Morgunblaðið - 17.05.2018, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 17.05.2018, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 13SJÓNARHÓLL Garðsláttuvélar sem slá á þínum gönguhraða Það er leikur einn að slá með nýju garðsláttuvélunum frá CubCadet. Þær eru með MySpeed hraðastilli sem aðlagar keyrsluhraða vélanna að þínum gönguhraða. Gerir sláttinn auðveldari ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is BÓKIN Hver hefur ekki staðið sjálfan sig að því að t.d. horfa á einhvern bjálfa bulla út í eitt í sjónvarpi, eða sjá fólk opinbera fávisku sína á Facebook, og hugsað sem svo: Að hugsa sér, að þetta fólk skuli fá að kjósa! Að mati Dambisu Moyo gæti verið æskilegt ef aðeins út- valinn hópur hefði atkvæðisrétt því þannig taka stjórn- málin skýrari stefnu og byrja að snúast frekar um lang- tímamarkmið en lýð- skrum líðandi stund- ar. Moyo er höfundur bókarinnar Edge of Chaos: Why Democracy is Failing to Deliver Economic Growth – and How to Fix it. Hún starfaði áður hjá Goldman Sachs og vakti athygli á sínum tíma fyrir metsölubókina Dead Aid þar sem hún þótti færa sannfærandi rök fyrir gagnsleysi þróunaraðstoðar. Moyo útlistar hvernig hin frjáls- lynda vestræna lýðræðishefð hefur smám saman holast að innan svo að heilu samfélögin virðast hvorki stefna hingað né þangað. Lýðræðið hugsar of skammt, að hennar mati, enda snýst allt um hverju má áorka á næstu 4-5 árum, og hvernig má laða til sín atkvæðin á miðj- unni með fögrum lof- orðum. Hún vill meina að þetta skýri, að hluta til, hvers vegna hagkerfi Vesturlanda hafa hægt ferðina á meðan lönd eins og Kína eru að þjóta upp í hæstu hæðir. Hvaða flokki er jú ekki sama um hagvöxtinn eftir 5- 10 ár ef það á að kjósa strax á morgun? Moyo leggur til tíu leiðir til að laga það sem bjátar á í lýðræðinu, og eru flestar tillögurnar frekar hófstilltar, s.s. að hafa kjörtímabil lengri en fimm ár og setja betri reglur um fjár- mögnun stjórnmálaflokka. En hún telur að það gæti líka hjálpað að láta fólk þreyta n.k. samfélagsfræðipróf til að fá að kjósa, og að gefa atkvæð- um hæfustu einstaklinganna meira vægi. ai@mbl.is Er lýðræði ekki málið eftir allt saman? Samkvæmt gildandi reglum höfundaréttar á höf-undur einkarétt til að gera eintök af verki sínu að-gengileg almenningi í upphaflegri eða breyttri mynd, í þýðingu eða annarri aðlögun, í annarri tegund lista eða með annarri tækni. Þegar höfundaréttarvörðu efni er dreift á internetinu af notendum án leyfis, beinast augun oft að ábyrgð milligönguaðila, líkt og fyrirtækja á borð við Youtube eða Facebook. Um takmörkun ábyrgðar slíkra milligönguaðila (e. safe harbour) er fjallað í lögum um rafræn viðskipti nr. 30/2002, sem byggjast á sam- nefndri tilskipun. Samkvæmt lög- unum ber þjónustuveitandi sem miðlar gögnum sem þjónustuþegi lætur í té um fjarskiptanet eða veit- ir aðgang að fjarskiptaneti ekki ábyrgð vegna miðlunar gagnanna að því tilskildu að þjónustuveitand- inn eigi ekki frumkvæði að miðl- uninni, velji ekki viðtakanda gagnanna og velji hvorki né breyti þeim gögnum sem er miðlað. Þjónustuveitandi sem hýsir gögn sem látin eru í té af þjónustuþega ber ekki ábyrgð á þeim að því tilskildu að hann fjarlægi þau eða hindri aðgang að þeim án tafar eftir að hann hefur fengið vitneskju um að þau séu brotleg, svo sem með tilkynningu frá rétthafa. