Morgunblaðið - 25.05.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 25.05.2018, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018 ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, SMÍÐI OG SAMSETNING ALLAR HURÐIR SMÍÐAÐAR SAMKVÆMTMÁLI HANNAÐAR FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR MARGAR ÚTFÆRSLUR OG LITAMÖGULEIKAR STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI      BÍLSKÚRSHURÐIR IS Hurðir ehf. | Reykjalundi, 270 Mosfellsbæ 564 0013 / 865 1237 | logi@ishurdir.is | www.ishurdir.is Í S L E N S K F R A M L E I Ð S L A Elínrós Líndal elinros@mbl.is L eiknir Ágústsson er skrúð- garðyrkjumeistari og konan hans Tinna er einnig skrúð- garðyrkjumenntuð. Saman eiga þau þrjú börn og eitt fyrirtæki: Draumagarða sem er að hefja sitt 14 starfsár á þessu ári. Leiknir er tvíburi en tvíburasystir hans er Silja Ágústsdóttir, bóndi í Landeyjum. Hann á fjögur systkin og þakkar móður sinni henni Huldu fyrir að kenna sér allt sem kunna þarf í eldhúsinu. Með föður sínum Ágústi og bræðrum sínum vann hann lengi við smíðar, sem hefur komið sér vel til að fullkomna allt sem hægt er að gera í garðinum. „Ég er fæddur og uppalinn Eyja- peyi, bý núna í Hafnarfirði og elska Kjósina þar sem við erum með bú- stað. Í Vestmannaeyjum lærði maður að spranga og síga í björg og því er það ekkert tiltökumál að klifra upp í tré og fella við erfiðar aðstæður. Ég hugsa oft með söknuði til Eyja, þá sérstaklega núna þegar maður er að ala upp börn. Ég held að það sé erf- itt að finna betri stað fyrir börn að alast upp á en Vestmannaeyjar. Okkur fjölskyldunni líður þó vel í Hafnarfirði enda fullt af skemmti- legu fólki í þessum bæ. Þó svo að aðrir í fjölskyldunni tilheyri annað- hvort FH eða Haukum þá er ég al- gjörlega hlutlaus í görðunum hér í Hafnarfirði því ég er og verð ávallt ÍBV-maður. Þar slær hjartað mitt ennþá.“ Leiknir segir Draumagarða metn- aðarfullt skrúðgarðyrkjufyrirtæki sem vill ávallt bjóða upp á góða og vandaða garðþjónustu. „Margir af okkar kollegum eru búnir að sér- hæfa sig annaðhvort í gráa eða græna geiranum eins og algengt er víða erlendis. Við erum ennþá að sinna öllum pakkanum (gæna og gráa hlutanum) sem mér finnst mjög skemmtilegt. Það kostar meira að eiga tæki og tól í allt en það gefur okkur meiri breidd í görðunum.“ Hvað getur þú sagt mér um það að vera skrúðgarðyrkjufræðingur miðað við það að vera garðyrkju- fræðingur? „Þetta er góð spurning því allir sem útskrifast úr skrúðgarðyrkju, garðyrkjuframleiðslu og sem blóma- skreytar geta titlað sig sem garð- yrkjufræðingar. Því getur þetta ver- ið dálítið villandi. En til að einfalda málið þá skulum við kalla okkur skrúðgarðyrkjufræðinga sem vinnum í görðunum við uppbyggingu og umhirðu garðanna. Garðyrkju- fræðingar sem útskrifast úr garð- yrkjuframleiðslunni sjá um fram- leiðslu á garðplöntum sem við síðan plöntum í garðana. Mjög gott sam- starf er milli okkar og garðplöntu- framleiðenda. Við leitum ráða hvorir hjá öðrum enda fylgjumst við með framþróun í greininni hvorir á sínu sviði. Þeir skrúðgarðyrkjufræðingar sem klára síðan meistaraskólann og hafa fengið afhent meistarabréf geta titlað sig skrúðgarðyrkjumeistara, sem veitir þeim réttindi til að reka sitt eigið löggilt fyrirtæki í greininni, taka að sér nema o.s.frv. samkvæmt iðnlöggjöfinni.“ Hvað er í tísku í sumar tengt görðum? „Það sem er í tísku núna er að eignast viðhaldslítinn garð sem þjónar garðeigandanum en ekki að garðeigandinn verði þræll í sínum eigin garði. Fjölærar jurtir eru að verða vinsælar aftur enda sparar það blómakaupin ár eftir ár. Síðan er það tískusprengjan sem ég spái að verði næstu ár en það eru frístand- andi glerhýsi í garðinum. Ekki gróð- urhús heldur útfærsla af gömlu góðu sólhúsunum sem voru byggð sem viðbót við húsin og voru vinsæl eftir 1980 en breyttust því miður í stærri stofur með árunum. Við erum alltaf að berjast við vindinn á Íslandi og svo viljum við meiri sól. Það er bara mjög erfitt að slá á vindinn án þess að kveðja sólina með t.d. háum trjám. Rétt hannaðar skjólgirðingar og gróður veitir skjól en oft ekki nóg fyrir íslenskar að- stæður. En það er til leið til að njóta garðsins í lengri tíma, sem ég veit að gæti gjörbreytt garðmenningu og ég vil segja einnig lýðheilsu okkar Ís- lendinga. En það er heilsárs frí- standandi glerhýsi í garðinum. Ein- falda húsið væri óupphitað glerhús, en þau eru í dag seld sem lítil gróð- urhús, sem væri með þægilegum garðhúsgögnum og plöntum til að njóta með inn í vorið, sumarið og fram á haust.