Morgunblaðið - 25.05.2018, Side 2

Morgunblaðið - 25.05.2018, Side 2
Hengirúm og fleiri himneskar hugmyndir sem breyta garð- inum í sannkallaðan sælureit og um leið eftirsóttasta stað heimilisins. 8 2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018 25.05.2018 25 | 05 | 2018 GARÐAR OG GRILL Útgefandi Árvakur Umsjón Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Blaðamenn Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Elínrós Líndal elinros@mbl.is Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Forsíðumyndina tók Hanna Prentun Landsprent ehf. Það hefur sannarlega þurft sterk bein til að þola vorið og „sumarið“ það sem af er þessu ári, alltént á suðvesturhorni landsins. Sólarstundir sjaldséðari en um langt árabil, úrkomumet eru í bráðri hættu og hvassviðri í bland svo útigrill og trampólín eru á hverfanda hveli. Og það á að heita mánuður sem liðinn er frá sumardeginum fyrsta? Það var þá aldeilis sumar! En þá rifjast það upp fyrir þeim sem þetta ritar að hugtakið „gott veður“ er afstætt, og þegar maður býr á Íslandi er eins gott að temja sér það viðhorf að sumar er ekki eitthvað sem jafngildir fyrirfram ákveðnu veðri, heldur verður það að vera hugarástand. Við ákveðum hvenær komið er sumar. Grillum við ekki hvort eð er í brunagaddi á þorra ef því er að skipta? Hér sem fyrr er gott að taka Pollýönnu sér til fyrirmyndar og segja sem svo að verra gæti það verið; hér gæti verið eldgos eins og á veður- farsparadísinni Havaí. Það er hvorki grillað né gróðursett þegar þannig stendur á. Því er vissara að renna upp vindjakkanum og grilla bara með bros á vör, um leið og búið er að arfahreinsa og trimma niður limgerðið. Gleðilegt garða- og grillsumar! Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Er sumar árstíð eða hugarástand? Það er hægastur vandinn að njóta grillaðra kræsinga þótt maður aðhyll- ist vegan- mataræði. Erna Valdís sýnir það og sannar. 19 Að vanda er gnægð skemmtilegra hugmynda að finna í IKEA þegar kemur að því að lyfta upp garð- inum og lífga upp á hann með blómum, mublum og smávöru. 20 Hinn æðsti draumur flestra garð- eigenda er að koma þar fyrir heitum potti. Draumurinn gæti verið nær því að rætast en þig grunar. 12 Rafhitun Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element), hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar og flest annað til rafhitunar. Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki sem hafa sannað sig með áralangri reynslu. Rafhitarar fyrir heita potta Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði • Sími: 565 3265 • ww.rafhitun.is íslensk framleiðsla í 25 ár Hiti í bústaðinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.