Morgunblaðið - 22.05.2018, Qupperneq 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
Vinsældir jeppa hafa aukist á síð-
ustu árum, í framhaldi af miklum
samdrætti í sölu slíkra bíla á tímum
fjármálakreppunnar. Á allra síðustu
misserum hafa svo rafknúnir jeppar
skotið upp kolli og að minnsta kosti
fimm slíkir koma á götuna á yf-
irstandandi ári, 2018.
Þetta endurspeglar meginþróun-
ina síðustu tólf mánuðina eða svo á
bílamarkaði, en það er áberandi
vöxtur jeppa og rafbíla. Hafa bíl-
smiðir því viljað sækja fram í þeim
geira af auknum krafti
og með miklu bílavali.
Þar á meðal eru mörg
frægustu bílamerkin.
Fimm jeppa er beðið
með sérstakri eft-
irvæntingu á þessu ári
en allir eru þeir vænt-
anlegir af færiböndum
bílsmiðja fyrir árslok:
Audi e-Tron Quattro
Audi sýndi e-Tron
Quattro sem þróunarbíl
í hitteðfyrra og frum-
gerð Sportback-útgáfu
bílsins kom til skjal-
anna og reynsluaksturs í fyrra.
Audi tekur nú þegar á móti pönt-
unum með innágreiðslu svo ljóst má
vera, að fullskapaður e-Tron
Quattro er alveg á næstu grösum.
Hann mun eflaust birtast á Par-
ísarsýningunni í október eða jafnvel
fyrr.
Að sögn Audi verður drægi e-
Tron Quattro 500 kílómetrar á fullri
hleðslu og hröðunin úr kyrrstöðu í
hundraðið mun aðeins taka 4,2 sek-
úndur. Mun hann búa yfir ein-
staklega öflugu upptaki, eða 800
Newtonmetra togi. Bíllinn verður
með tengli fyrir hraðhleðslu.
Jaguar I-PACE
Ein helsta stjarna bílasýning-
arinnar í Genf í mars sl. var Jaguar
I-PACE en þar er á ferðinni stór
jeppi sem ætlað er að keppa um hylli
kaupenda við Tesla Model X. Bíllinn
er sagður tæknivæddasti jagúarinn
sem nokkru sinni hefur veið smíð-
aður. Hann er tilbúinn til raðsmíði
og verða fyrstu eintökin afhent
kaupendum á næstu dögum og vik-
um. Drægi I-PACE er uppgefið sem
500 kílómetrar á fullri hleðslu.
Mercedes-Benz EQ
Mercedes EQ var frumsýndur sem
þróunarbíll á Parísarsýningunni
2016. Vænta má þess að endanleg út-
gáfa bílsins verði sýnd seint á árinu.
Þessi fyrsti hreini rafbíllinn frá
Mercedes skartar nýrri trjónu sem
verður táknræn fyrir rafbílamódel
þýska lúxusbílsmiðsins. Úr þeim
ranni er að vænta fleiri rafmódela
með árunum. Blá lýsing verður til
áhersluauka á yfirbyggingunni.
Porsche Mission E-Cross
Porsche er fyrst og fremst þekkt
fyrir sína aflmiklu jeppa og sportbíla
og þótti það því tíðindum sæta er
þýski sportbílasmiðurinn tilkynnti
að hann væri að þróa línu hreinna
rafbíla með framtíðina í huga. Miss-
ion E-Cross er hámarks skilgreining
þess draums. Hann sýnist sameina
útlit lágt liggjandi sportbíls og gagn-
semi og nærveru jeppa. Hann er að
verða að veruleika og búist er við að
raðsmíði hefjist seint á árinu.
Volkswagen ID Crozz
Crozz er liðsmaður nýju ID-lín-
unnar hjá VW sem kynnt verður á
næstu 12 mánuðum með þremur
stökum módelum, ID hlaðbak í sömu
stærð og Golf, ID Crozz og ID Buzz,
sem minnir á forna og frægra rúg-
brauðstíma Volkswagen. ID Crozz
er nokkuð samanrekinn að sjá og er
því spáð að hann eigi eftir að ná
miklum vinsældum í einum erfiðasta
geira bílamarkaðarins. Uppgefið
drægi er um 600 km og rafrásaraflið
er sagt verða 302 hestöfl. Hermt er
að Crozz verði samkeppnishæfur í
verði í þeim tilgangi að auka að-
dráttarafl hans í augum almennra
bílkaupenda.
agas@mbl.is
Nýir rafjeppar
á götuna 2018
Mercedes EQ er fyrstur í nýrri rafbílafjölskyldu.
Það er stuð í kortunum framundan
Rafjeppinn Audi e-Tron Quattro er á næstu grösum.
Í samanburði við ökumenn
annarra bílmerkja virðast öku-
menn Porschebíla einkar
ánægðir með kynlíf sitt.
Í þeim efnum segjast tveir
þriðju þeirra eða 65,5% vera
farsælir eða mjög farsælir –
og njóti oft samfara í bíl sín-
um.
Hærra skora engir ökumenn
annarra bílmerkja, samkvæmt
rannsókn um þetta efni í
Þýskalandi. Þar kom í ljóst, að
eigendur Mercedes og Volvo
eru næstánægðastir með sam-
líf sitt á grundvelli kynlífs. Þar
segir að eitt hafi ökumenn
Mercedes umfram eigendur
Porsche og það er miklum
mun meira kynlíf.
agas@mbl.is
Það er margvíslegt, mótorsportið, á minn sann
Stundum er því fleygt, að bílar hafi áhrif á kynhvötina, til að mynda Porsche
911 Targa. Skyldi engan undra.
Kynlíf eigenda
Porsche kátast
Bílar sem smíðaðir eru í Bandaríkjunum frá og með 1.
maí síðastliðnum verða búnir bakkmyndavélum. Eng-
in fordæmi munu fyrir slíkum reglum annars staðar
frá.
