Morgunblaðið - 22.05.2018, Page 6

Morgunblaðið - 22.05.2018, Page 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ Hágæða umhverfisvænar hreinsivörur fyrir bílinn þinn Glansandi flottur Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Bæði sprotafyrirtæki og voldugir bílaframleiðendur vinna núna að því hörðum höndum að þróa sjálf- akandi bíla. Miklar framfarir hafa orðið á síðustu árum og bílar kom- ið á markað sem geta ekið sér sjálfir við vissar aðstæður. Íslend- ingar fengu forsmekk að því sem koma skal á Snjallborgarráðstefnu Reykjavíkur fyrr í mánuðinum, en þá áttu gestir í Hörpu þess kost að fá far með sjálfakandi rafmagnsbíl; 15 manna skutlu frá Autonomous Mobility sem Hekla og Smyril Line fluttu til landsins. Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, segir að heimsókn sjálf- akandi bílsins í Hörpu hafi bæði sýnt hve langt tæknin sé komin og einnig varpað ljósi á það að fram- leiðendur eigi enn þó nokkuð í land. „Ökutækin frá Autonomous Mobility ferðast eftir fyrirfram af- markaðri braut og þekkja það um- hverfi sem þau aka um. Ef eitt- hvað óvenjulegt verður á vegi þeirra, eins og t.d. gangandi veg- farandi, þá greina skynjarar að umhverfið er ekki eins og það á að vera og ökutækið nemur staðar. Á viðburðinum í Hörpu snjóaði til að mynda og átti skutlan erfitt með að átta sig á snjónum svo hún tók upp á því að stoppa og jafnvel flauta.“ Smám saman munu ökutæki Autonomous Mobility og annarra framleiðenda læra að skilja betur umhverfi sitt og vita hvenær er óhætt að aka og hvenær ekki. „Framleiðendur glímdu t.d. við það að skynjarar litu á hrúgur af lauf- blöðum á veginum sem fyrirstöðu eða holu og þurfti að kenna bíl- unum að greina vissa liti og mynst- ur í þessum hrúgum svo þeir létu þær ekki stöðva sig.“ Leiðin upp á fimmta þrep Tækninni að baki sjálfakandi bíl- um er skipt niður í fimm þrep þar sem bílar á fimmta og efsta þrep- inu (e. level 5) aka sér alfarið sjálf- ir, hvar sem er og við hvaða kring- umstæður sem er. „Fyrsta þreps sjálfstýring er t.d. sjálfvirk gang- stýring (e. adaptive cruise control), þar sem ökumaðurinn þarf áfram að stýra en skynjarar á bílnum fylgjast með staðsetningu bílsins á undan og hægja eða auka ferðina eins og þarf. Skutlan sem við feng- um til landsins er með fjórða þreps sjálfstýringu, þ.e. hún getur ekið sér sjálf en aðeins eftir að búið er að kortleggja fyrir hana aksturs- svæðið,“ útskýrir Friðbert. Sjálfakandi bílar á fimmta þrepi byggja allir á svipuðum grundvall- aratriðum: þeir beina skynjurum í allar áttir til að greina umhverfi sitt og öflug tölva um borð vinnur úr upplýsingunum til að velja örugga leið fyrir bílinn. Framleið- endur hafa prófað sig áfram með mismunandi gerðir skynjara og þannig notar t.d. sjálfakandi bíll Uber bílaþjónustunnar 360° leysi- geislaradar en Google hefur prófað sig áfram með radartækni, sónar og öflugar myndavélar. Tölvan og skynjararnir þurfa ekki aðeins að átta sig á lögun umhverfisins held- ur verða líka að geta gert grein- armun á t.d. reiðhjóli eða mót- orhjóli á ferð og þekkt í sundur holu og vatnspoll á götunni. Friðbert segir tækninni fleygja fram og raunhæft sé að áætla að sjálfakandi bílar verði komnir í al- menna notkun á meðal annarra farartækja áður en langt um líður. „Það er búið að útfæra tæknina í aðalatriðum og eftir situr áfram- haldandi þróun og prófanir til að yfirstíga smáar og stórar hindr- anir. Fimmta stigs sjálfakandi bílar ættu að koma á göturnar um miðjan næsta áratug að mati þeirra sem til þekkja og áður en það gerist verða fjórða stigs sjálf- akandi bílar eins og skutlan frá Autonomous Mobility komin í fulla notkun á afmörkuðum svæðum eins og t.d. á flugvöllum.“ Bylting í samgöngum En hverju mun það breyta þegar það er bíllinn, en ekki ökumað- urinn, sem stjórnar? Ávinning- urinn er margþættur og gæti tæknin jafnvel gjörbreytt því hvernig fólk kemst á milli staða. Samgöngur gætu orðið skjótari, ódýrari og mun öruggari. „Fjölgun sjálfakandi bíla getur mögulega leitt af sér meiri hag- kvæmni í umferðinni og umferð- armannvirki ættu að virka betur þar sem sjálfvirka tæknin býður upp á að ökutækin ferðist nær hvert öðru. Farþegar sem kjósa sjálfakandi almenningssamgöngur geta nýtt tíma sinn betur og notað ferðina til að slaka á, lesa blöðin eða horfa á sjónvarp frekar en að þurfa að hafa athyglina við akst- urinn. Reyndar gætu sjálfakandi bílar verið svo skilvirkir að farþeg- ar ná ekki einu sinni að klára úr kaffibolla eða fletta í gegnum eitt dagblað áður en þeir koma á áfangastað,“ segir Friðbert. „Sjálf- akandi bílar munu ekki bara gera samgöngur þægilegri og ódýrari heldur eiga líka eftir að umbreyta borgum sem glíma í dag við þunga, erfiða og mengandi umferð.