Morgunblaðið - 02.05.2018, Page 33

Morgunblaðið - 02.05.2018, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018 Marvel-kvikmyndaheim-urinn verður að teljasteitt af merkari afrek-um kvikmyndagerðar síðustu árin, en í dag, 2. maí, eru nákvæmlega tíu ár liðin frá því að Iron-man, fyrsta myndin í bálknum, kom út í Bandaríkjunum. Síðan hef- ur hver ofurhetjumyndin komið út á fætur annarri, sem allar gerast í sama söguheimi og tengjast þannig séð innbyrðis, mismikið þó. Og nú, tíu árum og 18 misspenn- andi bíómyndum síðar, er komið að nokkurs konar lokauppgjöri við Thanos (Josh Brolin), föður Ga- morru úr Guardians of the Galaxy- myndunum og einnar öflugustu veru alheimsins, en nokkuð hefur verið ýjað að því í síðustu myndum að slíkur lokabardagi væri yfirvof- andi. Thanos þessi hyggur að sjálf- sögðu á heimsyfirráð, sem felast í því að safna saman sex kraftmiklum kristölum, eilífðarsteinunum svo- nefndu, á sína hönd, en hver og einn þeirra gefur honum vald yfir ákveðnum þætti efnisheimsins. Það er ljóst strax frá byrjun myndarinnar að hér verður ekkert dregið undan og ekkert gefið eftir til þess að búa til einhverja svaða- legustu hasarmynd allra tíma. Niðurstaðan er tveggja og hálfs tíma rússíbanareið, þar sem nánast allar þær hetjur sem kynntar hafa verið í myndunum 18 á undan leiða saman hesta sína til þess að hindra Thanos frá því að ná takmarki sínu. En verður jafnvel það að kalla sam- an „landsliðsúrval“ allra ofurhetj- anna í Marvel-heiminum nóg til að stöðva Thanos? Rétt er að taka fram, að maður þarf ekki að hafa horft á allar myndirnar 18 sem á undan eru komnar til þess að njóta The Aven- gers: Infinity War. Engu að síður er líklegt að sá sem hafi gert það muni njóta ýmissa andartaka í myndinni umfram þann sem kemur nýr að söguheiminum, og líklega er betra ef viðkomandi hefur séð allavega eina eða tvær af myndunum áður en farið er á þessa. Það þyrfti líklega að fá heila opnu í blaðinu til þess að fara vandlega ofan í leikaravalið, svo margir koma við sögu. Fyrsta skal þó nefna „Hefnendurna“ sjálfa sem myndin heitir eftir. Robert Downey Jr. virð- ist alltaf njóta sín jafnmikið sem járnmaðurinn Tony Stark og þeir Chris Hemsworth og Mark Ruffalo vita nákvæmlega hvers krafist er af þeim í hlutverkum sínum sem þrumuguðinn Þór og græni risinn Hulk. Benedict Cumberbatch leikur galdrakarlinn Stephen Strange listi- lega vel, og samspil hans og Tony Stark, eða öllu heldur sameiginlegt óþol þeirra hvors fyrir öðrum, léttir myndina umtalsvert mitt í öllum hasarnum. Þá ber að nefna að Chris Pratt og Zoë Saldana standa vel fyrir sínu sem Starlord og Gamorra úr Gu- ardians of the Galaxy, auk þess sem Chadwick Boseman kemur ferskur úr titilhlutverki sínu í Black Pant- her, sem sýnd var fyrr á árinu. Er þá margra enn ógetið í aðal- hlutverkum, sem vissulega ættu skilið að fá hrós. Að auki bregður fyrir ýmsum karakterum hér og þar í örskots- stund. Stan Lee, snillingurinn á bak við flestar af teiknimyndasögunum sem Marvel-myndirnar byggjast á, fær að sjálfsögðu sínar 15 sekúndur líkt og venjulega, og aðdáendur gamanþáttanna Arrested Develop- ment ættu að hafa augun vandlega opin í einu atriðinu. Sá sem virkilega á skilið hrós fyr- ir leik sinn í þessari mynd er hins vegar Josh Brolin sem Thanos, ill- mennið sjálft. Brolin tekst, þrátt fyrir að vera falinn á bak við tölvu- teiknaðan risa, að gæða Thanos til- finningum og lífi, sem lyftir honum á hærra plan en ella hefði verið. Sú staðreynd að þetta arma illmenni finnur til og þjáist hið innra með sér líkt og við