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vinnur nú ötullega að því að byggja upp rafrænan innri markað (e. digital single market), án hindrana með það að markmiði að mæta þeim áskorunum og nýta tækifærin sem felast í tækninýjungum. Framkvæmdastjórninni þykir þó fram- angreind ákvæði um takmörkun ábyrgðar milligöngu- aðila, sem eru upphaflega að bandarískri fyrirmynd, ekki sporna nægilega gegn mikilli dreifingu ólöglegs efnis, þ.m.t. höfundaréttarverndaðs efnis. Hafa því verið lögð fram drög að nýrri tilskipun um höfundarétt á rafrænum innri markaði, þar sem kveðið er á um aukna ábyrgð milli- gönguaðila. Í 13. gr. frumvarpsins er fjallað um skyldur þjónustuveitanda sem hýsir og miðlar til almennings gögnum sem þjónustuþegi lætur í té. Þar er meðal annars fjallað um að þjónustuveitandi skuli beita ráðstöfunum á borð við skimunartækni (e. filtering technology) til að gæta hagsmuna höfunda. Í inngangsorðum frumvarpsins er tiltekið að þjónustuveitandi skuli beita framangreind- um ráðstöfunum þegar hann kemur með virkum hætti að aðgengi almennings að höfundaréttarvörðu efni og gengur þannig lengra en að hýsa einungis efni. Vilji þannig þjón- ustuveitandi bera fyrir sig fyrrgreind takmörkunarákvæði varðandi ábyrgð samkvæmt reglum um rafræn viðskipti, þarf samkvæmt frumvarpinu að fara fram efnislegt mat á milli einungis hýsingar og miðlunar til almennings með virkum hætti. Mörkin þar á milli geta verið óljós og hefur frumvarpið hlotið talsverða gagnrýni og talið búa til fleiri vandamál fremur en lausnir. Þá hefur verið bent á að með því að skylda hýsingaraðila til þess að skima eftir höfundarétt- arbrotum áður en efni er birt leiði það til fyrirfram ritskoðunar í andstöðu við m.a. mannréttinda- reglur varðandi tjáningarfrelsi. Evrópudómstóllinn komst til að mynda að slíkri niðurstöðu í svo- nefndu Netlog máli að skimunar- kerfi fyrir höfundarréttarbrotum færi í bága við réttinn til tjáningar og persónuverndar. Hefur jafnframt verið gagn- rýnt að skimun skuli sett á fót án frekari útlistunar á slíku kerfi. Væri það því í höndum einkaaðila að ákvarða nánara inntak þess sem getur talist varhugavert með tilliti til rétt- aröryggis og fyrirsjáanleika. Einnig gera frumvarps- drögin ekki grein fyrir því hvernig bregðast skuli við þeg- ar höfundaréttarvarið efni er notað með löglegum hætti og gæti því skimunin í raun takmarkað lögmæta notkun á höfundaréttarvörðu efni. Athyglisvert verður að fylgjast með framþróun frum- varpsins en Evrópuráðið hefur tekið til skoðunar að útlista nánar tilvik sem falla undir ákvæðið og með því reyna að draga úr fyrirsjáanlegri réttaróvissu. Stærstu milligöngu- aðilar á markaðnum í dag eru bandarísk fyrirtæki, sem út- skýrir á vissan hátt hve langt framkvæmdastjórnin er reiðubúin að ganga í reglusetningu. Nái hins vegar um- rætt frumvarp fram að ganga í óbreyttri mynd verða regl- urnar einstaklega íþyngjandi samanborið við sams konar reglur annars staðar, sem gæti raunar verið aðgangs- hindrun fyrir evrópska aðila. Þannig getur tilraun til lausnar á einu vandamáli skapað enn fleiri og beinlínis gengið gegn markmiði Framkvæmdastjórnarinnar að stuðla að uppbyggingu og nýsköpun í Evrópu. Ritskoðun á rafrænum innri markaði? LÖGFRÆÐI Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður á Juris lögmannsstofu ” Hefur jafnframt verið gagnrýnt að skimun skuli sett á fót án frekari útlistunar á slíku kerfi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.