“ Friðbert er ekki á því að sjálf- akandi bílar muni gera út af við einkabílinn: „Við viljum njóta áfram þeirra þæginda sem við er- um vön í dag enda ná einstaklingar að lifa einkar fjölbreyttu lífi og sinna fjölda verkefna á skömmum tíma á einkabílnum. Tæknin eykur enn frekar þá kosti sem við höfum og gerir lífið áhyggjulausara,“ seg- ir Friðbert og bendir á að margir muni vilja eiga ökutæki sem fellur vel að áhugamálum þeirra og lífs- stíl. „Á meðan fólk mun nota sjálf- akandi bíla til að sinna daglegum ferðum innanbæjar þá gæti verið gott að eiga t.d. fjórhjóladrifsjeppa til að sinna áhugamálum eins og veiði, eða fyrir ferðir í sumarbú- staðinn.“ En hvað verður um bílaframleið- endurna og bílaumboðin við þessar breytingar? Friðbert segir að fyrirtækin í greininni átti sig á að sjálfakandi bílar muni gjörbreyta markaðinum, og næsta víst að þau fyrirtæki sem ná að verða fyrst til að bjóða almenningi framúrskar- andi lausnir til að komast á milli staða, í sjálfakandi bílum eða með öðrum hætti, munu standa með pálmann í höndunum. „Hlutverk bílaumboðanna gæti smám saman breyst frá því að selja ein- staklingum og fyrirtækjum bíla yf- ir í að selja notendum marg- víslegar samgöngulausnir. Eitt er víst að við munum halda áfram að óska eftir því að komast hratt, þægilega, örugglega og ódýrt á milli staða og umboðin munu halda áfram að leika stórt hlutverk.“ Sjálfakandi bílar handan við hornið Fimmta stigs sjálfakandi bílar, sem geta ekið sér sjálfir hvar sem er og við hvaða skilyrði sem er, eru væntanlegir um miðjan næsta áratug. Fram- leiðendur lofa þægilegri, öruggari og hagkvæmari samgöngum. Sjálfakandi bílar ættu að geta gert umferðina mun öruggari, en tilraunir með tæknina hafa ekki gengið áfallalaust fyrir sig. Sjálfakandi floti Uber. Google hefur reynt margs konar skynjara í sínum sjálfakandi bíllum. „Hlutverk bílaumboðanna gæti smám saman breyst frá því að selja ein- staklingum og fyrirtækjum bíla yfir í að selja notendum margvíslegar samgöngulausnir,“ spáir Friðbert um framtíð bílamarkaðarins. AFP Morgunblaðið/Kristinn Bandaríski bílsmiðurinn Buick mætti til leiks á bílasýn- ingunni í Peking í byrjun maí með nýjan rafjeppa, En- spire, sem tilbúinn er í fjöldaframleiðslu. Enspire vakti mikla athygli í Peking. Hér er um hreinan rafbíl að ræða en Buick segist stefna að því að koma með 20 módel rafbíla á markað fram til ársins 2023. Verður sjónum einkum beint að Kínamarkaði í því sambandi. Enspire er með nýrri drifrás frá General Motors (GM) að nafni eMotion en afl hennar verður 410 kíló- vött og uppgefið drægi bílsins 600 km. Upplýsinga- og aðgerðaskjár byggist á 5G-tækni og það er ekki bara hún sem er hraðvirk heldur mun og aðeins taka 40 mín- útur að hlaða nær tóma rafgeyma í 80% hleðslu, ann- aðhvort með spanstraumi eða kapli. Einnig sýndi Buick stallbak að nafni Velite 6 og vöktu báðir bílarnir óskipta athygli, samkvæmt fregn- um. Ekki þarf að koma á óvart að Buick skuli sýna kín- verska markaðinum áhuga því þangað hafa farið 85% allra bíla sem bandaríski bílsmiðurinn hefur flutt út. Þannig keyptu Kínverjar 1,18 milljónir Buick-bíla í fyrra en til samanburðar seldi fyrirtækið „aðeins“ 219.231 eintak á heimamarkaði sínum í Bandaríkj- unum. Velite 5 var hleypt af stokkunum í hitteðfyrra í Kína og hefur selst vel. Hinn nýi Velite 6 hefur nú einnig verið frumsýndur þar í landi, en hann líkist engum öðr- um bíl í smíðislínu Buick og lítið hefur verið látið uppi um hann. Þó verður hann fáanlegur sem annaðhvort rafbíll eða tengiltvinnbíll. Síðarnefnda útgáfan verður með 1,5 lítra bensínvél og rafstýrðri skiptingu. Með fullri rafhleðslu og tankfylli bensíns mun hann draga um 700 km. agas@mbl.is Enspire knúinn eMotion Buick frumsýnir rafjeppa Buick Enspire-þróunarbíllinn á stalli sínum á sýningu í Kína en hann er nánast tilbúinn til raðsmíði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.