Morgunblaðið - 17.05.2018, Qupperneq 16
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Þakíbúð á rúmar 400 milljónir
Allt að 50% færri bókanir en í fyrra
Amerískur „diner“ á Egilsstöðum
Sá ríkasti stóreignamaður á Íslandi
„Verðlag á Íslandi verður aldrei lágt“
Mest lesið í vikunni
INNHERJI SKOÐUN
Snorri Ásmundsson myndlistar-
maður hefur hafið sölu á afláts-
bréfum á alþjóðamarkaði. Snorri
staðfestir í samtali við Viðskipta-
Moggann að fyrsta sending, 100
aflátsbréf, hafi farið frá honum nú í
vikunni. Bréfin, sem eru undirrituð
af honum sjálfum, verða seld í þrem-
ur flokkum. C-flokkur er fyrir al-
gengustu syndir, eins og hvítar lygar
og óhreinar hugsanir, B-flokkur er
fyrir alvarlegri afbrot, eins og þjófn-
að, framhjáhald, og óspektir á al-
mannafæri, og A-flokkur er síðan
fyrir alvarlegustu brotin, eins og
morð og aðrar syndir sem eigandi
bréfsins kann að drýgja í framtíðinni.
„Ég er mjög bjartsýnn á þessa út-
rás mína,“ segir Snorri.
Hann segir að það hafi verið at-
hafnamaðurinn Heath Hauksson
sem hafi séð viðskiptatækifæri í að
bjóða bréfin til sölu sem gjafavöru á
alþjóðamarkaði í gegnum heimasíð-
una direct-land.com. Bréfin verða
einnig til sölu á Groupon, Ebay og
Amazon og kosta 29,9 sterlingspund.
Byrjaði í Kringlunni
Aflátsbréfasala Snorra hófst upp-
haflega árið 2003 í Kringlunni. „Ég
fékk að vera þar með sölubás, en
daginn eftir fékk ég skilaboð um að
vöruflokkurinn væri ekki æskilegur.
Það rigndi inn kvörtunum. Fólk átt-
aði sig ekki á því að ég var þarna í
fullum rétti með leyfi frá sjálfu
almættinu.“
Varan fékk aukna athygli í kjölfar þess að 500 ár voru í fyrra frá því að
Marteinn Lúther mótmælti aflátsbréfasölu kaþólsku kirkjunnar.
Í útrás með
aflátsbréfin
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Snorri Ásmundsson mynd-
listarmaður hélt að hann
yrði milljónamæringur þeg-
ar hann hóf sölu aflátsbréfa
árið 2003. Hann telur að nýr
samningur um alþjóðlega
sölu gæti glætt söluna.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Samfélögin á Vestfjörðum hafasótt í sig veðrið á síðustu árum
og var kominn tími til. Allt of lengi
hafa Vestfirðingar þurft að bíða
eftir öflugum atvinnutækifærum og
að miklu leyti hefur kjálkinn farið á
mis við þann uppgang ferðaþjón-
ustunnar sem einkennt hefur flest
önnur svæði landsins. En nú horfir
til betri vegar og tækifærin eru
mörg og arðbær. Mitt í þessum
uppgangi hafa nokkrir ein-
staklingar, ekki síst sérfræðingar
að sunnan, fengið þá flugu í höfuðið
að það verði samfélaginu á Flateyri
til framgangs að opna þar svokall-
aðan lýðháskóla sem hafi það
markmið að nemendur geti þrosk-
ast og menntað sig. Er sérstaklega
tekið fram að þar verði þekkingin
sótt, þekkingarinnar vegna.
Kannski er því öðruvísi farið við
aðrar menntastofnanir, en ólíkt
lýðháskólanum, skila þær stofnanir
þó viðurkenndum prófgráðum sem
í mörgum tilvikum veita starfsrétt-
indi á tilteknum sviðum.
Til skemmri tíma mun skólinn áFlateyri fjölga íbúum á staðn-
um. Hins vegar er hætt við að hann
verði innan skamms orðinn liður á
fjárlögum og fjárhagslegur baggi á
sveitarfélögunum fyrir vestan. Þá
tapa allir, Flateyringar, nemend-
urnir og skattgreiðendur. Síst er
þó hugsað um síðastnefnda hópinn,
eins og jafnan.
Furðuleg
forgangs-
röðun
Þann 11. júlí næstkomandi verða73 ár frá því að formlegt milli-
landaflug hófst héðan. Þá var Catal-
ina PBY-5 flugbáti Flugfélags Íslands
flogið beint til Largs í Skotlandi.
Fjórir í áhöfn og fjórir farþegar. Þeir
miklu kappar sem stóðu að því fyrir-
tæki öllu saman hafa eflaust ekki get-
að gert sér í hugarlund að rúmum sjö
áratugum síðar yrði í viku hverri
hægt að velja milli 40 flugvéla sem
beint væri á flugvelli í New York. Því
síður að þangað mætti komast án
tveggja til þriggja millilendinga.
Og þótt vera kunni að í sínumvilltustu draumum hafi þeir
getað látið sig dreyma um þetta hefðu
þeir aldrei orðið svo háfleygir í
draumasmíðinni að láta sér detta í
hug að hægt yrði að hrúga á fjórða
hundrað manns upp í eina og sömu
vélina, koma henni á loft í Keflavík og
lenda rúmum tíu tímum síðar í landi
sjálfs Mahatma Ghandis sem um
þessar mundir knúði fram sjálfstæði
hins gríðarstóra ríkis innan breska
heimsveldisins.
Enn hefur það reyndar ekki gerst.En 6. desember stefnir allt í að
belgmikil A330 breiðþota á vegum
Wow air muni einmitt, laust fyrir há-
degi, hefja sig til flugs í Keflavík og
lenda tíu og hálfri klukkustund síðar í
Delí á Indlandi. Það verður lengsta
áætlunarflug íslensks flugfélags til
þessa dags og hið fyrsta til hinnar víð-
áttumiklu og menningarríku Asíu.
Það eru spennandi en krefjanditímar á flugmarkaði í dag. En
þeir eru sannarlega spennandi fyrir
Íslendinga sem horfa upp á flug-
félögin tvö, Icelandair og Wow, opna
hvern nýjan áfangastaðinn á fætur
öðrum. Verðstríðið sem gerir mark-
aðinn krefjandi, opnar einnig tæki-
færi fyrir sífellt fleiri til ferðalaga
heimshorna á milli. Það er með hrein-
um ólíkindum að hægt sé að bjóða
upp á flug til Indlands (þótt á kynn-
ingarverði sé) fyrir tæpar 20 þúsund
krónur. Miðað við loftlínuna milli
Keflavíkur og Delí má gera ráð fyrir
að farþegi sem ferðast á þessu gjaldi,
töskulaus að vísu, greiði aðeins 2,6
krónur fyrir hvern floginn kílómetra.
Það jafngildir því að farið milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur kostaði 640
krónur. Fyrir það er ekki hægt að fá
pönnuköku á Suðurlandi. Sagan segir
að þær séu mun ódýrari á Indlandi,
en ekki eins sætar.
Loftbrú frá Íslandi til Asíu
opnast innan skamms
Sænska flugfélagið
Nextjet hefur óskað
eftir gjaldþrotaskipt-
um og aflýst öllum
flugferðum.
Nextjet flug-
félagið í þrot
1
2
3
4
5
SETTU STARFSFÓLKIÐ
Í BESTA SÆTIÐ
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON