Morgunblaðið - 17.05.2018, Qupperneq 15
Landsvirkjun hélt ársfund sinn í vikunni undir yfirskriftinni „Á traustum grunni“
þar sem kynnt voru þau tækifæri og þær áskoranir sem framundan eru og fjallað
um raforkumarkaðinn í víðu samhengi. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags-
ráðherra, ávarpaði fundinn auk þess sem starfsfólk Landsvirkjunar flutti fjölbreytt er-
indi um starfsemi fyrirtækisins.
Rætt um raforkumarkaðinn á ársfundi Landsvirkjunar
Bjarni Benediktsson,
fjármála- og efna-
hagsráðherra, flutti
ávarp.
Þorsteinn Pálsson, fyrr-
verandi ráðherra, og Hall-
dór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri
SA, stinga saman nefjum.
Hörður Arnarson, forstjóri Lands-
virkjunar, fór yfir stöðu fyrirtækisins.
Selma Svavarsdóttir, forstöðumaður á
starfsmannasviði Landsvirkjunar, og í bak-
grunni er Stefanía G. Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og þróunarsviðs.
Helgi Jóhannesson,
lögmaður á LEX, var
á meðal ársfund-
argesta.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 15FÓLK
VÖNDUÐ JEPPADEKK
Á FRÁBÆRU VERÐI
STÆRÐ 315/70R17
49.600,- kr.
STÆRÐ 285/70R17
46.900,- kr.
ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900
WWW.ARCTICTRUCKS.IS
ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR!
Vantar fyrirtækið þitt gæða
prentefni? Við bjóðum fjöl-
breyttar lausnir hvort sem er í
offset eða stafrænt. Komdu við
í kaffisopa og við finnum leið
sem hentar best hverju sinni.
PRENTVERK
ÁRSFUNDUR
Íslandsbanki Rúnar Steinn Benediktsson hefur gengið til
liðs við verðbréfamiðlun Íslandsbanka.
Rúnar starfaði áður hjá Fossum mörkuðum í markaðs-
viðskiptum með áherslu á miðlun hlutabréfa.
Rúnar er með B.Sc. próf í hagfræði frá Háskóla Íslands,
próf í verðbréfaviðskiptum og hefur lokið ACI dealing prófi.
Hann vinnur að meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja við
Háskólann í Reykjavík.
Rúnar Steinn gengur til liðs við Íslandsbanka
Landsbankinn Í júlí næstkomandi munu Nína Guðbjörg
Pálsdóttir og Sigrún Sæmundsdóttir taka við stjórn úti-
búa Landsbankans á Selfossi og í Hamraborg í Kópa-
vogi.
Nína tekur við starfi útibússtjóra á Selfossi þegar
Gunnlaugur Sveinsson lætur af störfum vegna aldurs.
Nína hefur yfir þriggja áratuga reynslu af störfum á vett-
vangi Landsbankans. Frá 2004 til 2010 var hún útibús-
stjóri á Selfossi en á árunum 2011 til dagsins í dag hefur hún gegnt
stöðu forstöðumanns á einstaklingssviði bankans og sem sérfræðingur
í áhættustýringu hans.
Sigrún tekur við starfi útibússtjóra Landsbankans í
Hamraborg. Hún tekur við starfinu af Guðrúnu Ægisdótt-
ur sem flyst á einstaklingssvið bankans. Sigrún hefur ríf-
lega 20 ára starfsreynslu á vettvangi bankakerfisins. Hún
hefur unnið í 15 ár hjá Landsbankanum sem sérfræð-
ingur, deildarstjóri og forstöðumaður, m.a. á einstaklings-
sviði bankans. Sigrún lauk námi í iðnrekstrarfræði frá
Tækniskóla Íslands árið 1996 og BS-prófi í viðskipta-
fræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2006.
Tveir nýir útibússtjórar
VISTASKIPTI