Bandaríska samgönguráðuneytið segir myndavélar,
er sýna svæðið fyrir aftan bílinn á skjá á mælaborði,
öryggisbúnað sem vera skuli staðalbúnaður í öllum
nýjum bandarískum bílum.
Gildir hið sama um alla útlenda bíla sem fluttir eru
inn til Bandaríkjanna. Því er ljóst að ákvörðunin varð-
ar evrópska bílsmiði.
Þetta er í samræmi við reglur sem samgöngu-
ráðuneytið í Washington gaf út árið 2014. Stofnun
sem lætur sig varða bíla- og vegaröryggi (AHAS) seg-
ir að barátta fyrir bakkmyndavélum sem staðalbúnaði
í bílum hafi hafist fyrir alvöru þegar George W. Bush
var Bandaríkjaforseti. Hafi sú barátta tekið áratug að
skila árangri.
Auknar kröfur um öryggisbúnað
Ásamt öðrum öryggis- og neytendasamtökum
stefndu AHAS-samtökin Þjóðvegaöryggissam-
göngustofnun Bandaríkjanna (NHTSA) árið 2013 og
sögðu stofnunina eigi hafa aðhafst nóg til að bakk-
myndavélar yrðu að staðalbúnaði bíla. Brást NHTSA
við því með reglum 2014 þar sem kveðið var á um að
myndavélarnar skyldu vera í öllum nýjum bílum frá
og með 1. maí 2018.
Bakkmyndavélarnar eru ekki eini öryggisbúnaður-
inn sem mæðir á öryggis- og neytendasamtökum. Þau
vilja einnig sjá alla bíla með þróuðum tæknibúnaði á
borð við sjálfvirka neyðarhemlun (AEB) sem hluta af
árekstrarvörnum bíla, blinda bletts aðvörun, og við-
vörun fyrir akreinaflökti.
Tuttugu bílsmiðir hafa heitið því að neyðarbremsan
verði staðalbúnaður frá og með 2022 en öryggis- og
hagsmunasamtök neytenda vilja flýta því verulega.
Hann er þegar fyrir hendi í bílum frá Mercedes-Benz,
Volvo og Toyota.
Samkvæmt upplýsingum öryggisstofnunar trygg-
ingafélaga (IIHS) hefur árekstrum við akstur aftur-
ábak fækkað um 72% með myndavélum og neyð-
arbremsu. AEB með árekstrarvörn fram á við hefur
fækkað árekstrum um 50% og blinda bletts viðvör-
unarkerfið hefur fækkað árekstrum af völdum ak-
reinaflökts um 14%.
Eigendur bíla með engri bakkmyndavél geta búið
þá slíkum öryggisbúnaði fyrir lítinn pening, eða að
hámarki 200 dollara fyrir flatskjá, myndavél og öðru
viðeigandi, að sögn bílaritsins Car&Driver.
agas@mbl.is
Bakkmyndavél
í öllum
nýjum bílum
Eigi skal lengur blindandi bakkað
Bakkmyndavélar eru mikilvægur öryggisbúnaður og
gefur ökumanni betri yfirsýn yfir kringumstæður sínar.
Þýski lúxusbílasmiðurinn Audi hef-
ur stöðvað framleiðslu á nýjasta
A6 módelinu vegna grunsemda um
að fyrirtækið hafi komið fyrir hug-
búnaði í bílnum til að villa um fyr-
ir mengunarmælingum.
Þýska samgönguráðuneytið
staðfesti 8. maí frétt vikuritsins
Der Spiegel um að á vegum þess
væri verið að rannsaka meinta
notkun nýs „ólöglegs búnaðar“ í
um 60.000 Audibílum en helming
þeirra er að finna á þýskum veg-
um.
Að sögn Spiegel er nýja A6-
módelið með hugbúnað í stjórn-
tölvum bílsins sem hægir af ásettu
ráði á sérstökum mengunar-
hreinsivökva síðustu 2.400 kíló-
metrana í líftíma hans. Tilgang-
urinn mun vera sá að losa
ökumenn undan því að þurfa að
bæta fyllingu af AdBlue-vökvanum
milli reglubundinna skoðana bíla
þeirra.
Með því að hægja á notkun
AdBlue-vökvans er skilvirkni hans
við að eyða nituroxíði í útblæstri
bílanna lækkuð verulega. Allt með
þeim afleiðingum að dísilbílarnir
menga miklum mun meira þann
tíma sem eftir er fram að skoðun.
Að sögn Spiegel eru miklar líkur á
að Audi A6- og A7-bílar skráðir í
Þýskalandi verði innkallaðir.
„Fram að því hefur framleiðsla
A6-bílsins verið stöðvuð,“ bætti rit-
ið við.
agas@mbl.is
Audi stöðvar smíði A6
vegna útblásturssvika
Ekki á af útblásturssvikurum að ganga...
Nýr Audi A6 Quattro frumsýndur á bílasýningunni í Genf í febrúar sl.
Smíð hans hefur nú verið stöðvuð vegna meintra útblásturssvika.