“ Leiknir segir dýrari týpuna ekki til að sér vitandi nema í kollinum sín- um. „Þar sé ég fyrir mér hús hönnuð með meiri tengingu við það bygging- arefni sem notað er á staðnum en þó í grunninn með mikið gler svo hægt sé að sjá allt sem skiptir máli í garð- inum, upphitað, kamína, rafmagn o.s.frv. Að sjálfsögðu værum við með einhverjar fallegar ilmandi plöntur inni í húsinu þó að gróðurinn í garð- inum gæti dugað einn og sér í góðu skipulagi. En þetta er eitthvað sem væri krefjandi verkefni fyrir okkar arki- tekta, landslagsarkitekta og skrúð- garðyrkjufræðinga til að hámarka ánægju okkar Íslendinga í okkar eigin garði.“ Leiknir hvetur fólk einnig til að fara á næstu garðyrkjustöð þar sem alltaf er eitthvað spennandi í gangi. „Einnig eru Steypustöðin og BM Vallá ávallt að bæta og auka vöruúr- val sitt fyrir garðana.“ Hvernig mundir þú vilja sjá þróun garða á næstu misserum? „Númer eitt á garðurinn að vera þannig að fólk noti hann og njóti. Það þarf ekki alltaf að kaupa allt nýtt. Það er hægt að hreinsa hellur eða endurleggja eldri hellur, laga grasflatir, einfalda beð, búa til stæði fyrir hjólhýsið o.s.frv. Allt með það lokamarkmið að byrja að njóta garðsins. Grasið er síðan sér kapít- uli. Því miður hefur frágangur und- irbyggingar á grasflötum verið afar slakur í nýbyggðum og eldri görð- um. Ýmsar ástæður liggja þar að baki og ætla ég ekki að fara að tí- unda þær hér. En ég vona að fólk fari að leggja meiri metnað í gras- flatirnar. Bæði með réttri uppbygg- ingu og góðri umhirðu. Þar getum við séð miklar breytingar því þar eigum við mikið inni.“ Hvað er sniðugt að gera í garð- inum? „Lifa, leika, rækta, slaka á og njóta þess að vera til. Málið er að stundum þarf maður nefnilega bara að fara til baka til þeirra ára þegar börnin þekktu ekki tölvu og gerðu hluti sem þeim datt í hug að gera þá stundina. Leikir á grasflötinni, rækta kartöflur, gulrætur, kál, krydd o.fl. Krökkum finnst þetta gaman og það tengir þau betur við núið,“ segir hann og bætir við að það megi alltaf byrja smátt. „Það er til dæmis hægt að rækta kartöflur í 20 l fötu.“ Hvað ætti ekki að gera eða hverju ættum við að gera minna af? „Kolla tré er eitthvað sem við ætt- um ekki að gera. Frekar að fella og gróðursetja eitthvað sem passar bet- ur hverju sinni. Ef tré eru kolluð þá þarf að fylgjast vel með trénu í kjöl- farið enda er mikil hætta á roti og sýkingarhætta með leiðsluvefjunum eykst til muna. Einnig er hætta á að nýjar greinar sem myndast efst við skurðsárið liggi grunnt og því greinafestan veik. Þetta hefur valdið alvarlegum slysum erlendis. Veit ekki um slys hér á landi en mörg tré á Íslandi sem ekki hafa verið klippt árlega eftir kollun eru í rauninni stórhættuleg.“ Þarf sálin að vera á sérstökum stað til að geta fengist við garða og blóm? „Sálin fer í það minnsta á réttan stað ef við eigum garð til að njóta,“ segir hann að lokum. Sálin fer á réttan stað í góðum garði Grænt Það leynir sér ekki að hér er fólk með græna fingur á ferð. Draumastaður. Sælureitur Í garðinum hjá Leikni og Tinnu. Hver myndi ekki vilja eiga einn slíkan? Umhyggja Blóm þurfa næringu og það þarf að sinna þeim vel. Að launum fæst fallegur garður sem er prýði fyrir húsið og unaðsreitur fyrir íbúana. Morgunblaðið/Valli Garðhúsið Leiknir í garðhúsi sem hann vann fyrir Sigrúnu Hjartardóttur og mann hennar Björn Geir Leifsson: fallegt og látlaust glerhús í Grafarvoginum sem þau reistu með hjálp Draumagarða. Útkoman er sannarlega glæsileg.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.