hin gerir hann einhvern veginn raunverulegri, heldur en ef Thanos hefði bara verið þessi dæmi- gerði „vondikall“, jafnvel þó að oft sé hægt að gera góða hluti með slík hlutverk. Það sem kannski helst dregur myndina niður er að það er aðeins of mikið um að vera í einu, þar sem fylgjast þarf með nokkrum mismun- andi söguþráðum renna saman í eitt á sama tíma og Thanos færist sífellt nær takmarki sínu. Síðasti klukku- tíminn eða svo fer til að mynda í langan lokabardaga á þrennum víg- stöðvum og þarf áhorfandinn jafn- vel að hafa sig allan við til þess að vera með á nótunum. Það er þó smávægilegur ágalli þegar allt er tekið saman og loka- atriði myndarinnar, sem er með því áhrifaríkara sem undirritaður hefur séð í kvikmyndahúsi, fer langleiðina með að bæta algjörlega upp fyrir hann. Þeir Russo-bræður, sem fara með leikstjórnina, eiga sömuleiðis hrós skilið fyrir að ná að halda utan um mynd þar sem svo mikið er í gangi í einu, en auðvelt hefði verið fyrir þá að missa stjórnina al- gjörlega úr höndum sér. The Avengers: Infinity War er því sannkölluð rússíbanareið þar sem allt er skrúfað upp í topp sem hægt er að skrúfa upp í topp. Óhætt er að mæla með henni við alla sem hafa fengið einhverja nasasjón af Marvel-kvikmyndaheiminum á und- anförnum áratug, sem og þá sem vilja gleyma sér eina kvöldstund yf- ir einni mestu „poppkornsbíómynd“ seinni tíma. Þessi, svo vitnað sé í gítarleikara Spinal Tap, fer alla leið- ina upp í ellefu. Þessi fer upp í ellefu Varmenni Josh Brolin fer á kostum að mati gagnrýnanda Morgunblaðsins í hlutverki sínu sem illmennið Thanos, valdamesta lífvera alheimsins, í The Avengers: Infinity War. Rýnirinn segir myndina sannkallaða rússíbanareið. Sambíóin og Smárabíó The Avengers: Infinity War bbbbm Leikstjórn: Anthony Russo og Joe Russo. Handrit: Christopher Markus og Stephen McFeely, byggt á sögu Stan Lee og Jack Kirby. Aðalhlutverk: Robert Downey Jr., Chris Hemsworth, Mark Ruffalo, Chris Evans, Scarlett Johans- son, Benedict Cumberbatch, Don Cheadle, Tom Holland, Chadwick Bose- man, Paul Bettany, Elizabeth Olsen, Anthony Mackie, Sebastian Stan, Danai Gurira, Letitia Wright, Dave Bautista, Zoë Saldana, Josh Brolin og Chris Pratt. Bandaríkin 2018, 149 mínútur. STEFÁN GUNNAR SVEINSSON KVIKMYNDIR Ofurhetjumyndin Avengers: In- finity War, sem rýnt er í hér til hliðar, sló heimsmet hvað miða- sölutekjur varðar yfir frum- sýningarhelgi, þ.e. nýliðna helgi. Ofurhetjurnar skiluðu í miða- sölukassana um 630 milljónum dollara, jafnvirði um 63,8 millj- arða króna. Fyrra met átti has- armyndin The Fate of the Furious en miðasölutekjur yfir frumsýn- ingarhelgi af henni voru um 542 milljónir dollara í fyrra. Þessi magnaða miðasala á Avengers þykir líka merkileg að því leyti að sýningar eru ekki hafnar á myndinni í Kína. Þá þyk- ir líklegt að myndin hafi líka sleg- ið metið í miðasölu yfir frumsýningarhelgi í Norður- Ameríku og farið fram úr Star Wars: The Force Awakens sem skilaði á sínum tíma 248 millj- ónum dollara í miðasölu. Líklegt þykir að Avengers: Infinity War hafi náð 250 milljónum dollara eða rúmlega það en nákvæmar sölutöl- ur voru ekki komnar þegar frétt þessa efnis birtist á vef BBC á mánudag. Framleiðslukostnaður Avengers: Infinity War var 300-400 milljónir dollara, skv. frétt BBC, og hagn- aðurinn af henni því nú þegar orð- inn gríðarlegur. Á frumsýningu Scarlett Johansson á frumsýningu Avengers: Infinity War en hún fer með hlutverk hetjunnar Black Widow. Heimsmet slegið í miðasölutekjum AFP Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.