E. Aðalsteinsson
Sveinn Logi Sölvason
Þorsteinn Pálsson
30 ára
Aðalbjörg Marta Agnarsd.
Arna Silja Jóhannsdóttir
Arnór Ásgeirsson
Auður Ómarsdóttir
Ásbjörn Friðriksson
Birkir Brynjarsson
Brynjar Orri Bjarnason
Elín Kara Karlsdóttir
Harpa Hermannsdóttir
Herborg Sörensen
Hildur Grétarsdóttir
Hjálmdís Ólöf Helenudóttir
Ilze Vaza-Frolova
Ingvi Guðmundsson
Jóhann Ingi Ævarsson
Stefán Þórarinsson
Svala Magnúsdóttir
Sævar Snorrason
Vera Dögg Höskuldsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Erla er Reykvík-
ingur, viðskiptafræðingur
að mennt og er flugfreyja
hjá WOW air.
Systkini: Tvíburi Erlu er
Þorsteinn, f. 1978, og tví-
burarnir Ása Lind og Lilja
Rós, f. 1986.
Foreldrar: Páll Ásgeir
Pálsson, f. 1955, raf-
magnstæknifr. hjá ÍAV, og
Sigríður Halldóra Þor-
steinsdóttir, f. 1958, hár-
greiðslukona og vinnur
hjá ISON heildverslun.
Erla Pálsdóttir
40 ára Þorsteinn er
Reykvíkingur og við-
skiptafr. á rekstrarsviði
EFLU – verkfræðistofu.
Maki: Þórhildur Ósk
Jónsdóttir, f. 1982, flug-
freyja hjá WOW og
snyrtifr.
Börn: Ragnheiður Harpa,
f. 2005, Hildur Rakel, f.
2010, og Hekla Sigríður, f.
2016.
Foreldrar: Páll Á. Páls-
son, f. 1955, og Sigríður
H. Þorsteinsdóttir, f. 1958.
Þorsteinn
Pálsson
30 ára Jóhann er Skaga-
maður og hefur búið á
Akranesi alla sína ævi.
Hann er rafvirki hjá Skag-
anum 3X.
Systkini: Sara Lísa, f.
1990, og Sindri Snær, f.
2005.
Foreldrar: Ævar Guð-
jónsson, f. 1962, vélamað-
ur hjá Bjarmari ehf., og
Heiðveig Erla Brynjólfs-
dóttir, f. 1963, fiskvinnslu-
kona hjá Norðanfiski, bús.
á Akranesi.
Jóhann Ingi
Ævarsson