Morgunblaðið - 17.05.2018, Side 4

Morgunblaðið - 17.05.2018, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018FRÉTTIR Hjónin Gunnar og Chandrika Gunnarsson lyftu veitingastaða- menningu Íslands á annað plan fyrir 24 árum þegar þau opnuðu Austur-Indía hraðlestina, og síðar heimsendingarstaðinn Hraðlest- ina. Gunnar er núna fallinn frá en Chandrika heldur áfram að stýra þessum blómlega rekstri af festu og metnaði. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Hækkun kostnaðar og aðstæður á vinnumarkaði. Við höfum alltaf lagt ríka áherslu á faglega þjón- ustu og gæða hráefni, hvort sem um ræðir íslenskt grænmeti og kjöt eða krydd, sem við flytjum sérstaklega inn frá Indlandi. Okk- ar áskorun er að halda áfram að geta boðið viðskiptavinum okkar fyrsta flokks mat og þjónustu en halda kostnaði í hófi. Starfsfólk okkar hefur að jafnaði langan starfsaldur miðað við mörg veit- ingahús, en við höfum fundið fyrir skorti á vinnuafli sem uppfyllir okkar kröfur. Hver var síðasti fyrirlesturinn sem þú sóttir? Ég fékk nýlega að kynnast Fé- lagi kvenna í atvinnulífinu (FKA) á fundi samtakanna og varð heill- uð af starfseminni sem þar fer fram. Ég naut leiðsagnar eigin- manns míns þegar við stofnuðum Austur-Indíafjelagið, en það var oft og tíðum erfitt að reka fyrir- tæki í nýju landi, sérstaklega sem kona. Því fagna ég þeirra fram- taki og vona að ég geti miðlað minni reynslu til ungra frum- kvöðla á vettvangi FKA í framtíð- inni. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Veitingageirinn snýst um fólk og til að viðhalda þekkingu þarf að halda góðu sambandi við starfs- fólk og viðskiptavini. Mér hefur alltaf reynst best að taka virkan þátt í rekstrinum, á öllum sviðum. Hugsarðu vel um líkamann? Ég nýt þess að vinna við ind- verska matseld og með indversk krydd, sem hefur góð áhrif á heilsuna. Margar af uppskriftum okkar byggjast á gömlu Ayurveda uppskriftum ömmu minnar á Ind- landi og ég get ekki ímyndað mér neitt betra fyrir líkama og sál en hennar mat. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Ekkert jafnast á við ánægðan viðskiptavin. Að ná því markmiði að gera sérhvern viðskiptavin ánægðan er öflugur hvati og inn- blástur fyrir hvern dag í starfi. SVIPMYND Chandrika Gunnarsson eigandi Austur-Indíafjelagsins Hvatinn fólginn í að gleðja viðskiptavinina Morgunblaðið/Eggert „Við höfum fundið fyrir skorti á vinnuafli sem uppfyllir okkar kröfur,“ segir Chandrika um rekstrarskilyrðin í dag. ÖKUTÆKIÐ Loksins er búið að svipta hulunni af fyrsta jeppanum frá Rolls-Royce. Eiga allra fyrstu eintökin af Cullinan að koma á göturnar árið 2019 og er enginn vafi á því að hvorki má finna fínni né dýrari jeppa á markaðinum. Útlitið, jafnt að innan sem utan, ber keim af Phantom- glæsikerrunni, sem þjóðhöfð- ingjar og milljarðamæringar nota til að komast á milli staða, og er ekki laust við að kassalaga línurnar komi vel út á jeppa. Undir húddinu er sams konar V12 vél og í Phantom og beinir hún um 560 hestöflum til hjólanna. Þeir sem vilja frekar sitja í aftur- sætinu og láta bílstjórann eða lífvörð- inn sjá um aksturinn geta pantað Cullinan með n.k. hægindastólum aft- urí og kæli sem rúmar nokkrar vín- flöskur og glös. Ef fólk setur það fyrir sig að þurfa að príla upp í þennan stóra og stæðilega bíl, þá er hægt að ýta á takka í handfangi hurðanna sem lækkar fjöðrunina svipað og pöpull- inn á að venjast þegar hann tekur strætó. Grunnútgáfa Cullinan ætti að kosta um 74 milljónir króna þegar bú- ið er að bæta við íslenskum vöru- gjöldum og virðisaukaskatti. ai@mbl.is Konungur jeppanna er mættur á svæðið SNYRTIVARAN Blaðamenn ViðskiptaMoggans eru miklir snyrtipinnar og kunna vel að meta góð ilmvötn. Þeir halda mikið upp á agalegu fínu ilmina sem franska tískuhúsið Louis Vuitton lét ilmfræðinginn Jacques Cavallier Belletrud útbúa, en það tók hann fjögur ár af rannsóknum og ferðalög- um um allan heim að fullkomna lín- una sem fyrst kom á markað árið 2016. Verst að fyrsti skammturinn sem Belletrud blandaði var ætlaður kon- um, þó sumir þeirra fari reyndar karlmönnum alveg ágætlega. En núna er alltént væntanleg lína gagn- gert fyrir herra, og er hún innblásin af þeirri nautn að ferðast og flakka. Ilmirnir hafa fengið nöfn við hæfi, s.s. Sur La Route og Nouveau Monde en síðarnefndi ilmurinn bygg- ist á ferðalögum ítalska landkönn- uðarins og aðalsmannsins Pierre Sa- vorgnan de Brazza, sem var dyggur viðskiptavinur Louis Vuitton, en borgin Brazzaville í Kongó er nefnd í höfuðið á honum. ai@mbl.is Útpældir herrailmir frá Louis Vuitton NÁM: BA próf í hagfræði frá Háskólanum í Bangalore 1985; BA og MA í alþjóðafræðum frá Háskólanum í Suður-Karólínu 1989 og 1991. STÖRF: Ég starfaði sem uppvaskari, þjónn og loks rekstr- arstjóri á veitingahúsinu Latif’s á námsárum í Suður-Karólínu. Árið 1994 stofnaði ég veitingahúsið Austur-Indíafjelagið ásamt eiginmanni mínum, Gunnari Gunnarssyni og í framhaldinu, Hraðlestina, árið 2003. ÁHUGAMÁL: Matur, ferðalög og allar samverustundir með fjöl- skyldu minni og vinum. FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég á tvö börn með eiginmanni mínum, Gunnari Gunnarssyni, sem féll frá fyrir ári síðan. HIN HLIÐIN Snögg og góð þjónusta Stafrænt prentaðir límmiðar á rúllum Vantar þig lítið upplag? Stafræn límmiðaprentun hentar vel fyrir minni upplög. Pappír, hvítt plast, glært plast og fl. þú velur! Sími 540 1818 | Skemmuvegi 4 | Kópavogi midaprent@midaprent.is | midaprent.is Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.