Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 1
ÁNÆGÐURVIÐSKIPTAVINUR INNBLÁSTUR Rolls-Royce jeppi loksins að koma á göturnar. 4 Unnið í samvinnu við Sjóvá hefur lagt mikla áherslu á að jafna stöðu karla og kvenna í hvívetna og bætt þannig starfsandann. 7 VIÐSKIPTA 4 Chandrika Gunnarsson í Austur-Indíafjelaginu segir að það að ná því markmiði að gera sérhvern viðskipta- vin ánægðan sé innblástur á hverjum degi. ÁHERLSLA Á JAFNA STÖÐU FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Titringur vegna verðmats Á síðustu vikum hafa starfsmenn á vegum fjármálafyrirtækisins Arctica Finance kynnt afstöðu sína til verð- lagningar á bréfum Icelandair Group, sem skráð eru á aðalmarkaði í Kaup- höll Íslands. Í þessari kynningu, sem ViðskiptaMogginn hefur séð, er bent á að núverandi verðlagning bréfanna sé verulega há í samanburði við verð- lagningu á bréfum annarra skráðra flugfélaga sem keppa á sama eða svipuðum markaði og Icelandair. Í lok dags í gær voru bréf Icelandair Group skráð á genginu 12,57 í Kaup- höllinni. Frá upphafi maímánaðar hafa þau lækkað um ríflega 12%. Þá hafa bréf fyrirtækisins lækkað gríð- arlega á síðustu tveimur árum. Þann- ig náðu bréfin hátindi sínum í lok apr- ílmánaðar 2016 og stóðu þá í 38,4. Rýrnunin nemur því 67,3% á tæpum 25 mánuðum og hefur félagið glatað nærri 130 milljörðum af markaðsvirði sínu. Stendur það nú í tæpum 63 milljörðum króna. Í máli Arctica kemur fram að blik- ur séu á lofti á markaði, m.a. vegna hækkandi eldsneytisverðs en einnig mikils launakostnaðar. Er bent á að hlutfall launakostnaðar af tekjum Icelandair séu mun hærra en hjá flestum samkeppnisaðilum, þ.m.t. Wow air, SAS og Norwegian. Byggir fyrirtækið afstöðu sína til verðlagn- ingarinnar á þeim gögnum sem að- gengileg eru opinberlega. Í kynningu er einnig bent á verðmöt greining- ardeilda sem ganga í berhögg við af- stöðu fyrirtækisins. Á það m.a. við um nýlegt verðmat Arion banka þar sem gert er ráð fyrir að EBITDA fyr- irtækisins muni nær tvöfaldast á komandi árum og að staða fyrirtæk- isins muni styrkjast. Hlutdeildin eykst verulega Í kjölfar þess að starfsmenn Arctica kynntu vangaveltur sínar um verðlagningu á bréfum Icelandair hefur hlutdeild Arctica í viðskiptum með bréf Icelandair aukist verulega. Samkvæmt upplýsingum eftir til- boðsbókum, og aðgengilegar eru í gögnum Kauphallarinnar, sést að í maímánuði er hlutdeild Arctica 22,3%. Í aprílmánuði nam hlutdeild- ina 13,26%, marsmánuði 10% og í febrúar 5,92%. Meðalhlutdeild Arc- tica á markaðnum með bréf Iceland- air það sem af er ári nemur 9,69%. Aðilar á markaði, sem Viðskipta- Mogginn hefur rætt við, einkum nú- verandi hluthafar í Icelandair, hafa lýst gremju í garð Arctica vegna fyrr- nefndrar kynningar. Hafa þeir haldið því fram að fyrirtækið sé að tala bréf félagsins niður. Þeim fullyrðingum höfnuðu forsvarsmenn Arctica í sam- tali við ViðskiptaMoggann þegar mál- ið var borið undir þá. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Titrings hefur gætt á verð- bréfamarkaði í maímánuði í kjölfar þess að fjármála- fyrirtækið Arctica Finance kynnti afstöðu sína til stöðu Icelandair fyrir hópi fjár- festa. Morgunblaðið/Júlíus Sigurjónsson Í nýju verðmati Arion banka er dregin upp nokkuð önnur mynd af stöðu Ice- landair en sú sem starfsmenn Arctica hafa gert á fundum með fjárfestum. Úrvalsvísitalan EUR/ISK 2.000 1.900 1.800 1.700 1.600 1.500 17.11.‘17 22.11.‘17 16.5.‘18 16.5.‘18 1.700,28 1.748,05 130 125 120 115 110 122,75 123,05 Fjallaböðin, 300 fermetra baðlón og 40 herbergja hótel, mun byrja að rísa á næsta ári í Þjórsárdal. Fjárhagsáætlanir gera ráð fyrir kostnaði upp á fjóra milljarða króna. Að auki verður byggð sérstök þjónustu- miðstöð skammt frá Fjallaböðunum, en þaðan verður fólk flutt á staðinn í um- hverfisvænum rafmagnsbílum. Þá verða byggðar íbúðir og lageraðstaða í Árnesi, sem er í um 20 km fjarlægð. Magnús Orri Schram, forsvars- maður verkefnisins og einn frumkvöðla, segir að horft sé til þess að fram- kvæmdin öll frá a - ö verði umhverf- isvænni en fólk hafi áður séð hér á landi. Íslenskar heilsulindir, sem eru að 60% hlut í eigu Bláa lónsins, munu eiga 50,1% í verkefninu á móti frumkvöðl- unum, sem eru auk Magnúsar þau Ell- ert K. Schram og Ragnheið- ur B. Sigurðardóttur. Milljarða verkefni í Þjórsárdal Morgunblaðið/Valli Fjallaböðin verða umhverfisvænni en áður hefur sést hér á landi. Nýr baðstaður og hótel í jafnri eigu þriggja frum- kvöðla og dótturfélags Bláa lónsins, verður tilbú- inn árið 2022 í Þjórsárdal. 8 Með því að rýna í tölvufyrir- tækið Apple má átta sig á þeim fimm atriðum sem vega þyngst í markaðs- þróun samtímans. Apple er mæli- stika á markaði 10 Samfélagsvefurinn reynir að kveikja neistann í ört kulnandi ástarsambandi við notendur, með nýrri stefnu- mótaþjónustu. Lex: Neistaflug hjá Facebook 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.