Morgunblaðið - 22.05.2018, Blaðsíða 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í byrjun maí tók gildi ný reglugerð
um sektir og önnur viðurlög vegna
brota á umferðarlögum. Hafa ýms-
ar sektir verið hækkaðar og t.d.
geta þeir sem aka um á nagla-
dekkjum yfir sumartímann núna
átt von á 80.000 kr sekt í stað
20.000 kr áður, og í fyrsta skipti að
hjólreiðamenn eiga á hættu að fá
20.000 kr sekt fyrir að hjóla á móti
rauðu ljósi.
Sérstaka athygli hefur vakið að
sektin fyrir að nota farsíma í akstri
án handfrjáls búnaðar hækkar úr
5.000 kr upp í 40.000 kr. Nær sekt-
in jafnt til þeirra sem tala í símann
eða nota með öðrum hætti, s.s. til
að skoða samfélagsmiðla eða senda
textaskeyti.
Björgvin Þór Guðnason, formað-
ur Ökukennarafélags Íslands, er
ánægður með að sektir vegna far-
símanotkunar hafi hækkað enda al-
varlegt vandamál hve margir öku-
menn eru með athyglina við
símann frekar en umferðina. Notk-
un farsíma í akstri hafi átt þátt í
banaslysum og snjallsímarnir valdi
því að sumir eru annars hugar á
bak við stýrið. „Ekki er nóg með
að fólk sé að tala í símann heldur
er það jafnvel að taka augun af
veginum til að horfa á símaskjáinn
og með aðra hönd á síma en hina á
stýri.“
Prófa hvernig athyglin hverfur
Að sögn Björgvins berst talið oft
að snjallsímanotkun í ökunáminu:
„Í verklegum ökutímum eru dæmin
allt í kringum okkur þar sem bíl-
stjórar sjást akandi með símann á
lofti. Í bóklegu ökunámi er líka
fjallað vandlega um símanotkun og
í Ökuskóla 3 er sérstaklega tekið á
akstri og símanotkun með því að
láta nemendur leysa tiltekið verk-
efni og á sama tíma senda SMS.
Þar upplifa þeir hvernig athyglin á
verkefninu hverfur þegar verið er
að nota símann.“
Það er ekki bara unga fólkið sem
á erfitt með að láta símann frá sér
á meðan það ekur. Ef fylgst er með
bílunum sem bíða á rauðu ljósi á
götum Reykjavíkur þá má sjá að
margir eru með augun á kjöltunni,
og með kunnuglegan bláan bjarma
á andlitinu frá snjallsímaskjánum.
Björgvin segir að það geti vissu-
lega verið freistandi fyrir suma
ökumenn að nota símann en fólk
verði að fara varlega og láta sím-
ann í friði ef það vill ekki hætta á
slys eða haá sekt. „Þeir sem eiga
erfitt með að láta símann vera
gætu þurft að grípa til þess ráðs að
geyma hann utan seilingar. Það
getur líka hjálpað að slökkva á
hringingunni svo að síminn trufli
ekki aksturinn ef einhver hringir á
meðan eða sendir skilaboð.“
Tölfræði yfir slys vegna far-
símanotkunar liggur ekki fyrir hér
á landi, en þeir sem halda að sím-
inn skerði ekki getu þeirra til akst-
urs ættu að kynna sér bandarískar
rannsóknir sem benda til þess að
eitt af hverjum fjórum bílsslysum
vestanhafs stafi af því að ökumaður
var að skrifa eða lesa textaskilaboð
á símanum sínum. Raunar bendir
flest til að það sé sex sinnum
hættulegra að skrifa textaskilaboð
undir stýri en að aka undir áhrifum
áfengis.
Sex sinnum hættulegra að senda
textaskilaboð en aka ölvaður
Samkvæmt bandarískum mælingum tengist fjórða hvert umferðarslys
snjallsímanotkun, enda truflar síminn einbeitingu ökumanns.
Það getur verið freistandi að fikta í símanum í umferðinni og kannski
best að slökkva á hringingu og skilaboðahljóðum meðan ekið er.
Búið er að hækka
sektir vegna snjall-
símanotkunar undir
stýri. Í bæði verklega
og bóklega ökunáminu
er núna lögð rík
áhersla á hve mikið
síminn getur truflað.
Um langan aldur hafa sótagnasíur
verið í útblástursgreinum dísilbíla
til að draga úr mengun þeirra. Nú
munu sótgildrur birtast í bens-
ínbílum líka.
