Morgunblaðið - 22.05.2018, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11
Annálaður ítalskur bílsmiður, Lancia, er um það bil að
leggja upp laupana. Aðeins einn bíll er enn smíðaður,
smábíllinn Ypsilon.
Það er sjaldgæft að bílmerki hverfi en í seinni tíð
hafa þó bæði Rover og Saab orðið fyrir því. Og líkur
eru nú á að Lancia bætist í hópinn.
Lancia var um skeið öflugur bílsmiður og stoltur.
Einhvern veginn hefur fyrirtækið lent á milli stafs og
hurðar í FCA-veldinu, móðurfélagi Fiat og Chrysler.
Rætur Lancia liggja aftur til ársins 1906 og um skeið
voru bílar fyrirtækisins hátt metnir meðal bíláhuga-
manna. Í seinni tíð hefur það hins vegar barist við mót-
byr og orðið að láta undan. Til að Ypsilon nái út-
breiðslu þarf að koma til móts við kröfur markaðarins
um ódýrari bíl, en það myndi þýða enn minni afrakstur
og líklega rýra enn frekar möguleika Lancia-merkisins
á að fá að lifa.
Frægðarsólin gengin til viðar
Er nú svo komið, að einasti raðsmíðaði bíllinn, Ypsi-
lon, sem kom fyrst á götuna 2011, er aðeins seldur á
Ítalíu. Kom ný kynslóð af honum fyrir fjórum árum og
gæti hún orðið hin síðasta. Fiat-fyrirtækið varði á sín-
um tíma rúmum 500 milljónum til þróunar bílsins. Sá
kostnaður er reyndar sagður hvati til að halda smíðinni
áfram til að fá sem mest upp í hann.
Lancia er hluti af FCA-samsteypunni og eftir að Fiat
tók þar við yfirráðum hefur sól Lancia sigið hratt niður
að sjóndeildarhring. Þar er nú megináhersla lögð á Fi-
at-merkin Alfa Romeo, Maserati og Fiat. Þótt margur
Ítalinn beri sterkar tilfinningar til Lancia og gréti
hvarf merkisins ná engar slíkar þrár inn í stjórn-
endasvítur FCA.
agas@mbl.is
Lancia að leggja upp laupana
Eini smíðisbíll Lancia, Ypsilon, er aðeins seldur á Ítalíu.
Belgískur bíleigandi átti sér einskis ills von er hann
opnaði bréf sem hann fékk óvænt frá lögreglunni.
Rak hann í rogastans er þar var tilkynnt að hann
hefði mælst á 696 km/klst. hraða, að sögn dagblaðs-
ins La Province.
Hinn dagfarsprúði bílstjóri taldi sig ekki einu sinni
hafa virt reglur um hámarkshraða að vettugi, hvað
þá svona svakalega. Í bílnum hans væri ekki vélarafl
til að ná 696 km hraða en hann er af gerðinni Opel
Astra.
Þegar öllu hafði verið á botninn hvolf var nið-
urstaðan sú að laganna verðir höfðu ekki still hraða-
myndavélina rétt er þeir afrituðu meint brot Belgans.
Í ljós kom að hann hafi ekið á 60 km/klst. hraða á
vegarkafla með 50 km leyfilegum hámarkshraða.
agas@mbl.is
Hversu öflug getur Astran verið?!
Mældur á 696 km/klst. hraða!
Opel Astra er knár bíll en smár og hefur ekki vélarafl
til að ná hraðanum sem lögreglan taldi sig hafa mælt.
Snarpur og
skemmtilegur í akstri
Flestir borgarjeppar af því taginu
sem X2 tilheyrir eiga það sammerkt
að vera liprir og nettir, og eru því á
heimavelli í innanbæjarakstri.
Sjaldnast er um sérstakar rakettur
að ræða, enda er það ekki kjarna-
hlutverk umræddra bíla. BMW-inn
sem hér um ræðir má þó eiga það að
hann er býsna snarpur, sjálfskipt-
ingin er spræk, togið prýðilegt og
mjög gaman fyrir ökumann að taka
stjórnina með blöðkuskiptingunni í
stýrinu. Sport-stillingin stendur fyrir
sínu og vel það, og til að friða sam-
viskuna inni á milli er þarna Eco-
hnappur sömuleiðis. En í eigin still-
ingu en bíllinn semsagt býsna
skemmtilegur og snarpari en ég átti
satt að segja von á.
Fjöðrunin er í stífara lagi sem ljær
bílnum sportlegan svip. Er það vel
því þetta er meiri malbiksbíll en mal-
arbíll. Þá er veghljóð í þægilegu lág-
marki og bíllinn hinn viðkunnanleg-
asti á ferð. Eyðslan reyndist í um 5,5
lítrum og það kvartar ekki nokkur
maður undan því.
Góður kostur – sem kostar
Þegar allt er sett upp á strik er
BMW X2 einkar skemmtileg viðbót
við barmafullan „crossover“-flokkinn,
bæði hvað útlit, innviði og aksturseig-
inleika varðar. Þetta er klárlega einn
sá skemmtilegasti og persónulega er
ég þrælskotinn í útliti bílsins. Sá
böggull fylgir aftur á móti skammrifi
að X2 er í dýrari kantinum; það þarf
út af fyrir sig ekki að koma á óvart,
BMW hefur aldrei keppt á verð-
grundvelli eða sóst eftir samkeppn-
isforskoti á þeim forsendum. Ódýr-
astur fæst hann á um 5,4 milljónir og
dýrastur fer hann upp í um 7,3 millj-
ónir. Ef sérstakt útlitið heillar og við-
komandi er veikur fyrir BMW þá
mun það væntanlega ekki skipta
neinu máli.
Í stað glugga aftan við afturhurð er BMW-merkið sett í öndvegi. Góð lausn.
Sportleg lögun bílsins takmarkar
skottplássið aðeins, en án þess að
það komi að sök.