Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 7ATVINNULÍFIÐ
Utanborðsmótorar
Frá 1940
www.velasalan.is
Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík
Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar
Fyrirliggjandi á lager,
skrúfur á flestar gerðir
utanborðsmótora
Verkstæði Vélasölunnar
hefur á að skipa sérhæfum
starfsmönnum til viðgerða
og viðhalds á Mercruiser
bátavélum og Mercury
utanborðsmótorum.
Bátar á sjó og vötn
Ný sending af TERHI bátum
TERHI 475 BR TERHI 475
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Sjóvá er einn samstarfsaðila í hreyfi-
aflsverkefni Félags kvenna í
atvinnurekstri, Jafnvægisvoginni,
ásamt velferðarráðuneytinu,
Deloitte og Morgunblaðinu. Her-
mann Björnsson forstjóri félagsins
segir aðspurður að FKA hafi leitað
til Sjóvár þar sem félagið hafi um þó-
nokkra hríð lagt mikla áherslu á
jafna stöðu karla og kvenna í hví-
vetna. „Hugsunin með þátttöku okk-
ar var sú að við gætum deilt þeirri
reynslu sem við búum yfir í þessum
málum,“ segir Hermann í samtali við
ViðskiptaMoggann.
Jafnlaunavottun árið 2014
Hann segir að Sjóvá hafi til dæmis
farið í jafnlaunavottun árið 2014. „Þá
þurfti ekki að grípa til neinna ráð-
stafana. Launamunur á milli kynja
reyndist nánast enginn, og því má
segja að aðdragandinn að þessari
góðu stöðu innan fyrirtækisins sé
enn lengri.“
Hann segir að ekki sé nóg að
greiða jöfn laun fyrir sambærileg
störf, einnig þurfi kynjaskipting á
öllum sviðum að vera jöfn. „Því höf-
um við náð allsstaðar um fyrirtækið.
Vissulega er ég karlkyns forstjóri,
en framkvæmdastjórnin auk mín er
skipuð tveimur konum og einum
karli.“
Hann segir að ein af áskorununum
sem Sjóvá hafi staðið frammi fyrir
sem þjónustufyrirtæki hafi verið að
framlínufólkið, eins og Hermann
kallar það, fólkið sem tekur á móti
viðskiptavinunum, hafi verið að
meirihluta til konur. „Þar höfum við
náð að jafna stöðuna líka, og höfum
markvisst fengið til okkar unga og
flotta menn til jafnræðis við þær
flottu konur sem þar eru.“
Betri starfsandi
Hermann segir að með auknu
jafnræði verði starfsandinn innan
fyrirtækisins allur annar. „Að jafna
stöðuna er engin kvöð eða skylda
fyrir okkur, heldur finnum við á eig-
in skinni hvernig andinn í fyrirtæk-
inu verður miklu öflugri. Gallup
mælir árlega starfsandann hjá okk-
ur, og þar erum við meðal þeirra 10
fyrirtækja á landinu sem ná bestri
einkunn.“
Gott er að sögn Hermanns að geta
vísað til formlegra úttekta í þessum
efnum, þannig að ekki sé einungis
byggt á huglægu mati stjórnenda.
Betra sé að hafa hlutlægt mat sem
hægt sé að vísa til, enda auðmæl-
anlegt. „Starfsandinn er gríðarlega
mikilvægur því hann smitar út í
þjónustuna.“
Hermann vísar til annarrar könn-
unar sem Sjóvá lét gera árið 2015.
Þá var kallað til sálfræðifyrirtæki
sem bjó til sálfélagslegt áhættumat.
„Þar er mælt hvort að fólk hafi orðið
fyrir einelti á vinnustað eða kynferð-
islegri áreitni til dæmis. Einnig eru
metnir ferlar og viðbragðsáætlanir
við slíkum vandamálum. Þá er einnig
farið yfir hvert jafnvægið er á milli
vinnu og einkalífs. Við komum vel út
úr þessu mati, og nú erum við aftur
að láta meta þetta. Í kjölfar #metoo
byltingarinnar hefur orðið mikil um-
ræða og vitundarvakning, og því
verður spennandi að sjá útkomuna
núna þremur árum síðar.“
Að mati Hermanns hefur gengið
alltof hægt að jafna hlut kvenna og
karla í atvinnulífinu. Eiginlega fá-
ránlega hægt, eins og Hermann
orðar það. „Það er furðulegt að hlut-
irnir séu ekki í betra horfi, jafnvel þó
að konur séu til dæmis í meirihluta
allra sem útskrifast úr háskóla.“
En hvað er til ráða að mati Her-
manns. Afhverju er staðan ekki
betri?
„Þetta er svona af því að við
ákváðum að hafa þetta svona,“ segir
Hermann og bætir við: „Þeir sem
eru í stöðu til að taka ákvarðanir í
starfsmannamálum, þeir ráða þessu.
Það er ekkert flóknara en það. Það
er nóg framboð af fólki af báðum
kynjum.
Margir voru hræddir um það árið
2014 þegar við fórum í jafnlaunavott-
unina að þetta yrði gríðarlegur
kostnaðarauki fyrir fyrirtækið, að
jafna laun kynjanna, en því fór fjarri.
Þetta eru engin geimvísindi.“
Aðspurður segir Hermann að önn-
ur fyrirtæki hafi leitað til Sjóvár eft-
ir ráðgjöf á sviði jafnréttismála eftir
að að staða félagsins í þessum mál-
um fór að kvisast út. „Maður var
ekkert að flíka þessu, og leit á þetta
sem sjálfsagðan hlut. En við viljum
láta gott af okkur leiða og erum
stundum kölluð til til að halda fyrir-
lestra, og veita ráðgjöf.“
Hann segist vænta mikils af starf-
inu að Jafnvægisvoginni. „Aðalmálið
er fyrir fyrirtæki að líta á þetta sem
sjálfsagðan hlut í rekstrinum. Þetta
er gott fyrir fyrirtækið í heild sinni.“
Er undir stjórnendunum komið
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Hermann Björnsson
forstjóri Sjóvár segir að
það séu engin geimvísindi
að jafna hlut kvenna og
karla innan fyrirtækja. Þeir
sem fari með starfsmanna-
málin hafi það í hendi sér
að jafna stöðuna.
Ljósmynd/Sigurjón Andrésson
Hermann Björnsson forstjóri Sjóvár og Rakel Sveinsdóttir framkvæmdastjóri FKA handsala samkomulagið um Jafnvægisvogina.