Þannig hefur Volkswagen tekið í
notkun svonefndar GPF-síur sem
gegna munu sama hlutverki í bens-
ínbílum. Þetta er liður í þeim til-
raunum VW að ná niður heild-
arlosun gróðurhúsalofts allra
smíðisbíla fyrirtækisins.
Fulltrúar Volkswagen segja að
með tilkomu þessarar nýju hreinsi-
tækni muni losun koltvíildis minnka
og í sumum módelum um allt að
95%. Þessar síur voru teknar í
gagnið í Up GTI fyrr á árinu og í
fyrra í handskiptum Tiugan 1,4
TSI.
VW skuldbatt sig árið 2016 að
taka sótagnasíur í notkun í bensín-
vélum en það var liður í aðgerðum
bílsmiðsins til að ná sér aftur á
kreik í framhaldi af útblást-
urshneykslinu frá 2015.
Aðrir bílsmiðir eru einnig að
taka GPF-síur í notkun og mun
Mercedes-Benz til að mynda hafa
tekið þær í notkun í einhverjum
gerðum S-Class. Og eins og VW er
Mercedes með áætlanir um að
brúka þær í öllum bensínbílum sín-
um. Þá hefur Ford þegar tekið
sótsíurnar í notkun í orkubúntinu
Mustang.
Bensínbílar hafa fallið undir lög-
gjöf um losun sótagna frá því svo-
nefndur EU5-stuðull tók gildi árið
2009. Í september 2017 var svo
EU6-stuðullinn tekinn í gagnið en
hann kveður á um skyldur bílsmiða
til að smíða vélar með tífalt minni
sótlosun en samkvæmt fyrri stuðli.
agas@mbl.is
Sótgildrur líka í bensínbíla VW
Kuskið þurrkað af táknmerki
Volkswagen á trjónu Touareg-jeppa.
Þrengir enn að útblásturssótinu
Fjallaklifurkeppnin á Pikes Peak í
Colorado-ríki í Bandaríkjunum
heillar og hafa evrópskir bílsmiðir
sýnt henni sérstakan áhuga. Í ár
stefnir Volkswagen að því að slá raf-
bílamet „keppninnar til skýjanna“.
Þar sló franski rallmeistarinn Se-
bastien Loeb öll met fyrir nokkrum
árum á sérsmíðuðum Peugeot-bíl.
Nú ætlar Volkswagen að skoða fjall-
ið og gera þar ekki minni rósir.
VW hefur af þessu tilefni smíðað
sérstakan keppnisbíl og sýndi hann
á dögunum í Ales í Frakklandi. Hef-
ur hann verið nefndur I.D.R Pikes-
Peak, en keppnin árlega fer fram 24.
júní nk. Fyrstu tveir stafirnir í nafni
bílsins skírskota til ID-snjalltækni
VW og R-ið til þess að þetta sé
keppnisbíll.
Stefnir á að slá metið
Klifurmetið sem VW ætlar að
glíma við á ofurbíl sínum hljóðar
upp á 8:57,118 mínútur. Tómaþungi
I.D.R Pikes Peak er undir 1.200 kíló-
um og tveggja rafmótora aflrás hans
skilar 680 hestöflum.
Þá er bíllinn sagður komast úr
kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 2,25
sekúndum, sem er meiri hröðun en
keppnisbílar í formúlu-1 og e-
formúlunni ná.
Meginmarkmið Volkswagen með
þróun I.D. R Pikes Peak var ekki að
hámarka afkastagetuna, eins og
venjulega á við um kappakstursbíla,
heldur að finna rétta jafnvægið milli
orkuforðans og þyngdar bílsins.
Litíumjónarafgeymar verða í bíln-
um, svipaðir þeim sem notaðir eru í
venjulegum rafbílum. Orkuþéttni í
þeim er lykilatriði við framleiðslu
háspennustraums. Um 20% orku-
þarfar bílsins í klifrinu framleiðir
hann sjálfur. Endurheimtir hann
rafmagnið á bremsusvæðum fyrir
krappar beygjur. Þegar bremsað er
virka rafamótorarnir eins og rafalar
og umbreyta bremsuorkunni í raf-
magn og skila því til rafgeymanna.
agas@mbl.is
VW reynir við Pikes Peak
Volkswagen hefur smíðað þennan rafdrifna ofurbíl, I.D. R Pikes Peak, til
að slá met í fjallaklifrinu upp Pikes Peak í Colorado í júnílok þessa árs.
Tekst að slá magnað met Sebastien Loeb?