Morgunblaðið - 17.05.2018, Page 14
Fyrirlesari og sérlegur gestur
á aðalfundi Amerísk-íslenska
viðskiptaráðsins var Davía Temin, al-
mannatengill og sérfræðingur í orð-
spors- og krísustjórnun, en hún hefur
stundum verið kölluð forstjórahvísl-
arinn, enda iðulega kölluð til þegar
fyrirtæki lenda í alls kyns krísum og
óvæntum uppákomum.
Forstjórahvíslarinn
á aðalfundi AMÍS
Kristján Kristjánsson og
Kristín Hjálmtýrsdóttir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Davía Temin,
forstjóra-
hvíslari.
Birkir Hólm Guðnason, Gylfi Sigfússon, Margrét Sanders
og Ari Fenger hlustuðu af athygli.
Halla Tómasdóttir
í ræðupúlti.
Friðjón R.
Friðjónsson.
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018FÓLK
Síðumúli 9 - 108 Reykjavík | Dalshraun 13 - 220 Hafnarfjörður
Dalsbraut 1 - 600 Akureyri | 560-8888 • www.vfs.is
Þegar þig
vantar alvöru
hörkutól
AÐALFUNDUR SPROTAR
Markús Máni M. Maute og félagar
hjá Sportabler (www.sporta-
bler.com) komu auga á hversu flókið
það getur verið að halda utan um
íþrótta- og frístundastarf barna og
unglinga. „Í dag fara samskipti þjálf-
ara, barna og foreldra aðallega fram í
gegnum Facebook-hópa, og mikið af
vinnutíma þjálf-
aranna fer í að
henda reiður á
dagskránni,
hverjir komast og
komast ekki og
tilfærslu þátttak-
enda á milli hópa.
Allar breytingar
kalla á mikið um-
stang og flækju-
stigið vex eftir því sem íþróttafélögin
eru fjölmennari og með fleiri flokka,“
segir Markús.
Sportabler leysir vandann með
handhægu kerfi sem hefur verið sér-
smíðað til að skipuleggja íþrótta-
starf. Iðkendur og foreldrar þeirra
hafa nákvæma yfirsýn yfir hvaða við-
burðir eru framundan, hvar og á
hvaða tíma, allar breytingar koma
skýrt fram og samskiptaleiðir eru
greiðar.
„Markmið okkar er að efla og
styðja við skipulagt íþróttastarf með
tvennum hætti: annars vegar að auka
skilvirkni í skipulags- og samskipta-
málum og hins vegar að bjóða
kennsluefni í þjálfun jákvæðra per-
sónuleikaþátta í gegnum íþróttir, þar
sem íþróttastarfið og æfingar í t.d.
sjálfstrausti fléttast saman með
markvissum hætti,“ segir Markús.
Á fund Adidas
Sportabler lenti m.a. inni á radar
hjá þýska íþróttafataframleiðand-
anum Adidas sem bauð Markúsi á
vinnustofu með stjórnendum fyrir-
tækisins um hvernig auka megi já-
kvæð samfélagsleg áhrif íþrótta-
starfs. Markús segir áhuga Adidas
m.a. skýrast af því hvernig kennslu-
efni Sportabler auðveldar þjálfurum
að gera jákvæðan og uppbyggilegan
boðskap hluta af íþróttastarfinu.
„Þeir hrifust mjög af okkar nálgun
og deila þeirri sýn okkar að persónu-
legi og félagslegi þátturinn sé það
mikilvægasta sem flestir taka með
sér út úr íþróttastarfinu,“ segir
Markús. „Í samstarfi við sálfræðinga
og Háskólann í Reykjavík höfum við
unnið kennsluefni sem tæpir á atrið-
um á borð við sjálfstraust, tilfinn-
ingagreind og núvitund, og m.a.
útbúið ræður sem þjálfararnir geta
notað til að miðla þessum skilaboðum
og hvetja ungmennin til dáða með
markvissum hætti yfir lengra tíma-
bil,“ útskýrir Markús. „Í kennsluefn-
inu eru líka upplýsingar fyrir for-
eldra svo að þeir geti fylgst með
fræðslunni og tekið virkan þátt í að
byggja börnin og unglingana upp
þegar það á við. Notum við t.d. dæmi-
sögur sem börn og foreldrar geta les-
ið saman, og bendum á tiltekin atriði
í sögunum sem gott er að ræða
heimafyrir.“
Stefna á Evrópumarkað
Sportabler er þegar komið í notk-
un hjá mörgum íþróttafélögum hér á
landi og segir Markús að það hafi
verið mikils virði fyrir fyrirtækið
hversu vel hugmyndinni hafi verið
tekið og hve viljugir þjálfarar, sér-
fræðingar og forsvarsmenn íþrótta-
félaganna hafi verið að leggja hönd á
plóg við prófanir og þróun. Þá hafi
styrkir úr Lýðheilsusjóði, frá Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands og Rannís
skipt sköpum. „Þau íþróttafélög sem
hafa prófað hugbúnaðinn eru að auka
útbreiðslu hans hjá sínu fólki og al-
menn ánægja ríkir með Sportabler.“
Tekjumódelið gerir ráð fyrir að
íþróttafélögin greiði fyrir afnot af
kerfinu og yrði gjaldskráin breytileg
eftir stærð félaganna. Sportabler
ætti að eiga erindi við fleiri markaðs-
svæði og segir Markús að fyrirtækið
muni m.a. nýta þau tengsl sem sköp-
uðust í gegnum Adidas til að koma
sér á framfæri á Þýskalandsmarkaði
og í löndunum þar í kring.
24stundir/Ómar
Stúlkur á fimleikaæfingu. Sportabler leggur áherslu á að efla félagslega
þáttinn í íþróttastarfi til að veita unga fólkinu gott veganesti út í lífið.
Létta og dýpka
íþróttastarfið
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Með Sportabler er gert
mun auðveldara að halda
utan um æfingar barna og
unglinga, og hægt að nálg-
ast kennsluefni sem á að
þjálfa jákvæða persónu-
leikaþætti hjá iðkendum.
Markús Máni
M. Maute